Hoppa yfir valmynd

Apostille-staðfesting og keðjustimplun

In English

Apostille-staðfesting og keðjustimplun er formleg staðfesting á lögmæti skjala sem nota á erlendis. Ferlið felur í sér staðfestingu á að undirskrift og stimpill séu sannanlega útgefin eða vottuð af til þess bæru íslensku stjórnvaldi.

Utanríkisráðuneytið sér um að staðfesta skjöl sem gefin eru út af íslensku stjórnvaldi. Athugað er hvort að undirskrift og stimpill á skjali séu ósvikin. Lögmæti skjalsins er apostille-staðfest með því að festa fylgiskjal, stimplað af utanríkisráðuneytinu við skjalið. Í tilfelli keðjustimplana er skjalið staðfest með stimpli utanríkisráðuneytisins.

Athygli er vakin á því að apostille-staðfesting eða keðjustimplun utanríkisráðuneytisins felur ekki í sér efnislega staðfestingu á innihaldi skjalsins.

Hvaða skjöl er hægt að staðfesta?

Einungis er hægt að staðfesta:

  • Frumrit skjals sem er undirritað og stimplað af íslensku stjórnvaldi.
  • Íslensk skjöl sem hafa verið lögbókandavottuð (notarius publicus) hjá sýslumanni (þ.m.t. afrit opinberra skjala). 

Hvað það kostar

Hver staðfesting kostar 2.700 kr.

Póstsending skjala kostar 2.000 kr.

Hvað tekur það langan tíma

Skjölin eru tilbúin til afhendingar eftir kl. 14, tveimur virkum dögum eftir að þau berast utanríkisráðuneytinu til afgreiðslu.

Símatími varðandi staðfestingu skjala er alla virka daga á milli kl. 10:00-12:00 í síma 545 9900. 

Hvað þarft þú að gera?

Beiðni um staðfestingu skjala er útfyllt á þjónustuvefnum Ísland.is

Með beiðninni þarf að gefa upplýsingar um:

  • Nafn og símanúmer/tölvupóstur tengiliðs sem biður um staðfestingu.
  • Nafn á vottorði, ef við á.
  • Í hvaða landi á að nota skjölin.
  • Fjöldi þeirra skjala sem óskast staðfest.
  • Ef skjölin óskast póstsend frá ráðuneytinu þarf að senda upplýsingar um nákvæmt heimilisfang viðtakanda.

Athygli er vakin á því að geri viðtakandi skjalanna kröfu um að þau séu þýdd á tungumál viðtökuríkis þarf að:

  • Fá skjalið þýtt hjá löggiltum skjalaþýðanda hérlendis (sjá lista á Ísland.is).
  • Fá þýðinguna vottaða af sýslumanni.
  • Því næst fá staðfestingu hjá utanríkisráðuneytinu á gildi skjalanna.

Sjá einnig:

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum