Starfsáætlun framkvæmdastjórnar ESB fyrir árið 2027, fundur EES-ráðsins, leiðtogafundur Evrópuríkja í Dublin o.fl.
Í Vaktinni að þessu sinni:
- Starfsáætlun framkvæmdastjórnar ESB fyrir árið 2027 og skýrsla um einföldun regluverks
- Fundur EES-ráðsins í Brussel
- Leiðtogafundur Evrópuríkja í Dublin
- Stefna ESB um sjálfbæra ferðaþjónustu
- Aðgerðir ESB til að efla menntun og færni
- Ársskýrsla ESB um alþjóðlega vernd og fólksflutninga
- Löggjafartillögur um stafræna sanngirni og eflingu neytendaverndar
- Framvinda löggjafartillagna framkvæmdastjórnar ESB
- Af vettvangi dómstólanna
- Opið samráð framkvæmdastjórnar ESB
Starfsáætlun framkvæmdastjórnar ESB fyrir árið 2027 og skýrsla um einföldun regluverks
Hinn 4. nóvember sl. birti framkvæmdastjórn ESB starfsáætlun sína fyrir árið 2027 ásamt árlegri skýrslu um einföldun, innleiðingu og framfylgd regluverks. Í starfsáætluninni er greint frá því hvaða löggjafartillögur framkvæmdastjórnin hyggst leggja fram á næsta ári og hvaða stefnumál verða í forgrunni. Í skýrslunni, sem nær yfir tímabilið frá 1. ágúst 2025 til 31. júlí 2026, er fjallað um aðgerðir til að einfalda löggjöf ESB og hvernig framkvæmd hennar hefur gengið í aðildarríkjunum.
Í starfsáætluninni eru tilgreind 23 ný áherslumál á sviði löggjafar og stefnumótunar. Áhersla er lögð á að efla samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs, styrkja varnir og öryggi Evrópuríkja og bæta lífskjör íbúa. Meðal boðaðra aðgerða er að hraða leyfisveitingum, draga úr viðskiptahindrunum á innri markaðnum og einfalda reglur um bankastarfsemi, stafræn mál, samgöngur, orku og húsnæðisuppbyggingu. Þá er fyrirhugað að efla samstarf evrópskra háskóla og auðvelda fólki á vinnumarkaði að afla sér færni til að taka að sér ný störf í vaxandi atvinnugreinum. Einnig er stefnt að því að bæta aðgengi að umönnun á viðráðanlegu verði, nýta vatnsauðlindir betur og auka viðbúnað vegna hitabylgna. Jafnframt hvetur framkvæmdastjórnin Evrópuþingið og ráðherraráðið til að hraða afgreiðslu mikilvægra löggjafartillagna sem hún hefur þegar lagt fram.
Í skýrslunni sem fylgir starfsáætluninni lýsir framkvæmdastjórnin því hvernig reynslan af framkvæmd gildandi reglna nýtist við undirbúning tillagna um einföldun regluverks. Til að greina hvar þörf er á breytingum leitar hún bæði til þeirra sem þurfa að fylgja reglunum og þeirra sem sjá um framkvæmd þeirra. Hver framkvæmdastjóri heldur reglulega samráðsfundi um framkvæmd regluverks (e. implementation dialogues) með fulltrúum fyrirtækja, stjórnvalda aðildarríkjanna, aðila vinnumarkaðarins og félagasamtaka. Á fundunum er meðal annars farið yfir hvaða reglur á málefnasviði viðkomandi framkvæmdastjóra hafa reynst óskýrar, íþyngjandi eða erfiðar í framkvæmd. Framkvæmdastjórnin leitar einnig beint til fólks sem vinnur með einstakar reglur ESB í daglegum störfum sínum (e. reality checks). Markmiðið er að greina hvaða vandkvæði koma upp þegar uppfylla þarf kröfur reglnanna eða beita þeim í einstökum málum og kanna leiðir til úrbóta. Hver framkvæmdastjóri tekur saman niðurstöður þessa samráðs í árlegri skýrslu um sitt málefnasvið og kynnir hana fyrir nefndum Evrópuþingsins og ráðherraráðinu. Helstu niðurstöður úr skýrslum framkvæmdastjóranna eru birtar í einföldunarskýrslu framkvæmdastjórnarinnar og nýtast við undirbúning tillagna um einföldun regluverks í næstu starfsáætlun.
Starfsáætlunin fyrir árið 2027 er ein meginforsenda þeirrar uppfærslu sem nú stendur yfir á forgangslista vegna hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB. Við þá uppfærslu er farið yfir þau mál sem boðuð eru í starfsáætluninni og metið hvort Ísland eigi almennra eða sérstakra hagsmuna að gæta í hverju máli. Með því er lagður grunnur að því hvaða mál skuli setja í forgang við hagsmunagæslu Íslands á næsta ári.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
Fundur EES-ráðsins í Brussel
EES-ráðið kom saman til 63. fundar síns í Brussel 17. nóvember sl. Ráðið er samráðsvettvangur EFTA-ríkjanna innan EES og Evrópusambandsins um framkvæmd og þróun EES-samningsins og kemur saman tvisvar á ári. Sabine Monauni, varaforsætisráðherra og utanríkisráðherra Liechtenstein, stýrði fundinum en Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, sótti hann fyrir hönd Íslands. Helstu umræðuefni fundarins voru framkvæmd EES-samningsins og hvernig nýta megi stafræna tækni til að efla samkeppnishæfni og hagvöxt á innri markaðnum.
Af Íslands hálfu var sérstaklega fjallað um áhrif viðskiptaráðstafana ESB á EFTA-ríkin innan EES. Í frétt utanríkisráðuneytisins um fundinn kemur fram að ráðuneytisstjóri hafi lagt áherslu á að viðbrögð við breyttum aðstæðum í alþjóðaviðskiptum megi ekki skapa hindranir í viðskiptum milli ríkja á innri markaðnum. Hann ítrekaði andstöðu Íslands við verndarráðstafanir ESB vegna innflutnings á járnblendi og lagði áherslu á að við endurskoðun þeirra ráðstafana yrði tekið tillit til sjónarmiða EFTA-ríkjanna innan EES.
Í niðurstöðum fundarins lagði EES-ráðið áherslu á að hraða upptöku ESB-gerða í EES-samninginn svo að sömu reglur gildi á innri markaðnum á hverjum tíma. Samkvæmt framvinduskýrslu sameiginlegu EES-nefndarinnar biðu 585 gerðir upptöku í samninginn í lok september. Í umfjöllun sinni um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (e. EU Emissions Trading System, ETS) vísaði ráðið til fyrirhugaðs mats á flugsamgöngum til og frá eyjum og afskekktum svæðum. Samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar frá 2023 á sérstaklega að meta áhrif kerfisins á flugsamgöngur til og frá Íslandi og taka mið af niðurstöðunum við endurskoðun reglna um losunarheimildir í flugi.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
Leiðtogafundur Evrópuríkja í Dublin
Hinn 12. nóvember sl. fór fram níundi leiðtogafundur hins pólitíska bandalags Evrópuríkja (e. European Political Community, EPC) í Dublin á Írlandi. Frá árinu 2022 hafa leiðtogar Evrópuríkja innan og utan ESB komið saman á þessum vettvangi til óformlegs samráðs um sameiginleg hagsmunamál. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sótti fundinn fyrir hönd Íslands.
Yfirskrift fundarins var Sterk, örugg og samtengd Evrópa. Stríð Rússlands gegn Úkraínu og öryggi Evrópu voru í forgrunni umræðna. Leiðtogarnir ræddu einnig samkeppnishæfni Evrópu, nýsköpun og nánara samstarf í orkumálum. Þá fjölluðu þeir um hvernig ríkin gætu brugðist sameiginlega við fjölþáttaógnum og tilraunum til að grafa undan lýðræði.
Í tengslum við fundinn lýsti 41 leiðtogi, þar á meðal Kristrún Frostadóttir, stuðningi við sameiginlega yfirlýsingu um ólöglega fólksflutninga til Evrópu og milli ríkja álfunnar að frumkvæði Bretlands, Danmerkur og Ítalíu. Þar er lögð áhersla á að landamærayfirvöld geti nýtt viðvörunarkerfi til að sjá fyrir hvar vænta megi aukinnar umferðar farandfólks yfir landamæri og undirbúa viðbrögð sín í tæka tíð. Í yfirlýsingunni er jafnframt hvatt til þess að lögreglu- og landamærayfirvöld í Evrópuríkjum skiptist með skipulegri hætti á upplýsingum um glæpahópa sem skipuleggja ólöglegar ferðir fólks yfir landamæri gegn greiðslu. Loks er í yfirlýsingunni lögð áhersla á samstarf við upprunaríki farandfólks og þau ríki sem það fer um á leið til Evrópu.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
Stefna ESB um sjálfbæra ferðaþjónustu
Stefna um sjálfbæra ferðaþjónustu var kynnt af hálfu framkvæmdastjórnar ESB 4. nóvember sl. Markmið stefnunnar er að auka samkeppnishæfni og sjálfbærni ferðaþjónustu innan ESB, efla viðnámsþrótt greinarinnar og styrkja stöðu Evrópu sem leiðandi áfangastaðar ferðamanna. Í stefnunni er lögð áhersla á gæði og verðmætasköpun fremur en fjölgun ferðamanna eina og sér, tillit til nærsamfélaga og langtímaávinning fyrir bæði íbúa og gesti á áfangastöðum innan ESB. Jafnframt er stefnt að því að efnahagslegur og samfélagslegur ávinningur af ferðaþjónustu dreifist betur milli svæða og byggðarlaga innan ESB.
Ferðaþjónusta er ein af mikilvægari atvinnugreinum innan ESB. Samkvæmt upplýsingum framkvæmdastjórnarinnar má rekja um 10% af verðmætasköpun innan ESB til ferðaþjónustu og í greininni starfa meira en 20 milljónir manna. Árið 2025 tóku aðildarríki ESB á móti tæplega 40% allra erlendra ferðamanna á heimsvísu. Greinin stendur þó frammi fyrir áskorunum á borð við loftslagsbreytingar, skort á starfsfólki, aukna alþjóðlega samkeppni, álag á fjölsótta ferðamannastaði innan sambandsins og stjórnsýslubyrði.
Ein af megináherslum stefnunnar er að stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna milli svæða og yfir árið. Í því skyni er fyrirhugað að móta sameiginleg viðmið um stjórnun ferðamannastaða (e. EU Model for Tourism Management) og útbúa verkfærakistu með hagnýtum úrræðum til að laga fjölda gesta að því sem hver áfangastaður ræður við á hverjum tíma (e. EU Toolbox for Balanced Tourism). Þá verður komið á fót sérstöku samráði um ferðaþjónustu skemmtiferðaskipa og áhrif hennar á áfangastaði innan sambandsins (e. Cruise Cooperation Dialogue).
Stefnan felur einnig í sér aukinn stuðning við lítil og meðalstór fyrirtæki, meðal annars með bættu aðgengi að stafrænum lausnum og gögnum, stuðningi við nýsköpun og aðgerðum til að draga úr óþarfa stjórnsýslubyrði. Áformað er að koma á fót evrópskum fræðsluvettvangi um ferðaþjónustu (e. EU Tourism Academy) og evrópskri ferðaþjónustuvakt (e. EU Tourism Observatory), sem fylgist með þróun greinarinnar og veitir stjórnvöldum upplýsingar sem nýtast við stefnumótun. Jafnframt verður unnið áfram að uppbyggingu sameiginlegs evrópsks gagnarýmis fyrir ferðaþjónustu sem auðveldar fyrirtækjum og stjórnvöldum að deila gögnum og nýta þau við skipulag ferðaþjónustu (e. Common European Tourism Data Space).
Til að efla viðbúnað og viðbragðsgetu ferðaþjónustunnar gagnvart áföllum verður komið á fót samhæfingarneti ESB um viðbrögð við áföllum í ferðaþjónustu (e. EU Tourism Crisis Coordination Network). Netinu er ætlað að auðvelda upplýsingaskipti og samhæfingu viðbragða, meðal annars vegna átaka og óstöðugleika í alþjóðamálum, lýðheilsuógna og loftslagstengdra hamfara. Loks verður stofnaður samstarfsvettvangur um framkvæmd stefnunnar (e. EU Tourism Alliance), þar sem framkvæmdastjórnin, stjórnvöld aðildarríkjanna, svæðisbundin og staðbundin stjórnvöld, fyrirtæki og aðrir hagsmunaaðilar starfa saman að því að fylgja aðgerðum stefnunnar eftir.
Áherslur stefnunnar falla að ýmsum markmiðum íslenskrar ferðamálastefnu til 2030, meðal annars um sjálfbærni, verðmætasköpun, jafnari dreifingu ferðamanna yfir árið og um landið og jafnvægi milli nýtingar og verndar náttúru. Fyrir íslenska ferðaþjónustu getur því verið gagnlegt að fylgjast með framkvæmd stefnunnar, til dæmis varðandi stjórnun áfangastaða, samráð um áhrif skemmtiferðaskipa á ferðamannastaði og undirbúning viðbragða við áföllum.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
Aðgerðir ESB til að efla menntun og færni
Hinn 5. nóvember sl. kynnti framkvæmdastjórn ESB aðgerðir á sviði menntunar og færni (e. Education and Skills Package). Aðgerðirnar eru hluti af færniátaki ESB (e. Union of Skills) og með þeim er stefnt að því að efla grunnfærni nemenda, bregðast við kennaraskorti, laga starfsmenntun betur að breyttum þörfum vinnumarkaðarins og stuðla að öruggri og markvissri notkun stafrænnar tækni og gervigreindar í námi og kennslu.
Meðal aðgerðanna eru tvær tillögur að tilmælum ráðherraráðs ESB. Önnur miðar að því að efla grunnfærni nemenda, meðal annars með markvissari stuðningi við skóla. Hin miðar að því að gera kennarastarfið eftirsóknarverðara með bættum starfsskilyrðum og auknum tækifærum til starfsþróunar. Báðar tillögurnar fara nú til umfjöllunar hjá ráðherraráðinu. Frá og með árinu 2027 er gert ráð fyrir að Erasmus+ styrki samstarf skóla og skólayfirvalda yfir landamæri um að efla grunnfærni nemenda. Einnig er fyrirhugað að styrkja samstarf um kennaramenntun og starfsþróun, einkum fyrir nýja kennara og skólastjórnendur.
Á sviði starfsmenntunar hefur framkvæmdastjórnin samþykkt nýja evrópska stefnu um starfsmenntun. Í stefnunni er gert ráð fyrir nánara samstarfi fyrirtækja og starfsmenntastofnana, meðal annars um þróun stuttra og sveigjanlegra námsáfanga. Einnig er stefnt að því að auðvelda nemendum í starfsnámi að taka hluta starfsþjálfunar sinnar á vinnustað erlendis.
Aðgerðir á sviði stafrænnar menntunar miða að því að kennarar geti nýtt gervigreind í kennslu og nemendur læri að meta hvenær og hvernig rétt sé að nota hana. Í því skyni hefur framkvæmdastjórnin komið á fót evrópsku samstarfi um stafræna innviði í menntun (e. European Digital Infrastructure Consortium on Education, EDU-EDIC). Á þeim vettvangi munu þátttökuríki þróa traustar stafrænar lausnir fyrir skóla, auðvelda örugg gagnaskipti milli menntastofnana og standa vörð um persónuupplýsingar nemenda. Loks hyggst framkvæmdastjórnin leggja fram leiðbeiningar fyrir skóla, foreldra og nemendur um hvernig bregðast megi við skaðlegu efni á netinu og hvernig heimili og skólar geti í sameiningu mótað venjur um skjánotkun.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
Ársskýrsla ESB um alþjóðlega vernd og fólksflutninga
Hinn 6. nóvember sl. birti framkvæmdastjórn ESB ársskýrslu um alþjóðlega vernd og fólksflutninga. Með birtingu hennar hófst í annað sinn árleg fólksflutningastjórnunarlota (e. Annual Migration Management Cycle) samkvæmt verndarsamkomulagi ESB, sem kom að fullu til framkvæmda 12. júní sl. Í skýrslunni er fjallað um komu flótta- og farandfólks, móttöku þess og meðferð umsókna um alþjóðlega vernd frá júlí 2025 til júní 2026. Þar er einnig metið hvers megi vænta árið 2027. Á grundvelli skýrslunnar hefur framkvæmdastjórnin metið hvaða aðildarríki búa við mest álag og lagt fram tillögu um árlegan samábyrgðarsjóð (e. Annual Solidarity Pool) til stuðnings þeim árið 2027. Ráðherraráð ESB ákveður fyrir árslok umfang sjóðsins og staðfestir framlög einstakra aðildarríkja.
Samkvæmt skýrslunni hefur staða alþjóðlegrar verndar og fólksflutninga innan ESB almennt batnað. Ólöglegum komum flótta- og farandfólks til ESB hefur fækkað og færri hafa sótt um alþjóðlega vernd. Jafnframt hefur dregið úr því að umsækjendur um alþjóðlega vernd ferðist án heimildar milli aðildarríkja (e. unauthorised secondary movements) og fleiri hafa snúið aftur til ríkja utan ESB. Framkvæmdastjórnin bendir þó á að enn þurfi að bæta framkvæmd reglna um hvaða aðildarríki beri ábyrgð á meðferð mála þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd.
Að þessu sinni telur framkvæmdastjórnin að Grikkland, Spánn, Kýpur og Ítalía séu undir álagi vegna fólksflutninga (e. migratory pressure). Þessi ríki eiga því kost á stuðningi úr samábyrgðarsjóðnum. Stuðningurinn getur meðal annars falist í því að önnur aðildarríki taki við umsækjendum um alþjóðlega vernd og annist meðferð umsókna þeirra (e. relocation). Þau geta einnig veitt bein fjárframlög, sent sérfræðinga til aðildarríkja sem þurfa aðstoð við móttöku umsækjenda eða meðferð umsókna þeirra, eða stutt við uppbyggingu innviða þar. Þá telur framkvæmdastjórnin að hætta sé á álagi vegna fólksflutninga (e. risk of migratory pressure) í Belgíu, Tékklandi, Þýskalandi, Eistlandi, Írlandi, Frakklandi, Króatíu, Lettlandi, Litháen, Lúxemborg, Hollandi, Póllandi, Rúmeníu, Slóveníu og Finnlandi. Þessi ríki fá því forgang að tilteknum fjárhagslegum og rekstrarlegum stuðningsúrræðum ESB á sviði fólksflutningamála. Loks eru Búlgaría, Tékkland, Eistland, Króatía, Austurríki og Pólland talin standa frammi fyrir verulegum vanda á þessu sviði (e. significant migratory situation) vegna uppsafnaðs álags undanfarinna fimm ára. Þau geta því óskað eftir því að framlög þeirra í samábyrgðarsjóð næsta árs verði felld niður að fullu eða að hluta.
Þátttaka Íslands í verndarsamkomulaginu byggist á Schengen-samstarfinu og samningi Íslands og Noregs við ESB um þátttöku þeirra í Dyflinnar- og Eurodac-samstarfinu. Dyflinnarsamstarfið tekur til reglna um hvaða ríki ber ábyrgð á meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd. Eurodac (e. European Asylum Dactyloscopy Database) er evrópskur gagnagrunnur sem nýtist við framkvæmd reglna um alþjóðlega vernd og fólksflutninga. Íslandi er þó ekki skylt að leggja sitt af mörkum til árlegs samábyrgðarsjóðs ESB, enda fellur sjóðurinn utan skuldbindinga Íslands samkvæmt þessu samstarfi.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
Löggjafartillögur um stafræna sanngirni og eflingu neytendaverndar
Hinn 11. nóvember sl. kynnti framkvæmdastjórn ESB tvær reglugerðartillögur á sviði neytendaverndar. Annars vegar er um að ræða tillögu um stafræna sanngirni (e. Digital Fairness Act), sem miðar að því að vernda neytendur gegn óréttmætum viðskiptaháttum, einkum á netinu. Hins vegar er lagt til að endurskoða reglugerð um samstarf á sviði neytendaverndar (e. Consumer Protection Cooperation Regulation) til að efla eftirlit með því að neytendaverndarreglum sé fylgt og auðvelda yfirvöldum að bregðast sameiginlega við brotum sem varða neytendur í fleiri en einu ríki. Tillögurnar eru hluti af stefnuáætlun ESB í neytendamálum til ársins 2030 (e. 2030 Consumer Agenda).
Samkvæmt tillögunni um stafræna sanngirni er lagt til að reglugerð komi í stað tilskipunar um óréttmæta viðskiptahætti. Reglugerðin byggi á gildandi ákvæðum tilskipunarinnar en við bætist ákvæði um stafræna viðskiptahætti. Meðal annars verði bannað að beita blekkjandi hönnun (e. dark patterns), svo sem fölskum tilkynningum um að vara sé að seljast upp, og skylt verði að sýna heildarverð frá upphafi. Neytendum verði auðveldað að segja upp samningum og áskriftum á netinu og þeir geti slökkt á sjálfvirkri spilun myndskeiða og öðrum stillingum sem ýta undir ofnotkun. Þá verði gerðar skýrari kröfur um að áhrifavaldar auðkenni auglýsingaefni og settar takmarkanir á ósanngjarna persónusniðna markaðssetningu og verðlagningu. Sérstök áhersla er lögð á vernd barna. Í tölvuleikjum verði til dæmis óheimilt að gera greiðslur að skilyrði fyrir því að börn nái árangri í leiknum.
Hin tillagan fjallar um hvernig yfirvöld framfylgja reglum um neytendavernd. Í dag er það fyrst og fremst hlutverk stjórnvalda í hverju aðildarríki að rannsaka brot á reglunum og beita viðurlögum. Lagt er til að framkvæmdastjórnin fái sjálf heimild til að rannsaka umfangsmikil brot sem hafa veruleg áhrif á neytendur á innri markaðnum og leggja á sektir. Jafnframt verði samstarf neytendayfirvalda aðildarríkjanna eflt og meðferð mála sem varða fleiri en eitt ríki hraðað. Þannig verði auðveldara að bregðast við brotum fyrirtækja sem starfa í mörgum ríkjum á innri markaðnum, svo sem stórra netverslana.
Framkvæmdastjórnin telur að báðar reglugerðartillögurnar varði Evrópska efnahagssvæðið. Þær fara nú til meðferðar hjá Evrópuþinginu og ráðherraráði ESB. Verði reglugerðirnar samþykktar og teknar upp í EES-samninginn má ætla að gera þurfi breytingar á íslenskri neytendaverndarlöggjöf.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
Framvinda löggjafartillagna framkvæmdastjórnar ESB
Hér er yfirlit yfir framvindu valinna löggjafartillagna framkvæmdastjórnar ESB í meðförum Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB dagana 5.–18. nóvember. Tillögurnar kunna að hafa þýðingu fyrir Ísland og áður hefur verið fjallað um þær í Vaktinni.
Uppbygging raforkuinnviða – pólitískt samkomulag um hraðari leyfisveitingar. Evrópuþingið og ráðherraráð ESB náðu 18. nóvember sl. pólitísku samkomulagi um tillögu að tilskipun sem ætlað er að stytta afgreiðslutíma leyfa vegna endurnýjanlegrar orku, flutnings- og dreifikerfa raforku og orkugeymslu. Nánar um samkomulagið. Fyrri umfjöllun í Vaktinni, 19. desember 2025.
Endurgjaldslaus úthlutun losunarheimilda – pólitískt samkomulag um aukna úthlutun til orkufreks iðnaðar. Evrópuþingið og ráðherraráð ESB náðu 12. nóvember sl. pólitísku samkomulagi um endurgjaldslausa úthlutun losunarheimilda til iðngreina þar sem úthlutun miðast við hita- og eldsneytisnotkun. Samkomulagið nær til áranna 2026–2030 og gerir ráð fyrir að um 121 milljón losunarheimilda verði tiltæk til úthlutunar, samanborið við um 88 milljónir samkvæmt tillögu framkvæmdastjórnarinnar. Nánar um samkomulagið. Fyrri umfjöllun í Vaktinni, 6. nóvember 2026.
Hagskýrslugerð á sviði sjávarútvegs og fiskeldis – pólitískt samkomulag um einfaldari gagnaskil. Evrópuþingið og ráðherraráð ESB náðu 12. nóvember sl. pólitísku samkomulagi um tillögu að reglugerð sem leysir af hólmi fimm reglugerðir um hagskýrslur á sviði sjávarútvegs og fiskeldis. Hagstofa ESB (e. Eurostat) mun setja upp sameiginlega gagnagátt fyrir upplýsingar um meðal annars afla, landanir, fiskiskipaflotann og framleiðslu í fiskeldi. Með því að nýta betur gögn sem stjórnvöld safna nú þegar á að draga úr tvíverknaði við gagnaskil og gera tölur milli landa samanburðarhæfari. Nánar um samkomulagið.
Efnastofnun Evrópu – Evrópuþingið samþykkir samkomulag um rekstur og fjármögnun stofnunarinnar. Evrópuþingið samþykkti 12. nóvember sl. samkomulag sem náðist við ráðherraráð ESB í júní um nýja reglugerð um Efnastofnun Evrópu (e. European Chemicals Agency, ECHA). Með reglugerðinni fær starfsemi stofnunarinnar sjálfstæðan lagagrundvöll. EES/EFTA-ríkin munu áfram geta tilnefnt sérfræðinga til setu í vísindanefndum hennar. Nánar um afgreiðslu Evrópuþingsins. Fyrri umfjöllun í Vaktinni, 3. júlí 2026.
Mat á umhverfisáhrifum – þingnefnd leggur til 300 daga hámarksfrest. Hinn 11. nóvember sl. lagði umhverfisnefnd Evrópuþingsins fram álit sitt fyrir þingið um tillögu að reglugerð um hraðari málsmeðferð við umhverfismat. Nefndin leggur til að umhverfismati í heild verði lokið innan 300 daga, með heimild til að framlengja frestinn um allt að 60 daga í undantekningartilvikum. Hún vill jafnframt skýra hlutverk þess stjórnvalds sem annast samskipti við framkvæmdaraðila og gera kröfu um að fylgst sé með því hvort stjórnvöld sem annast matið hafi nægt starfsfólk og fjármagn. Nánar um tillögur þingnefndarinnar. Fyrri umfjöllun í Vaktinni, 23. október 2026.
Af vettvangi dómstólanna
Hér er yfirlit yfir valdar úrlausnir EFTA-dómstólsins og dómstóla Evrópusambandsins sem féllu dagana 5.–18. nóvember og kunna að hafa þýðingu fyrir Ísland.
Skýrslugjöf í umhverfismálum – dómur EFTA-dómstólsins í máli E-2/26. EFTA-dómstóllinn komst 10. nóvember sl. að þeirri niðurstöðu að Ísland hefði brotið gegn 7. gr. EES-samningsins með því að innleiða ekki að fullu reglugerð (ESB) 2019/1010 um samræmingu á skýrslugjöf í umhverfismálum. Dómstóllinn miðaði við stöðuna 10. nóvember 2025, þegar frestur til innleiðingar samkvæmt rökstuddu áliti Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) rann út. Í nóvember og byrjun desember 2025 tilkynntu íslensk stjórnvöld ESA um innleiðingu alls fjögurra greina reglugerðarinnar. Í maí 2026 var 6. gr. reglugerðarinnar innleidd með reglugerð nr. 486/2026, sem kveður meðal annars á um að Matvælastofnun birti árlega upplýsingar um notkun dýra í vísindaskyni. Samkvæmt EES-gagnagrunni Stjórnarráðsins hefur Ísland nú tilkynnt ESA um fulla innleiðingu ESB-reglugerðarinnar. Dómur EFTA-dómstólsins.
Aðgangur að neyðarþjónustu í gegnum neyðarnúmerið 112 – dómur EFTA-dómstólsins í máli E-7/26. Í dómi frá 10. nóvember sl. komst EFTA-dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að Ísland hefði brotið gegn 7. gr. EES-samningsins með því að innleiða ekki reglugerð (ESB) 2023/444 um aðgang að neyðarþjónustu í gegnum neyðarnúmerið 112. Reglugerðin fjallar meðal annars um áreiðanlegar upplýsingar um staðsetningu þess sem óskar aðstoðar og um jafngildan aðgang fatlaðs fólks að neyðarþjónustu. Frumvarp sem hefði veitt ráðherra heimild til að innleiða reglugerðina náði ekki fram að ganga á síðasta löggjafarþingi Alþingis en var lagt fram að nýju 29. október sl. Dómur EFTA-dómstólsins.
Örorkubætur og tryggingatímabil í fleiri en einu EES-ríki – ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins í máli E-1/26. Hinn 10. nóvember sl. svaraði EFTA-dómstóllinn spurningum Hæstaréttar Noregs um rétt til örorkubóta þegar umsækjandi hefur verið tryggður í fleiri en einu EES-ríki. Dómstóllinn taldi að við mat á bótarétti í Noregi bæri að leggja saman þau tímabil sem veittu réttindi vegna örorku samkvæmt löggjöf viðkomandi ríkja. Óheimilt væri að krefjast þess að tímabilin mynduðu eina óslitna heild. Ef norsk stjórnvöld efuðust um réttmæti vottorðs um tryggingatímabil bæri þeim að leita skýringa hjá stofnuninni sem gaf það út. Á Íslandi gilda sömu reglur um samlagningu tryggingatímabila samkvæmt reglugerð nr. 442/2012. Ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins.
Aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis – dómur Evrópudómstólsins í máli C-512/23. Hinn 12. nóvember sl. hafnaði Evrópudómstóllinn kröfu Póllands um ógildingu reglugerðar um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (e. Carbon Border Adjustment Mechanism, CBAM). Pólland taldi reglugerðina fyrst og fremst fela í sér skattlagningu og að því hefði þurft einróma samþykki ráðherraráðs ESB til að setja hana. Dómstóllinn taldi meginmarkmið kerfisins vera að draga úr hættu á að framleiðsla flyttist til ríkja með vægari losunarkröfur og hvetja framleiðendur utan ESB til að draga úr losun. Tekjur af sölu kolefnisvottorða væru afleiðing kerfisins og breyttu engu um heimild löggjafans til að setja reglugerðina á grundvelli ákvæða um umhverfismál. Á Alþingi hefur verið lagt fram frumvarp um innleiðingu reglugerðarinnar. Dómur Evrópudómstólsins.
Reykbragðefni í matvælum – dómur Almenna dómstóls Evrópusambandsins í máli T-523/24. Almenni dómstóll ESB hafnaði 11. nóvember sl. kröfu tveggja fyrirtækja um að ógilda ákvarðanir framkvæmdastjórnar ESB um að synja endurnýjun leyfa fyrir þremur reykbragðefnum. Matvælaöryggisstofnun Evrópu taldi að það magn sem neytendur fengju í sig með fæðunni gæti farið yfir öryggisviðmið stofnunarinnar. Dómstóllinn taldi að það væri umsækjanda að sýna fram á að notkun reykbragðefnanna stofnaði heilsu manna ekki í hættu. Hér á landi voru breytingar á skrá yfir leyfð reykbragðefni innleiddar með reglugerð nr. 333/2025. Aðlögunarfrestur til að setja á markað tiltekin matvæli sem innihalda efnin, meðal annars unninn fisk og fiskhrogn, er til 1. júlí 2029. Dómur Almenna dómstólsins.
Umbúðir þvottaefna sem líkjast matvælaumbúðum – dómur Evrópudómstólsins í máli C-395/25. Í dómi frá 5. nóvember sl. fjallaði Evrópudómstóllinn um þvottaefni sem sænskt fyrirtæki seldi í fernum með skrúftappa. Við mat á því hvort hætta væri á að fólk teldi umbúðirnar innihalda matvæli bæri að líta til heildarsvips þeirra og taka sérstaklega tillit til barna og annarra viðkvæmra hópa. Nægilegt væri að hættan á ruglingi væri meira en óveruleg. Eftirlitsstjórnvöld þyrftu því ekki að sýna fram á að neytandi hefði þegar villst á vörunum. Hér á landi hafa reglur ESB um umbúðir hættulegra efna verið innleiddar með reglugerð nr. 415/2014. Dómur Evrópudómstólsins.
Opið samráð framkvæmdastjórnar ESB
Hér er yfirlit yfir opið samráð sem kann að hafa þýðingu fyrir Ísland. Yfirlitið tekur bæði til samráðs í vefgátt framkvæmdastjórnar ESB (e. Have Your Say) og annars opins samráðs sem framkvæmdastjórnin stendur fyrir.
Clean energy – new EU hydrogen strategy
Samráðið varðar endurnýjun vetnisstefnu ESB. Meðal annars er leitað sjónarmiða um hvernig auka megi framleiðslu og notkun endurnýjanlegs vetnis og vetnis með litla kolefnislosun og bæta skilyrði til fjárfestinga á þessu sviði.
Frestur til 23. nóvember.
Jurisdiction rules and recognition and enforcement of judgments – Brussels Ia Regulation (review)
Samráðið varðar endurskoðun reglna um hvaða dómstólar hafa lögsögu í einkamálum sem tengjast fleiri en einu ríki og með hvaða skilyrðum dómur sem kveðinn er upp í einu ríki er viðurkenndur og fullnustaður í öðru.
Frestur til 24. nóvember.
Road transport – smart enforcement and simplification
Samráðið varðar einföldun reglna og eftirlit með flutningum á vegum, meðal annars rafræn flutningsskjöl, notkun ökurita og upplýsingaskipti eftirlitsstjórnvalda.
Frestur til 24. nóvember.
Atlantic Maritime and Macro-regional Strategy
Samráðið varðar undirbúning stefnu um samstarf ríkja og svæða við Atlantshaf, meðal annars um hafmál, öryggi, sjálfbærni og samkeppnishæfni.
Frestur til 26. nóvember.
Technical Measures Regulation – implementation
Leitað er eftir reynslu af reglum ESB um tæknilegar ráðstafanir við fiskveiðar, svo sem um veiðarfæri, möskvastærð og lokun veiðisvæða, og mati á því hvernig þær hafa nýst til að stuðla að sjálfbærum veiðum.
Frestur til 27. nóvember.
International Procurement Instrument – review
Samráðið varðar fyrstu endurskoðun reglna sem heimila ESB að bregðast við takmörkunum á aðgangi evrópskra fyrirtækja að opinberum innkaupum í ríkjum utan sambandsins.
Frestur til 1. desember.
Digital Services Act – advertising repository guidelines
Samráðið varðar fyrirhugaðar leiðbeiningar um auglýsingasöfn stærstu netvettvanga og leitarvéla. Markmiðið er að auðvelda almenningi að finna auglýsingar og sjá hver greiddi fyrir þær og að hvaða hópum þær beindust.
Frestur til 2. desember.
Child online safety – EU Kids Act
Óskað er eftir athugasemdum við tillögu að reglugerð um öryggi barna á netinu. Tillagan tekur meðal annars til aldurstakmarkana á samfélagsmiðlum, aldurssannprófunar og öryggis barna við hönnun stafrænnar þjónustu.
Frestur til 3. desember.
Single market – tackling unjustified territorial supply constraints
Samráðið varðar mögulegar aðgerðir gegn því að framleiðendur takmarki með ómálefnalegum hætti í hvaða löndum smásalar og heildsalar geta keypt vörur á innri markaðnum.
Frestur til 4. desember.
Óskað er eftir athugasemdum við tillögu að reglugerð sem á að auðvelda nýsköpunarfyrirtækjum að vaxa á innri markaðnum, meðal annars með betri aðgangi að fjármagni og mörkuðum.
Frestur til 7. desember.
Óskað er eftir athugasemdum við tillögu að reglugerð um húsnæði á viðráðanlegu verði. Hún tekur meðal annars til þess hvernig stjórnvöld geta afmarkað svæði þar sem húsnæðisvandi er mikill og sett skammtímaleigu skorður til að vernda framboð húsnæðis til langtímabúsetu.
Frestur til 10. desember.
Fair labour mobility package – European Social Security Pass (ESSPASS)
Óskað er eftir athugasemdum við tillögu að reglugerð um stafræna lausn sem á að auðvelda fólki að sýna fram á almannatryggingaréttindi sín í öðru landi og stjórnvöldum að sannreyna gögnin.
Frestur til 10. desember.
Strengthening and modernising the European Training Foundation
Samráðið varðar endurskoðun reglna um Evrópsku starfsmenntastofnunina, meðal annars í hvaða löndum hún skuli starfa og hvernig hún geti best stutt starfsmenntun og símenntun í samstarfsríkjum ESB.
Frestur framlengdur til 11. desember.
Data centres in Europe – minimum performance standards
Samráðið varðar fyrirhuguð lágmarksviðmið um orkunýtni gagnavera í Evrópu og önnur viðmið um umhverfisáhrif starfseminnar.
Frestur til 14. desember.
EU public procurement rules – revision
Óskað er eftir athugasemdum við tillögu að nýjum reglum um opinber innkaup og sérleyfi. Meðal annars er lagt til að einfalda útboðsferli, auka notkun stafrænna lausna og taka í auknum mæli mið af öryggi, umhverfisáhrifum og nýsköpun við innkaup.
Frestur til 24. desember.
Samráðið varðar endurskoðun á réttindum farþega til að koma betur til móts við fatlað fólk og fólk með skerta hreyfigetu. Það tekur til ferða með flugvélum, skipum, lestum og hópbifreiðum.
Frestur til 8. janúar 2027.
Plastic packaging containing biobased feedstock – EU rules
Leitað er eftir upplýsingum um tækniframfarir við framleiðslu plastumbúða úr lífrænu hráefni og umhverfisáhrif af notkun þess. Niðurstöðurnar eiga að nýtast við mat á því hvaða hlutverki slíkt hráefni geti gegnt samkvæmt reglum ESB um umbúðir og umbúðaúrgang.
Frestur til 13. janúar 2027.
Digital Fairness Act og Consumer protection – strengthened enforcement cooperation
Óskað er eftir athugasemdum við tvær tillögur um neytendavernd. Sú fyrri tekur meðal annars til villandi hönnunar á vefnum, markaðssetningar áhrifavalda og hindrana við uppsögn áskrifta. Sú síðari á að styrkja samstarf neytendayfirvalda þegar fyrirtæki brjóta gegn réttindum neytenda í fleiri en einu landi.
Frestur til 14. janúar 2027.
European climate resilience and risk management – integrated framework
Óskað er eftir athugasemdum við tillögu að reglugerð um viðnámsþrótt gagnvart loftslagsbreytingum. Meðal annars er lagt til að ríkin meti loftslagsáhættu reglulega og á sambærilegum forsendum svo að niðurstöðurnar nýtist við undirbúning aðlögunaraðgerða.
Frestur til 14. janúar 2027.
European Critical Communication System og Civil protection – creation of a European critical communication system
Óskað er eftir athugasemdum við tvær tillögur um sameiginlegt fjarskiptakerfi fyrir viðbragðsaðila. Kerfið á að gera lögreglu, slökkviliði og öðrum viðbragðsaðilum kleift að nota eigin fjarskiptabúnað í sameiginlegum aðgerðum yfir landamæri. Samstarfið nær einnig til Schengen-ríkja utan ESB.
Frestur til 14. janúar 2027.
Standardisation Regulation – revision
Óskað er eftir athugasemdum við tillögu að nýjum reglum um evrópska staðla. Meðal annars er stefnt að því að hraða gerð staðla, bæta aðgengi að þeim og auðvelda litlum og meðalstórum fyrirtækjum þátttöku í staðlastarfi.
Frestur til 14. janúar 2027.
Corporate sustainability reporting – limited assurance standards
Samráðið varðar væntanlegan staðal um staðfestingu sjálfbærniupplýsinga fyrirtækja með takmarkaðri vissu. Meðal annars er spurt hvernig haga skuli vinnu þeirra sem staðfesta upplýsingarnar og hvaða upplýsingar þurfi að koma fram í áritun þeirra.
Frestur til 18. janúar 2027.
State aid – draft revised Guarantee Notice
Samráðið varðar drög að endurskoðuðum leiðbeiningum um hvenær opinber ábyrgð felur í sér ríkisaðstoð. Meðal annars eru lögð til skýrari viðmið við mat á því hvort fyrirtæki njóti fjárhagslegs ávinnings af slíkri ábyrgð.
Frestur til 26. janúar 2027.
Ecodesign requirements on product repairability
Samráðið varðar mögulegar kröfur um visthönnun sem auðvelda viðgerðir á vörum. Meðal annars er leitað sjónarmiða um aðgang að varahlutum og viðgerðarleiðbeiningum og hversu auðvelt sé að taka vörur í sundur og setja þær saman á ný.
Frestur til 9. febrúar 2027.
***
Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.
Ritstjóri: Sigurður Örn Guðleifsson, sendiráðunautur.
Ábyrgðarmaður: Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra.
Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar á netfangið [email protected].
Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].