Stefnuræða forseta framkvæmdastjórnar ESB, endurskipulagning EES-starfs í Noregi, norðurslóðir, nýjar löggjafartillögur o.fl.
Í Vaktinni að þessu sinni:
- Stefnuræða von der Leyen og áform framkvæmdastjórnarinnar fyrir árið 2027
- Noregur endurskipuleggur EES-starfið
- Aukin áhersla ESB á norðurslóðir
- Samtök iðnaðarins heimsækja sendiráðið í Brussel
- Sendinefndir Evrópuþingsins heimsækja Ísland
- Staða undirbúnings að næstu fjármálaáætlun ESB
- Samstarfsaðild að framtíðaráætlunum ESB rædd í Brussel
- Evrópuþingið samþykkir samning um þátttöku Íslands í gervihnattaáætlunum ESB
- Löggjafartillögur um frjálsa för vinnuafls
- Löggjafartillaga um öruggara og ábyrgara stafrænt umhverfi fyrir börn
- ESB kynnir flokkunarkerfi um orkunýtni og sjálfbærni gagnavera
- Opin samráð hjá framkvæmdastjórn ESB
Stefnuræða von der Leyen og áform framkvæmdastjórnarinnar fyrir árið 2027
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, flutti árlegt ávarp sitt um stöðu sambandsins (e. State of the Union – SOTEU) á Evrópuþinginu 16. september sl. Samkeppnishæfni og innri markaðurinn voru þar meðal megináherslna og lagði von der Leyen áherslu á að ljúka umbótum á innri markaðnum fyrir lok árs 2027 á grundvelli vegvísisins One Europe, One Market. Hún lagði jafnframt áherslu á einföldun regluverks, minni stjórnsýslubyrði fyrir fyrirtæki og lægra orkuverð.
Samhliða ávarpinu var birt áformabréf (e. Letter of Intent) þar sem dregnar eru fram helstu áherslur og aðgerðir framkvæmdastjórnarinnar á komandi ári. Þar má meðal annars finna tillögu um að hraða leyfisferlum og áform um einföldun regluverks á sviði bankamála og samgangna, auk aðgerða til að auka fjölbreytni í aðfangakeðjum og stofna evrópskt félag um mikilvæg hráefni.
Stefnuræðan og áformabréfið eru liður í undirbúningi starfsáætlunar framkvæmdastjórnarinnar fyrir 2027, sem væntanleg er í haust. Þar mun skýrar koma fram hvaða stefnumótunar- og löggjafarverkefni framkvæmdastjórnin hyggst setja á dagskrá á næsta ári. Við næstu uppfærslu forgangslista Íslands gagnvart ESB, sem áætluð er í lok árs 2026, verður meðal annars litið til starfsáætlunar framkvæmdastjórnarinnar fyrir 2027.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
- vegvísinn One Europe, One Market
- uppfærslu forgangslistans
- starfsáætlun framkvæmdastjórnar ESB fyrir árið 2026
Noregur endurskipuleggur EES-starfið
Norska ríkisstjórnin kynnti 18. september sl. breytingar á vinnulagi vegna EES-samstarfsins og samskipta Noregs við ESB. Markmiðið er meðal annars að styrkja þá vinnu sem þegar fer fram á fyrri stigum við mótun nýs regluverks ESB, þannig að norsk sjónarmið og hagsmunir liggi fyrir meðan tillögur eru enn til meðferðar hjá stofnunum ESB og möguleikar eru til að hafa áhrif á endanlega útfærslu þeirra. Ríkisstjórnin vill jafnframt stuðla að því að vinna vegna nýs regluverks ESB hefjist fyrr innan EFTA-samstarfsins. Þá hyggst ríkisstjórnin líta til tillagna þverpólitísks starfshóps Stórþingsins frá júní 2026 um fyrri aðkomu þingsins að EES-málum.
Ríkisstjórnin hyggst jafnframt taka upp kerfi árlegrar forgangsröðunar ESB- og EES-mála og leggja áherslu á hagsmunagæslu í þeim málum sem talin eru mikilvægust fyrir Noreg. Þá verður samhæfing milli ráðuneyta styrkt, dregið úr skrifræði í EES-vinnunni og notkun stafrænna lausna og gervigreindar aukin.
Fyrirhugaðar umbætur tengjast jafnframt samstarfi Noregs og ESB á sviðum sem falla að hluta eða öllu leyti utan EES-samningsins, meðal annars öryggis- og varnarmálum, heilbrigðisviðbúnaði og efnahagslegu öryggi. Með breytingunum vill ríkisstjórnin styrkja forsendur Noregs til frekara samstarfs við ESB á sviðum þar sem hagsmunir Noregs og ESB fara saman.
Frá íslensku sjónarhorni er athyglisvert að norsk stjórnvöld hyggjast taka upp árlega forgangsröðun þeirra mála sem mestu skipta fyrir norska hagsmuni. Á Íslandi hefur um árabil verið unnið eftir forgangslista í hagsmunagæslu gagnvart ESB, þar sem tiltekin mál eru sett í forgang og jafnframt lögð áhersla á aðkomu Íslands á fyrri stigum við mótun stefnu og regluverks ESB. Að þessu leyti ríma áherslur norsku ríkisstjórnarinnar vel við þá nálgun sem íslensk stjórnvöld hafa fylgt um árabil.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
- fyrirhugaða úttekt Noregs á reynslunni af EES-samstarfinu
- skipan nefndar til að meta reynslu Noregs af EES-samstarfinu
- norsku skýrsluna um þróun EES-samningsins
- uppfærslu forgangslistans
Aukin áhersla ESB á norðurslóðir
Hópur leiðtoga og fulltrúa ESB-ríkja kom saman í Rovaniemi í Finnlandi 13.–14. september sl. á leiðtogafundi um málefni norðurslóða (e. European Arctic Summit), í boði Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók þátt í vinnukvöldverði leiðtoganna ásamt Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs.
Öryggismál á norðurslóðum voru í forgrunni fundarins. Í sameiginlegri yfirlýsingu þrettán ESB-ríkja er kallað eftir því að ESB styrki hlutverk sitt á svæðinu og meðal annars vísað til aukinna umsvifa Rússlands og aukins öryggispólitísks áhuga Kína á norðurslóðum. Jafnframt er kallað eftir auknum fjárfestingum í hernaðarlegum hreyfanleika og innviðum á norðurslóðum, þar á meðal samgöngu- og stafrænum tengingum og gervihnattatækni og -þjónustu.
Fundurinn tengist endurskoðun á stefnu ESB í málefnum norðurslóða sem verður kynnt síðar í október. Kaja Kallas, utanríkismálastjóri ESB, sagði á fundinum að öryggismál yrðu kjarninn í stefnunni, sem bendir til þess að öryggis- og varnarmál fái aukið vægi miðað við fyrri stefnu ESB í málefnum norðurslóða frá 2021.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
- stefnu ESB í málefnum norðurslóða
- aukna áherslu ESB á Grænland
- ályktun Evrópuþingsins um stefnu ESB í málefnum norðurslóða
- endurskoðun á stefnu ESB í málefnum norðurslóða
Samtök iðnaðarins heimsækja sendiráðið í Brussel
Hópur á vegum Samtaka iðnaðarins, þar á meðal Þorsteinn Víglundsson, formaður samtakanna, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri þeirra, heimsótti sendiráð Íslands í Brussel 22. september sl. Á fundinum var farið yfir stöðuna í EES-samstarfinu og áherslur SI vegna hagsmunagæslu gagnvart ESB. Jafnframt var fjallað um ýmis mál á dagskrá ESB sem snerta íslenskt atvinnulíf, meðal annars utanríkisviðskipti og efnahagslegt öryggi, orkumál, endurskoðun ETS-kerfisins og CBAM, iðnaðarhraðal ESB og opinber innkaup.
Einnig var rætt um nýjar samstarfsáætlanir ESB fyrir tímabilið 2028–2034, fyrirhugaðan Samkeppnishæfnissjóð og tillögur á sviði nýsköpunar, mikilvægra lyfja og frjálsrar farar launafólks. Fundurinn gaf tækifæri til samtals um þróun regluverks og stefnumótunar innan ESB og hagsmuni íslensks atvinnulífs í því samhengi.
Sendinefndir Evrópuþingsins heimsækja Ísland
Tvær sendinefndir Evrópuþingsins heimsóttu Ísland í vikunni. Fulltrúar utanríkismálanefndar Evrópuþingsins komu til Reykjavíkur 21.–23. september til viðræðna um utanríkis- og öryggismál og framtíð samskipta Íslands og ESB í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst sl. Í tengslum við heimsóknina tóku nefndarmenn jafnframt þátt, ásamt fulltrúum utanríkismálanefndar Alþingis, í fundi sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og ESB. Nefndin er sameiginlegur vettvangur Alþingis og Evrópuþingsins fyrir umræður um samskipti Íslands og ESB.
Jafnframt heimsóttu fulltrúar stjórnskipunarnefndar Evrópuþingsins Danmörku og Ísland 22.–24. september. Í Íslandsheimsókninni áttu nefndarmenn fundi með fulltrúum ríkisstjórnarinnar og Alþingis þar sem meðal annars var fjallað um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og framtíð samstarfs Íslands og ESB.
Staða undirbúnings að næstu fjármálaáætlun ESB
Evrópumálaráðherrar ESB ræddu næstu langtímafjármálaáætlun sambandsins (e. Multiannual Financial Framework – MFF) fyrir árin 2028–2034 á fundi almenna ráðs ESB 22. september sl. Áætlunin ákvarðar hámarksútgjöld og megináherslur fjárlaga ESB til sjö ára. Framkvæmdastjórnin lagði fram megintillögu sína í júlí 2025 og frekari tillögur um einstaka málaflokka í september sama ár. Heildarfjárhæð tillagnanna er tæplega 2.000 milljarðar evra og meðal helstu áherslna eru fjárfestingar til að efla samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs, rannsóknir og nýsköpun, öryggis- og varnargetu ESB, orkuöryggi og viðnámsþol sambandsins.
Á fundi almenna ráðsins ræddu ráðherrar bæði skiptingu útgjalda og hvernig fjármagna skuli næstu langtímafjármálaáætlun. Unnið er að því að aðildarríkin nái samkomulagi um stærð, skiptingu og fjármögnun hennar fyrir lok árs 2026. Slíkt samkomulag myndi skapa forsendur fyrir því að ljúka nauðsynlegri löggjafarvinnu á árinu 2027, svo fjármögnun nýrra áætlana geti tekið við án rofs 1. janúar 2028. Evrópuþingið hefur þegar mótað afstöðu sína til tillagna um næstu langtímafjármálaáætlun ESB og er tilbúið til viðræðna við ráðið þegar aðildarríkin hafa mótað sameiginlega afstöðu.
Samhliða er unnið að áframhaldandi mótun samstarfsáætlana ESB fyrir tímabilið 2028–2034 á grundvelli tillagna framkvæmdastjórnarinnar. Meðal annars er gert ráð fyrir nýjum Samkeppnishæfnissjóði ESB sem myndi sameina nokkrar áætlanir sem Ísland tekur þátt í, en rannsókna- og nýsköpunaráætlunin Horizon Europe verður áfram sjálfstæð og Erasmus+ heldur áfram í breyttri mynd. Endanleg stærð og skipting fjármagns í langtímafjármálaáætluninni mun ráða miklu um umfang þessara áætlana og kostnað við þátttöku Íslands. Íslensk stjórnvöld hafa þegar hafið vinnu við mat á áframhaldandi þátttöku Íslands í einstökum samstarfsáætlunum ESB á tímabilinu 2028–2034.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
- tillögur framkvæmdastjórnarinnar að langtímafjármálaáætlun ESB 2028–2034
- sameiginlegt álit EES/EFTA-ríkjanna um nýjar samstarfsáætlanir ESB
- undirbúning Íslands að þátttöku í samstarfsáætlunum ESB 2028–2034
Samstarfsaðild að framtíðaráætlunum ESB rædd í Brussel
Unnið er að mótun samstarfsáætlana ESB á sviði rannsókna og nýsköpunar, m.a. Horizon Europe og Samkeppnishæfnisjóðs Evrópu (e. European Competitiveness Fund), samhliða undirbúningi næstu fjármálaáætlunar sambandsins (e. Multiannual Financial Framework – MFF). Þátttaka í þessum áætlunum er mikilvæg fyrir Ísland og önnur samstarfsríki ESB, enda veitir hún rannsóknar- og nýsköpunaraðilum aðgang að fjármögnun og samstarfi við aðila í Evrópu og víðar.
Af því tilefni efndu tíu samstarfsríki til hringborðsumræðna í húsakynnum sendinefndar Sviss gagnvart ESB í Brussel 22. september sl. undir yfirskriftinni „Samstarfsaðild að framtíðaráætlunum ESB – lykill að öflugri rannsóknum, nýsköpun og samkeppnishæfni Evrópu“. Ríkin tíu voru Ástralía, Bretland, Færeyjar, Ísland, Japan, Kanada, Noregur, Nýja-Sjáland, Suður-Kórea og Sviss. Fulltrúar framkvæmdastjórnar ESB, Evrópuþingsins og einstakra aðildarríkja tóku einnig þátt í umræðunum.
Samhliða fundinum var birt sameiginleg yfirlýsing, undirrituð af sendiherrum ríkjanna gagnvart ESB, um framtíð samstarfsaðildar að áætlunum ESB. Þar er lögð áhersla á að opið, fyrirsjáanlegt og stefnumiðað fyrirkomulag samstarfsaðildar geti styrkt rannsóknir og nýsköpun í Evrópu, aukið samkeppnishæfni álfunnar og styrkt stöðu hennar sem leiðandi afls á sviði tækni með því að tengja saman þekkingu, hæfileikafólk og nýsköpunargetu í Evrópu og víðar.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
- sameiginlegt álit EES/EFTA-ríkjanna um nýjar samstarfsáætlanir ESB
- opið samráð um undirbúning að þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum ESB 2028–2034
Evrópuþingið samþykkir samning um þátttöku Íslands í gervihnattaáætlunum ESB
Evrópuþingið veitti 16. september sl. samþykki sitt fyrir samningi Íslands og ESB um þátttöku Íslands annars vegar í GOVSATCOM-hluta geimáætlunar ESB (e. Governmental Satellite Communications) og hins vegar í áætlun ESB um öruggar fjarskiptatengingar (e. Union Secure Connectivity Programme). Samningurinn var undirritaður 26. mars sl. og að loknu samþykki Evrópuþingsins stendur eftir formleg lokaafgreiðsla ráðs ESB.
GOVSATCOM tók til starfa í janúar sl. og samnýtir fyrirliggjandi gervihnattagetu til að veita stjórnvöldum, viðbragðsaðilum og öðrum opinberum notendum öruggar fjarskiptatengingar. Innan áætlunar ESB um öruggar fjarskiptatengingar er jafnframt unnið að uppbyggingu IRIS² (e. Infrastructure for Resilience, Interconnectivity and Security by Satellite), nýs evrópsks gervihnattakerfis sem á að auka og styrkja þessa getu. Í ágúst var ákveðið að hraða uppbyggingu kerfisins og auka umfang þess.
Samningurinn veitir Íslandi aðgang að öruggri gervihnattafjarskiptaþjónustu GOVSATCOM og síðar opinberri fjarskiptaþjónustu sem byggir á IRIS². Íslensk stjórnvöld munu ákveða hvaða notendur innanlands fá aðgang að þjónustunni og jafnframt verður unnt að leggja kerfunum til gervihnattagetu, jarðstöðvar eða aðra aðstöðu. Ísland fær einnig áheyrnaraðild að nefndum og vinnuhópum sem fjalla um framkvæmd áætlananna.
Samningurinn hefur jafnframt sérstaka þýðingu fyrir Ísland vegna möguleika á frekari uppbyggingu innviða áætlunarinnar til að bæta öruggar fjarskiptatengingar á norðurslóðum. Þátttaka Íslands í slíkri uppbyggingu yrði valkvæð, en nánari útfærsla og fjármögnun háð ákvörðun sameiginlegrar nefndar sem starfar á grundvelli samningsins.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
- undirritun samninga um aðild Íslands að áætlunum ESB um örugg fjarskipti
- samkomulag um þátttöku Íslands í áætlunum ESB um fjarskipti um gervihnetti
- viðræður um þátttöku Íslands í áætlunum ESB um fjarskipti um gervihnetti
- áætlun ESB um öryggisfjarskiptakerfi um gervihnetti
Löggjafartillögur um frjálsa för vinnuafls
Framkvæmdastjórn ESB kynnti 15. september sl. aðgerðir til að auðvelda frjálsa för launafólks innan innri markaðarins undir heitinu Fair Labour Mobility Package og lagði samhliða fram fimm löggjafartillögur. Markmiðið er að auðvelda fólki að nýta rétt sinn til frjálsrar farar vegna atvinnu innan innri markaðarins, tryggja betur réttindi launafólks sem nýtir þann rétt og draga úr stjórnsýslubyrði við ráðningar og veitingu þjónustu milli ríkja. Aðgerðunum er jafnframt ætlað að auðvelda fyrirtækjum að ráða starfsfólk yfir landamæri til að mæta skorti á vinnuafli og sérhæfðri þekkingu í einstökum atvinnugreinum og ríkjum innan innri markaðarins.
Löggjafartillögurnar varða meðal annars stafræna útgáfu og sannprófun almannatryggingaskjala, svo sem A1-vottorða og evrópska sjúkratryggingakortsins, með nýrri stafrænni lausn, European Social Security Pass (ESSPASS). Þá er lagt til að Vinnumálastofnun Evrópu (ELA) fái auknar heimildir til að efla eftirlit og samstarf stjórnvalda og bæta úrlausn ágreiningsmála milli ríkja. Tillaga að reglugerð, Skills Portability Act, miðar að því að auðvelda einstaklingum að staðfesta menntun sína og faglega hæfni þegar þeir vilja starfa í öðru ríki innan innri markaðarins, meðal annars með samræmdri framsetningu stafrænna upplýsinga og einfaldari sannprófun þeirra. Jafnframt eru lagðar til breytingar á reglum sem gilda um viðurkenningu menntunar og starfsréttinda í lögvernduðum starfsgreinum þegar einstaklingar flytjast milli ríkja innan innri markaðarins, auk nýrra reglna um mat á menntun og faglegri hæfni sem aflað hefur verið utan ESB.
Allar fimm löggjafartillögurnar varða með beinum hætti frjálsa för launafólks innan innri markaðarins og verða teknar til skoðunar á vettvangi EES/EFTA-ríkjanna með tilliti til upptöku í EES-samninginn.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
- stafræna samræmingu almannatryggingakerfa og ESSPASS
- aðgerðapakka um aukna færni vinnuafls og viðurkenningu á menntun og hæfni frá þriðju ríkjum
- viðurkenningu á faglegri menntun og hæfni og aukinn flytjanleika hennar á innri markaðnum
Löggjafartillaga um öruggara og ábyrgara stafrænt umhverfi fyrir börn
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði 17. september sl. fram tillögu að reglugerð um öruggara og ábyrgara stafrænt umhverfi fyrir börn (e. EU KIDS Act – Keeping Internet Digital Spaces Accountable and Trustworthy), sbr. einnig orðsendingu framkvæmdastjórnarinnar sem fylgdi tillögunni. Markmið tillögunnar er að styrkja vernd barna og ungmenna á netinu, bæði með aldurstakmörkunum og auknum kröfum til stafrænnar þjónustu sem börn nota.
Samkvæmt tillögunni verður börnum yngri en 13 ára óheimilt að stofna eigin aðgang að samfélagsmiðlum. Börn á aldrinum 13–14 ára geta fengið takmarkaðan aðgang undir stjórn foreldris eða forráðamanns en frá 15 ára aldri verður börnum heimilt að stofna eigin aðgang að samfélagsmiðlum. Gert er ráð fyrir að aldur barna verði staðfestur með persónuverndarmiðuðum lausnum, m.a. evrópsku aldursstaðfestingarappi og síðar evrópska stafræna auðkennisveskinu (e. European Digital Identity Wallet).
Tillagan nær jafnframt til hönnunar stafrænnar þjónustu sem börn nota, svo sem samfélagsmiðla, myndbandsveitna, tölvuleikja og gervigreindarspjallmenna. Lagt er til að takmarka hönnun sem ýtir undir óhóflega eða ávanabindandi notkun, styrkja sjálfgefnar öryggisstillingar, takmarka möguleika ókunnugra á að hafa samband við börn og takmarka hönnunareiginleika sem hvetja börn til óhóflegrar eyðslu. Framkvæmd og eftirlit munu að hluta byggja á reglum og eftirlitsúrræðum sem þegar gilda samkvæmt reglugerð ESB um stafræna þjónustu (e. Digital Services Act – DSA) og reglugerð ESB um gervigreind (e. AI Act). Fyrir stærstu netþjónusturnar er jafnframt gert ráð fyrir að þær þurfi sjálfar að sýna fram á að þjónusta þeirra uppfylli kröfur um öryggi barna.
Framkvæmdastjórn ESB merkir tillöguna ekki EES-tæka en EES/EFTA-ríkin meta sjálfstætt EES-þýðingu hennar og hvort tilefni sé til upptöku hennar í EES-samninginn.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
- öryggi barna á netinu og tillögur sérfræðihóps um aldurstakmarkanir og aldursstaðfestingu
- reglugerð ESB um stafræna þjónustu (DSA)
- evrópska stafræna auðkennisveskið
ESB kynnir flokkunarkerfi um orkunýtni og sjálfbærni gagnavera
Framkvæmdastjórn ESB samþykkti 21. september sl. framselda reglugerð um matskerfi fyrir gagnaver út frá orkunýtni og skyldum þáttum. Tilgangur matskerfisins er að tryggja að fyrir liggi skýrar og aðgengilegar upplýsingar um orku- og vatnsnotkun gagnavera með uppsett upplýsingatækniafl að minnsta kosti 500 kW. Samhliða kallaði framkvæmdastjórnin eftir samráði um viðmið um lágmarksárangur (e. minimum performance standards) gagnavera, sem er opið fyrir innsendum athugasemdum til 14. desember nk.
Gagnaversgeirinn vex ört í Evrópu og á heimsvísu. Árið 2024 notuðu gagnaver 68 Terawattstundir (tWh) af raforku, en sú notkun er talin munu vaxa upp í 114 tWh árið 2030 og nýta þá um 3,2% af raforkueftirspurn í ESB, að því er segir í minnisblaði framkvæmdastjórnar ESB með reglugerðinni. Það er áskorun að mæta stóraukinni raforkuþörf gagnavera, sem þurfa verulegt magn af vatni til kælingar að auki. Miklu skiptir að byggja upp gagnaver þannig að þau styrki dreifikerfi rafmagns og nýti affallshita vel; ef hægt væri að nýta um 50% af affallshita gagnavera mætti hita upp fjórar milljónir heimila í ESB.
Reglugerðin setur ekki beinar kröfur til gagnavera varðandi orkunýtni, vatnsnotkun eða aðra þætti, en setur upp flokkunar- og matskerfi varðandi þessa o.fl. þætti, svo hægt sé að fá samræmdar og samanburðarhæfar upplýsingar, sjá dæmi um framúrskarandi árangur og skapa hvata til að gera betur. Reglugerðin byggir á endurskoðaðri tilskipun ESB um orkunýtni (EU) 2023/1791 (e. Energy Efficiency Directive, EED), sem er merkt EES-tæk en hefur ekki enn verið tekin upp í EES-samninginn. Ákvörðun um upptöku eldri orkunýtnitilskipunar ESB, 2012/27/ESB, í EES-samninginn var samþykkt í sameiginlegu EES-nefndinni árið 2025 en hefur ekki enn tekið gildi. Til stendur að innleiða tilskipunina í íslenskan rétt með frumvarpi til laga um orkunýtni (sjá skjöl um áform um lagasetningu í samráðsgátt íslenskra stjórnvalda, ásamt umsögnum). Þess má geta að um 3% af raforkunotkun á Íslandi fer nú til gagnavera.
Framkvæmdastjórnin undirbýr jafnframt tillögu um möguleg viðmið um lágmarksárangur gagnavera (e. minimum performance standards). Gert er ráð fyrir að löggjafartillaga verði lögð fram á öðrum ársfjórðungi 2027, en í yfirstandandi samráði er meðal annars óskað eftir sjónarmiðum um hvort slík viðmið eigi að setja og hvernig þau skuli útfærð. Auk opins samráðs í samráðsgátt ESB (e. Have Your Say) til 14. desember nk. verður haft sértækt samráð við haghafa, m.a. á vettvangi sérfræðinganefndar ESB um orkunýtni.
Opin samráð hjá framkvæmdastjórn ESB
Hér er yfirlit yfir opið samráð sem kann að hafa þýðingu fyrir Ísland. Yfirlitið tekur bæði til samráðs í vefgátt framkvæmdastjórnar ESB (e. Have Your Say) og annars opins samráðs sem framkvæmdastjórnin stendur fyrir.
New genomic techniques – information requirements and verification of category 1 status / Category 2 plants and their products
Samráðið varðar reglur um upplýsingakröfur, staðfestingu og leyfisumsóknir samkvæmt nýrri reglugerð um nýja erfðatækni í plöntum.
Frestur til 28. september
European Health Data Space – technical requirements for HealthData@EU
Samráðið varðar tæknilegar reglur um HealthData@EU innan evrópska heilbrigðisgagnarýmisins (EHDS).
Frestur til 29. september
Food safety – cereulide toxin in infant formulae
Samráðið varðar hámarksgildi cereulide-eiturs í ungbarnablöndum og skyldum vörum.
Frestur til 29. september
Samráðið varðar fyrirhugaða löggjöf um starfsskilyrði, vinnuvernd og réttindi launafólks, m.a. notkun reiknirita og gervigreindar á vinnustöðum, undirverktöku og breytingar á vinnumarkaði.
Frestur til 29. september
Markets in Crypto-Assets Regulation (MiCA) – review
Samráðið varðar endurskoðun MiCA-reglugerðarinnar og mögulegar breytingar á regluverkinu.
Frestur til 30. september
Regional State aid Guidelines – amendment
Samráðið varðar breytingar á viðmiðunarreglum um byggðaaðstoð og ný byggðaaðstoðarkort fyrir tímabilið 2028–2034.
Frestur til 30. september
Housing Simplification Package
Samráðið varðar einföldun ESB-reglna og stjórnsýslu á sviði húsnæðismála, m.a. með það að markmiði að auðvelda uppbyggingu og auka framboð húsnæðis.
Frestur til 30. september
EU Steel Regulation – first product scope review
Samráðið varðar endurskoðun á því hvaða stálvörur falla undir nýtt verndarkerfi ESB vegna umframframleiðslu á heimsvísu.
Frestur til 30. september
Fresh meat from domestic mammals – storage conditions before freezing
Samráðið varðar breytingar á reglum um geymslu og frystingu fersks kjöts samkvæmt reglugerð (EB) nr. 853/2004.
Frestur til 5. október
Revision of Schengen short-stay visa procedures (recast)
Samráðið varðar endurskoðun á reglum um vegabréfsáritanir vegna skammdvalar á Schengen-svæðinu.
Frestur til 6. október
Energy-efficient product legislation – Omnibus simplification
Samráðið varðar einföldun reglna um orku- og hjólbarðamerkingar og aukna notkun stafrænna lausna.
Frestur til 15. október
Dual-Use Regulation – overall evaluation
Samráðið varðar mat á reglum ESB um útflutning, miðlun og flutning vara og tækni sem geta nýst bæði til borgaralegra og hernaðarlegra nota.
Frestur til 15. október
European Partnerships under Horizon Europe 2028–2034
Samráðið varðar framtíð evrópskra samstarfsverkefna innan Horizon Europe fyrir tímabilið 2028–2034, m.a. sameiginleg fyrirtæki (e. Joint Undertakings) og samstarfsverkefni á grundvelli 185. gr. sáttmálans um starfshætti ESB.
Frestur til 16. október
EU emissions trading system – review
Samráðið varðar endurskoðun ETS-regluverksins, m.a. breytingar á viðmiðunargildum og einföldun vöktunar og skýrslugjafar í siglingum.
Frestur til 3. nóvember
Balanced Approach Regulation – airport noise
Samráðið varðar mat á reglum um hávaðavarnir og rekstrartakmarkanir á flugvöllum.
Frestur til 19. nóvember
EU public procurement rules – revision
Samráðið varðar heildarendurskoðun reglna ESB um opinber innkaup og sérleyfissamninga.
Frestur til 19. nóvember
International Procurement Instrument – review
Samráðið varðar fyrstu endurskoðun International Procurement Instrument, m.a. aðgang fyrirtækja að opinberum innkaupamörkuðum.
Frestur til 1. desember
Territorial supply constraints in the Single Market
Samráðið varðar mögulegar aðgerðir gegn takmörkunum framleiðenda á því hvar smásalar og heildsalar geta keypt vörur innan innri markaðarins.
Frestur til 4. desember
Data centres in Europe – minimum performance standards
Samráðið varðar lágmarksviðmið um orkunýtni og umhverfisframmistöðu gagnavera.
Frestur til 14. desember
***
Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.
Ritstjóri: Sigurður Örn Guðleifsson, sendiráðunautur.
Ábyrgðarmaður: Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra.
Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar á netfangið [email protected].
Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].