Hoppa yfir valmynd

Úthlutun ársins 2009

Eldgos í Öræfajökli 1362.

Dr. Ármann Höskuldsson við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, kr. 630.000,-

Markmiðið er að rekja hvernig eldgosið 1362 gekk fyrir sig. Sumarið 2008 var farið með jarðsjá um láglendið framan við Öræfajökul í þeim tilgangi að skoða dreifingu gosefna frá 1362, en auðvelt er að greina gjóskuna í sniðum teknum með jarðsjánni. Komandi sumar er ætlunin að taka kjarnasýni undan Hnappavöllum og á Hoffjalli og Sandfellsheiði og mæla snið í gjóskuna þar. Eitt helsta markmið rannsóknarinnar er að greina spor í gjóskunni eftir gusthlaup ofan úr gíg eldstöðvarinnar.

Heimildaúttekt á fornum minjum á Kvískerjum og nágrenni.

Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Fornleifastofnun Íslands, kr. 380.000.-

Veittur er styrkur til þess að hefja vinnu við heimildaöflun um fornleifar og sögustaði á Kvískerjum og öllum nágrannajörðum í Hofshreppi. Markmið rannsóknarinnar er að safna upplýsingum um þekktar fornleifar á svæðinu, jafnt frá fyrstu öldum sem og síðar. Verkefnið er yfirgripsmikið og heimildakönnun fornleifa í Hofshreppi er ætlað að skila sjálfstæðum niðurstöðum um sögu og minjar en gæti einnig þjónað sem grunnur til að byggja frekari rannsóknir á menningarminjum í Hofshreppi.

Farleiðir og vetrarstöðvar skúma á Breiðamerkursandi.

Ellen Magnúsdóttir, meistaranemi við Líffræðiskor Háskóla Íslands, kr. 300.000.-

Þróaðir hafa verið gagnritar sem komið er fyrir á fuglum í því sjónarmiði að fylgjast með farleiðum þeirra. Slíkar gagnaritar voru settir á 40 fullorðna skúma á Breiðamerkursandi sumarið 2008. Ætlunin er að endurheimta gagnaritana komandi sumar og vinna úr upplýsingum sem þeir geyma. Meginmarkmið verkefnisins er að lýsa áður óþekktum farleiðum og vetrarstöðum skúma hér á landi, en lykilsvæði þeirra er á söndum A-Skaftafellssýslu.

Uppgröfur á miðaldarbýlinu Bæ í Öræfasveit.

Bjarni F. Einarsson, Fornleifafræðistofunni. kr.300.000.-

Unnið hefur verið við uppgröft á Bæ í Öræfasveit nokkur undanfarin ár, en býlið grófst undir gjósku í Öræfajökulsgosinu 1362. Uppgreftri er að mestu lokið, en enn er eftir að rannsaka nokkur rými á bænum svo og bæjarhlaðið. Verkefnið hefur verið unnið í samstarfi nokkurra aðila og hefur Kvískerjasjóður áður veitt Fornleifafélagi Öræfa styrki til verkefnisins. Styrkur er veittur nú til að ljúka þessari viðamiklu fornleifaskoðun.

Hörfun jökla og gróðurframvinda.

Dr. Kristín Svavarsdóttir, Landgræðslu ríkisins og Dr. Þóra Ellen Þórhallsdóttir, Háskóla Íslands kr. 650.000.-

Umsækjendur hafa stundað rannsóknir á gróðurframvindu á Skeiðaársandi um nokkurt skeið. Gróður á sandinum hefur verið kortlagður m.a. með hjálp gervitungla og litið hefur verið sérstaklega til landmáms og útbreiðslu birkis. Markmið þessa verkefnis er að nýta einstakar aðstæður þar sem margir hörfandi jöklar bjóða upp á ígildi náttúrulegrar tilraunar með endurtekningum þar sem unnt verður að prófa tilgátur um gróðurframvindu og þróun vistkerfa sem sjaldnast er hægt að sannreyna við raunverulegar aðstæður. Með samanburði á gróðri á stöðum sem komið hafa undan jökli á misjöfnum tíma verður hægt að ákvarða gróðurbreytingar yfir 120 ára tímabil.

Söfnun á gömlum myndum og skrásetning upplýsinga með viðtölum.

Svavar Sigurjónsson frá Litla-Hofi í Öræfasveit, kr. 375.000.-

Svavar hefur safnað gömlum ljósmyndum úr Öræfum (þær elstu frá því um 1910) og skannað þær inn á tölvu. Tilgangur verkefisins er að skrá myndirnar og afla upplýsinga með samtölum við eldri Öræfinga um það hvað þær hafa að geyma. Svavar hyggur einnig á skoðun skráðra myndasafna m.a. þeirra Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings og Kristjáns Eldjárn fornleifafræðings í þeim tilgangi að afla í tíma frekari upplýsinga um fólkið og sögu Öræfasveitar sem ljósmyndirnar geyma.

Rannsóknir á jökulhlaupum í Skaftárkötlum.

Dr. Tómas Jóhannesson og Dr. Þorsteinn Þorsteinsson, kr. 365.000.-

Undanfarin 3 ár hafa umsækjendur staðið að rannsóknarverkefni í Skaftárkötlum í Vatnajökli með tilstyrk margra aðila m.a. Kvískerjasjóðs. Borað hefur verið niður í gegn um 300 m þykka íshellu í Vestari- og Eystri Skaftárkatli. Hiti hefur verið mældur í lónum og sýni verið tekin til jerðefnafræðilegra greininga og örverurannsókna. Þá hefur verið fylgst náið með hreyfingu jökuls og ísskriði við katlana. Veittur er styrkur í áframhald þessara rannsókna.

Síðast uppfært: 2.6.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum