Utankjörfundaratkvæðagreiðslur erlendis
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis fer fram hjá sendiráðum Íslands, fastanefndum Íslands hjá alþjóðastofnunum og ræðismönnum Íslands samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið getur einnig ákveðið að utankjörfundaratkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stöðum erlendis.
Að jafnaði hefst utankjörfundaratkvæðagreiðsla 8 vikum fyrir kosningar og auglýsir utanríkisráðuneytið hvar og hvenær atkvæðagreiðsla hefst hverju sinni.
Sjá nánar XII. kafla laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, VIII. kafla laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og lög um framboð og kjör forseta Íslands nr. 36/1945.
Verkefni borgaraþjónustu
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.