06 nóvember 2026
/

Norðurslóðastefna ESB, aukið hlutverk Frontex, loftslagsþol, fundur sameiginlegu þingmannanefndar EES, Uppbyggingarsjóðurinn o.fl.

Í vaktinni að þessu sinni:

  • Norðurslóðastefna ESB, Norðurskautsráðið og Ísland (ítarumfjöllun)
  • Fundur sameiginlegu þingmannanefndar EES í Strassborg
  • Löggjafartillaga og orðsending ESB um loftslagsþol og aðlögun að loftslagsbreytingum
  • Löggjafartillögur um breytingu á hlutverki Landamæra- og strandgæslustofnunar ESB og aukinn stuðning við endursendingar
  • Samkomulag við Ungverjaland um ráðstöfun styrkja úr Uppbyggingarsjóði EES
  • Framvinda löggjafartillagna framkvæmdastjórnar ESB
  • Af vettvangi dómstólanna
  • Opið samráð framkvæmdastjórnar ESB

 

Norðurslóðastefna ESB, Norðurskautsráðið og Ísland (ítarumfjöllun)

Framkvæmdastjórn ESB og utanríkismálastjóri sambandsins kynntu 20. október sl. nýja norðurslóðastefnu ESB undir yfirskriftinni Europe’s Northern Neighbourhood: A New Strategy for the Arctic. Stefnan tekur við af stefnu sambandsins frá árinu 2021. Loftslagsbreytingar og umhverfisvernd eru áfram meðal meginviðfangsefna stefnunnar, enda hafa bráðnun hafíss og jökla og breytingar á vistkerfum víðtæk áhrif á búsetu, atvinnulíf og lífsafkomu íbúa Norðurslóða. Frá því að fyrri stefna var samþykkt hafa þó innrás Rússlands í Úkraínu, aukinn hernaðarlegur viðbúnaður á Norðurslóðum og vaxandi samkeppni um auðlindir og siglingaleiðir þar breytt forsendum alþjóðlegs samstarfs á svæðinu. Í nýju stefnunni er brugðist við þessari þróun með aukinni áherslu á öryggismál, vernd mikilvægra innviða og aðgang að orku og hráefnum.

Norðurslóðir eru afmarkaðar með ólíkum hætti. Ein skilgreining tekur til svæða norðan norðurheimskautsbaugsins, en aðrar miða við norðurmörk trjágróðurs eða svæði þar sem meðalhiti í júlí er 10°C eða lægri. Í rannsóknum og alþjóðlegu samstarfi er einnig stuðst við víðari afmörkun sem tekur mið af stjórnsýslumörkum og nær til svæða sunnan norðurheimskautsbaugsins, meðal annars Íslands alls. Ísland telst þannig til norðurslóðaríkja þótt meginland þess liggi sunnan baugsins. Í nýju norðurslóðastefnu ESB er ekki sett fram ein almenn landfræðileg afmörkun svæðisins. Hugtakið „nágrennið í norðri“ lýsir þar ramma um pólitískt samstarf aðildarríkja ESB og samstarfsríkja, þar á meðal Íslands, um sameiginleg viðfangsefni á Norðurslóðum.

Samkvæmt upplýsingum Norðurskautsráðsins búa um fjórar milljónir manna á Norðurslóðum. Þar er horft til norðlægra byggðasvæða ríkjanna átta, þar á meðal svæða sunnan norðurheimskautsbaugsins. Um hálf milljón íbúanna tilheyrir frumbyggjaþjóðum, meðal annars Inúítum, Samum og fjölmörgum þjóðum í Alaska, Kanada og norðurhluta Rússlands. Tungumál, menning og hefðbundnir atvinnuhættir þessara þjóða eru fjölbreytt, og tengsl við land, haf og nýtingu náttúruauðlinda skipa víða mikilvægan sess.

Öryggi og innviðir í norðri

Norðurslóðastefna ESB byggist á fjórum megináherslum: að efla öryggi ríkja og samfélaga á Norðurslóðum, bregðast við loftslagsbreytingum, stuðla að sjálfbærri atvinnu- og efnahagsþróun á svæðinu og bæta lífsskilyrði íbúanna. Með hugtakinu „nágrennið í norðri“ (e. Northern Neighbourhood) boðar ESB nánara og skipulagðara samstarf um þessi viðfangsefni, meðal annars um mótun og fjármögnun sameiginlegra verkefna. Þar byggir sambandið á þátttöku þriggja aðildarríkja sinna á svæðinu, Danmerkur, Finnlands og Svíþjóðar, og samstarfi við Ísland, Noreg, Kanada og Bandaríkin, auk annarra samstarfsríkja, svo sem Bretlands.

Boðaðir eru reglulegir leiðtogafundir um Norðurslóðir að fyrirmynd fundarins í Rovaniemi í Finnlandi í september sl. Á slíkum fundum er gert ráð fyrir að leiðtogar aðildarríkja ESB og samstarfsríkja þess ræði öryggi og önnur sameiginleg viðfangsefni á Norðurslóðum ásamt fulltrúum sambandsins. Samkvæmt stefnunni á þetta samráð að styðja við samstarf sem þegar fer fram á svæðinu, meðal annars innan Norðurskautsráðsins.

Á sviði öryggismála hyggst ESB efla eftirlit með skipaumferð og mikilvægum innviðum á Norðurslóðum og auka fjárfestingar í uppbyggingu og vernd innviða og þróun búnaðar. Jafnframt á að greiða fyrir flutningum herliðs og hergagna um hafnir, flugvelli og samgönguleiðir á svæðinu. Með því á að auka getu ríkjanna til að bregðast við öryggisógnum og tryggja að samgöngumannvirki og búnaður nýtist við erfiðar veðurfarsaðstæður. Gert er ráð fyrir samstarfi aðildarríkja ESB við önnur samstarfsríki og Atlantshafsbandalagið (e. North Atlantic Treaty Organization, NATO) um þessi verkefni.

Meðal fyrirhugaðra verkefna sem boðuð eru í stefnunni er miðstöð um öryggi á hafi (e. Maritime Security Hub) sem á að auðvelda miðlun upplýsinga um skipaumferð, vernd sæstrengja og annarra mannvirkja í hafi og við strendur, mengun og leit og björgun. Vöktunin tæki meðal annars til svonefnds skuggaflota, einkum skipa sem notuð eru til að komast hjá viðskiptaþvingunum og eftirliti með olíuflutningum. Fyrsta skrefið samkvæmt stefnunni væri að koma á fót sæstrengjamiðstöð (e. Arctic Cable Hub) til að styðja vöktun, vernd og viðgerðir strengja í Norður-Atlantshafi og á Norðurslóðum. ESB hyggst styðja aðildarríkin og áhugasöm EES-ríki utan ESB við að koma sæstrengjamiðstöðinni á fót, en staðsetning hennar er ekki tilgreind í stefnunni.

ESB hyggst einnig efla getu Evrópuríkja til að sinna verkefnum á ísilögðum hafsvæðum. Meðal annars verða kannaðir möguleikar á sameiginlegum kaupum og samnýtingu ísbrjóta meðal aðildarríkja ESB og samstarfsríkja sambandsins. Skipin gætu nýst við rannsóknir, björgun, viðbrögð við mengunarslysum og lagningu og viðgerðir sæstrengja og annarra neðansjávarmannvirkja. Þau gætu jafnframt stutt við flutninga í þágu öryggis og varna ríkjanna á svæðinu. Áformin lúta að samstarfi um skip og búnað sem áfram yrðu undir stjórn viðkomandi ríkja; í stefnunni er ekki ákveðin bækistöð fyrir sameiginlegan ísbrjótaflota.

Auðlindir og lífsskilyrði á Norðurslóðum

Á sviði orkumála er í stefnunni lögð áhersla á fjárfestingar í vatnsafli, jarðhita, vindorku og framleiðslu endurnýjanlegs vetnis. Raforkutengingar milli norðurhluta Finnlands og Svíþjóðar eru nefndar sem dæmi um hvernig bæta megi flutning raforku og nýtingu hennar á sameiginlegum markaði ESB. Á Grænlandi er meðal annars stefnt að stuðningi við orkuskipti í byggðarlögum sem reiða sig á dísilrafstöðvar.

Í nýju stefnunni er áréttuð sú afstaða ESB úr fyrri norðurslóðastefnu sambandsins frá árinu 2021 að olía, kol og gas skuli látin óunnin í jörðu, einnig á Norðurslóðum. Við kynningu fyrri stefnunnar var jafnframt boðað að leitað yrði alþjóðlegs samkomulags um takmarkanir á vinnslu þessara orkugjafa. Nýja stefnan ítrekar afstöðuna til vinnslunnar en endurtekur ekki áformin um slíkt samkomulag. Þar segir að framkvæmdastjórnin muni vinna með samstarfsaðilum að því að koma í veg fyrir nýtingu olíu- og gaslinda sem ógnar vistkerfum Norðurslóða.

Samstarf við Grænland skipar veigamikinn sess í stefnunni. Gert er ráð fyrir 200 milljóna evra fjárfestingu á árunum 2026–2027 á vegum Global Gateway, fjárfestingarátaks ESB í samstarfi við önnur ríki. Fjármununum er meðal annars ætlað að styðja við sjálfbæra nýtingu hráefna og uppbyggingu endurnýjanlegrar orku, fjarskipta og húsnæðis á Grænlandi. Á tímabili næstu langtímafjárhagsáætlunar ESB, 2028–2034, er stefnt að frekari fjárfestingum með þátttöku ESB, aðildarríkja sambandsins og evrópskra fjármálastofnana undir merkjum Team Europe.

Jafnframt hyggst ESB styðja lagningu sæstrengs sem tengi Grænland beint við fjarskiptanet í aðildarríkjum ESB og gæti síðar orðið hluti af víðtækari tengingu til Kanada og Asíu. Hagkvæmniathuganir standa yfir, en í stefnunni er hvorki tilgreint hvar strengurinn muni liggja né hvort hann verði tengdur Íslandi. Einnig er boðað langtímasamstarf við Grænland um að auka viðbúnað vegna náttúruvár og slysa og draga úr hættu á að slík áföll raski mikilvægri þjónustu, svo sem orkuveitu, fjarskiptum og samgöngum á Grænlandi.

Rannsóknir og lífsskilyrði íbúa Norðurslóða eru einnig sjálfstæð viðfangsefni stefnunnar. ESB hyggst efla samhæfingu heimskautarannsókna, miðlun gagna og aðgang að rannsóknainnviðum. Áhersla er lögð á menntun, starfsþjálfun, atvinnu og þjónustu í norðlægum byggðarlögum, meðal annars með samstarfi sveitarfélaga og þátttöku ungs fólks í Erasmus+. Jafnframt á að efla þátttöku frumbyggja Norðurslóða í rannsóknum og ákvörðunum um verkefni sem varða samfélög þeirra. Þar er bæði horft til þekkingar þeirra á náttúru og staðháttum og réttar þeirra til að varðveita menningu sína og hafa áhrif á ákvarðanir um land og auðlindir sem lífsafkoma þeirra byggist á. Stefnan vísar sérstaklega til þess að afla skuli frjáls og upplýsts samþykkis frumbyggja áður en teknar eru ákvarðanir sem varða þá.

Norðurskautsráðið og samstarf ríkjanna átta

Á tímum kalda stríðsins takmarkaði hernaðarleg spenna milli austurs og vesturs möguleika á samstarfi á Norðurslóðum. Fimm norðurslóðaríki voru stofnaðilar að NATO, en Svíþjóð og Finnland stóðu á þeim tíma utan hernaðarbandalaga. Samstarf ríkjanna átta um umhverfisvernd tók á sig skipulegri mynd með samþykkt umhverfisverndarstefnu Norðurslóða (e. Arctic Environmental Protection Strategy, AEPS) árið 1991. Norðurskautsráðið var síðan stofnað í Ottawa í Kanada árið 1996. Ráðið byggði á þessu umhverfissamstarfi og varð jafnframt vettvangur fyrir samstarf um sjálfbæra þróun og lífsskilyrði íbúa Norðurslóða. Hernaðarleg öryggismál falla utan verksviðs ráðsins.

Formennska í ráðinu gengur milli ríkjanna á tveggja ára fresti og hefur ráðherrafundur að jafnaði markað lok hvers formennskutímabils. Auk ríkjanna taka sex frumbyggjasamtök þátt í starfi ráðsins sem fastir þátttakendur (e. Permanent Participants). Þar eiga fulltrúa samtök Inúíta, Sama, Aleúta, Aþabaska og Gwich’in, ásamt samtökum frumbyggja í norðurhluta Rússlands. Þau taka þátt í verkefnum og njóta víðtæks samráðsréttar við undirbúning ákvarðana, en ákvarðanir ráðsins byggjast á samstöðu ríkjanna átta.

Faglegt starf ráðsins fer að mestu fram í sex vinnuhópum. Þar vinna fulltrúar stjórnvalda og frumbyggjasamtaka með vísindafólki og öðrum sérfræðingum. Viðfangsefni hópanna eru mengunarvarnir, vöktun mengunar og loftslags, vernd lífríkis, viðbúnaður vegna slysa og náttúruvár, vernd hafsins og sjálfbær þróun. Hóparnir safna gögnum, meta breytingar á náttúru og samfélögum svæðisins og leggja fram tillögur sem stjórnvöld geta nýtt við stefnumótun.

Rannsóknir á vegum Norðurskautsráðsins hafa lagt grunn að alþjóðlegri umræðu um loftslagsbreytingar og vernd hafsins. Í yfirlitsskýrslu um áhrif loftslagsbreytinga á Norðurslóðum (e. Impacts of a Warming Arctic), sem birt var árið 2004, var vakin athygli á hraðri hlýnun og afleiðingum hennar fyrir náttúru og samfélög á svæðinu. Hörfun hafíss hefur jafnframt aukið alþjóðlega umræðu um siglingaleiðir milli Asíu og Atlantshafs sem gætu við tilteknar aðstæður stytt leiðina miðað við siglingar um Súez-skurð. Aðgengi að olíu, gasi, málmum og hugsanlegum fiskimiðum hefur einnig áhrif á áhuga ríkja og fyrirtækja á svæðinu. Þessi þróun hefur mótað starf ráðsins um öryggi siglinga og vernd hafsins, þar sem metin eru áhrif aukinnar skipaumferðar á umhverfi og samfélög Norðurslóða og lagðar fram tillögur um hvernig bregðast megi við þeim.

Vaxandi áhugi ríkja utan Norðurslóða á umhverfisbreytingum, auðlindum og siglingum á svæðinu birtist meðal annars í fjölgun ríkja með áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu. Þrettán ríki fengu áheyrnaraðild á árunum 1998–2017, meðal annars Bretland, Þýskaland, Frakkland, Kína, Indland og Japan.

ESB sótti um áheyrnaraðild árið 2008, en hefur enn ekki fengið hana formlega. Á ráðherrafundi í Kiruna í Svíþjóð árið 2013 var tekið jákvætt í umsókn sambandsins, en endanlegri ákvörðun frestað. Ágreiningur um bann ESB við viðskiptum með selaafurðir tafði upphaflega afgreiðslu umsóknarinnar. Kanadísk stjórnvöld töldu bannið ógna afkomu frumbyggja sem stunduðu selveiðar og lögðust gegn áheyrnaraðild ESB. Kanada féll síðar frá andstöðu sinni, en Rússland lagðist gegn umsókninni árið 2015 í kjölfar ágreinings við ESB vegna innlimunar Krímskaga í Rússland. Sú samstaða ríkjanna átta sem þarf til að veita ESB formlega áheyrnaraðild hefur enn ekki náðst. Fulltrúum ESB hefur þó frá árinu 2013 verið heimilt að sækja fundi ráðsins og taka þátt í starfi vinnuhópa þess meðan beðið er endanlegrar ákvörðunar um umsóknina.

Þrátt fyrir versnandi samskipti Rússlands og annarra norðurslóðaríkja frá árinu 2014 hélt samstarf um vísindi, vöktun mengunar og loftslagsbreytinga og vernd lífríkis að verulegu leyti áfram. Eftir innrás Rússlands í Úkraínu árið 2022 gerðu hin sjö ríkin hins vegar hlé á þátttöku sinni í opinberum fundum ráðsins.

Þegar Noregur tók við formennsku árið 2023 hófst vinna við að endurvekja faglegt samstarf ráðsins. Í ágúst það ár var samþykkt að halda verkefnavinnu áfram með skriflegum samskiptum og í febrúar 2024 náðist samkomulag um að hefja fjarfundi vinnuhópanna á ný með þátttöku allra ríkjanna átta og frumbyggjasamtakanna sex. Fulltrúar allra ríkjanna átta og frumbyggjasamtakanna sex tóku jafnframt þátt í fjarfundi ráðsins 12. maí 2025, þar sem Konungsríkið Danmörk tók við formennsku til ársins 2027. Ráðið starfar því áfram, þótt pólitísk samskipti aðildarríkjanna setji samstarfinu þrengri skorður en áður.

Ísland og Norðurslóðir

Ísland er stofnaðili að Norðurskautsráðinu og hefur tvisvar gegnt formennsku, árin 2002–2004 og 2019–2021. Íslensk stjórnvöld hafa lagt áherslu á að ráðið sé meginvettvangur samstarfs um málefni svæðisins og að norðurslóðaríkin átta taki þátt í mótun samstarfsins. Sú afstaða kom meðal annars fram í viðbrögðum íslenskra stjórnvalda við fundi fimm norðurslóðaríkja í Ilulissat á Grænlandi árið 2008. Þar ræddu fulltrúar Bandaríkjanna, Kanada, Rússlands, Noregs og Danmerkur, ásamt fulltrúum Grænlands, málefni Norður-Íshafsins. Íslandi, Finnlandi, Svíþjóð og fulltrúum frumbyggjasamtaka var hins vegar ekki boðið til fundarins. Ísland lagði við það tækifæri áherslu á að slíkt samráð mætti ekki draga úr hlutverki Norðurskautsráðsins eða útiloka önnur norðurslóðaríki frá ákvörðunum sem vörðuðu hagsmuni þeirra.

Akureyri hefur þróast sem miðstöð íslensks og alþjóðlegs samstarfs um Norðurslóðir. Þar eru skrifstofur tveggja af sex vinnuhópum Norðurskautsráðsins: vinnuhóps um vernd lífríkis Norðurslóða (e. Conservation of Arctic Flora and Fauna, CAFF) og vinnuhóps um vernd hafsins á Norðurslóðum (e. Protection of the Arctic Marine Environment, PAME). Þar starfar einnig Norðurslóðanet Íslands, samstarfsvettvangur innlendra aðila sem sinna norðurslóðamálum. Þá hefur Stofnun Vilhjálms Stefánssonar frá ársbyrjun 2025 verið hluti af Háskólanum á Akureyri. Stofnunin sinnir meðal annars rannsóknum á samfélögum Norðurslóða, auðlindanýtingu og aðlögun að loftslagsbreytingum.

Alþingi samþykkti stefnu Íslands í málefnum Norðurslóða árið 2011 og endurskoðaða stefnu árið 2021. Í þeirri síðari er ríkisstjórninni falið að fylgja nítján áhersluþáttum. Þar er meðal annars kveðið á um virka þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi, stuðning við Norðurskautsráðið og virðingu fyrir alþjóðalögum. Jafnframt á að leggja áherslu á vernd lífríkis, vinna gegn súrnun og mengun hafsins og stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda. Þá á að efla viðskipti og samstarf við Grænland og Færeyjar, meðal annars á sviði atvinnulífs, mennta og þjónustu.

Í stefnunni er einnig lögð áhersla á öruggari siglingar og flug á Norðurslóðum, bætt fjarskipti og aukna getu til leitar, björgunar og viðbragða við mengunarslysum á hafsvæðum í norðri. Gæta á öryggishagsmuna Íslands í samræmi við þjóðaröryggisstefnu landsins og byggja á borgaralegum forsendum. Það felur meðal annars í sér áherslu á eftirlit með skipa- og flugumferð, örugg fjarskipti og viðbúnað til að bregðast við slysum og náttúruvá. Jafnframt er kveðið á um samráð við Norðurlöndin og bandalagsríki Íslands í NATO, andstöðu við hervæðingu Norðurslóða og viðleitni til að viðhalda friði og stöðugleika.

Loks er stefnt að því að styrkja rannsóknir og umræðu um Norðurslóðir á Íslandi. Þar er meðal annars byggt á starfseminni á Akureyri og Hringborði norðurslóða (e. Arctic Circle), alþjóðlegum umræðu- og samstarfsvettvangi sem heldur árlegt þing í Reykjavík, þar sem saman koma stjórnmálafólk, vísindafólk og fulltrúar frumbyggja, atvinnulífs og félagasamtaka til að ræða breytingar á náttúru og samfélögum Norðurslóða og möguleika á samstarfi.

Samstarfstækifæri og íslenskir hagsmunir

Í norðurslóðastefnu Íslands frá 2021 er vaxandi áhuga aðila utan svæðisins fagnað. Jafnframt er lögð áhersla á að þátttaka þeirra byggist á virðingu fyrir alþjóðalögum og stöðu norðurslóðaríkjanna átta og stuðli að friðsamlegri og sjálfbærri þróun svæðisins. Ýmsar áherslur í nýju norðurslóðastefnu ESB falla vel að þessum viðmiðum, meðal annars um rannsóknasamstarf, umhverfisvernd og aukið öryggi siglinga og fjarskipta. Áform stefnunnar gefa tilefni til að kanna þátttöku í samstarfsverkefnum sem ESB hyggst þróa með aðildarríkjum sínum og samstarfsríkjum, svo sem um vernd sæstrengja, söfnun hafgagna og viðbúnað vegna slysa og náttúruvár. Fyrirhugaðar alþjóðlegar reglur um losun frá skipum og stofnun verndarsvæða í hafi geta jafnframt varðað siglingar og auðlindanýtingu á hafsvæðunum umhverfis Ísland.

Þannig hyggst ESB samkvæmt nýju stefnunni beita sér fyrir því að óbindandi leiðbeiningar um að draga úr losun svarts kolefnis, eða sótagna, frá skipum verði að bindandi alþjóðlegum reglum. Sambandið hyggst vinna að þessu á vettvangi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (e. International Maritime Organization, IMO). Þar vill ESB jafnframt beita sér fyrir víðari skilgreiningu norðurslóðahafsvæða, þannig að hún nái til hafsvæða norðan 60. gráðu norðlægrar breiddar. Sú afmörkun myndi ná til hafsvæða við Ísland sem heimskautareglur IMO (e. International Code for Ships Operating in Polar Waters, Polar Code) taka nú ekki til. Bindandi reglur um losun sótagna gætu til dæmis haft áhrif á val á eldsneyti og búnaði um borð í skipum sem falla undir þær.

ESB hyggst einnig samkvæmt stefnunni stuðla að stofnun verndarsvæða í hafi á Norðurslóðum á vettvangi OSPAR-samningsins um verndun hafrýmis Norðaustur-Atlantshafs (e. Convention for the Protection of the Marine Environment of the North-East Atlantic), sem Ísland á aðild að. Verndin getur meðal annars beinst að viðkvæmum búsvæðum og falist í vöktun og aðgerðum til að draga úr skaðlegum áhrifum mannlegra athafna. Skilyrði fyrir nýtingu hvers verndarsvæðis ráðast af verndarmarkmiðum þess og ákvörðunum þeirra stjórnvalda og alþjóðastofnana sem hafa heimildir til að stjórna viðkomandi starfsemi.

Ísland er í nýju stefnu ESB sérstaklega nefnt meðal samstarfsaðila við söfnun og miðlun hafgagna og í umfjöllun um rannsóknir, menntun og þróun atvinnulífs. Þar er að hluta byggt á samstarfsáætlunum ESB sem Ísland tekur þegar þátt í, en einnig boðuð frekari samvinna og ný verkefni. Þátttaka í verkefnum um hafrannsóknir, miðlun gagna, vernd sæstrengja og viðbúnað gæti nýst íslenskum stofnunum og fyrirtækjum við að efla þekkingu, bæta aðgang að upplýsingum og auka getu til viðbragða á hafsvæðunum umhverfis landið.

Ný norðurslóðastefna ESB lýsir því hvernig sambandið hyggst beita fjármagni, rannsóknasamstarfi og pólitískum áhrifum til að efla öryggi, vernda umhverfi og styðja við atvinnulíf og samfélög á Norðurslóðum. Framkvæmd hennar mun ráðast af frekari ákvörðunum og samningum, meðal annars við samstarfsríki sambandsins. Fyrir Ísland felast í stefnunni tækifæri til samstarfs, en jafnframt geta áform ESB um fjárfestingar og mótun reglna haft þýðingu fyrir íslenska hagsmuni á sviði hafmála, auðlindanýtingar og innviða. Norðurskautsráðið gegnir áfram mikilvægu hlutverki sem vettvangur norðurslóðaríkjanna átta og frumbyggjasamtaka til að auka þekkingu á loftslagsbreytingum, lífríki og samfélögum Norðurslóða og vinna að umhverfisvernd og sjálfbærri þróun á svæðinu. Aukin þátttaka ESB á Norðurslóðum, meðal annars með framkvæmd nýju stefnunnar, getur stutt við það starf.

Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:

Fundur sameiginlegu þingmannanefndar EES í Strassborg

Dagana 21.–22. október sl. fór fram 66. fundur sameiginlegu þingmannanefndar EES í Strassborg. Á fundinum var fjallað um framkvæmd EES-samningsins, samkeppnishæfni Evrópu og stöðu EFTA-ríkjanna þriggja í EES-samstarfinu. Af hálfu Alþingis sóttu fundinn þingmennirnir Diljá Mist Einarsdóttir, Grímur Grímsson, Ingibjörg Isaksen, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Kristján Þórður Snæbjarnarson.

Nicolas von Lingen, fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB, lagði áherslu á að sameiginlegur innri markaður byggðist á sameiginlegum reglum og jöfnum samkeppnisskilyrðum. Hann kallaði eftir auknum hraða við upptöku gerða í EES-samninginn og benti á að tafir hefðu raunveruleg áhrif á réttindi borgaranna og samkeppnishæfni fyrirtækja. Hann hvatti EFTA-ríkin innan EES til að hefja undirbúning fyrr, meðan löggjöfin væri enn í mótun innan ESB og jafnvel áður en tillögur væru lagðar fram. Með því að taka þátt í samráði um fyrirhugaða löggjöf á samráðsgátt framkvæmdastjórnarinnar og kynna sér áhrifamat sem fylgdi löggjafartillögum gætu ríkin bæði komið sjónarmiðum sínum fyrr á framfæri og undirbúið upptöku og innleiðingu reglnanna.

Arne Røksund, forseti Eftirlitsstofnunar EFTA (e. EFTA Surveillance Authority, ESA), lagði í ávarpi sínu einnig áherslu á að EFTA-ríkin innan EES verji nægilegum fjármunum og mannafla til upptöku nýrra gerða í samninginn og innleiðingar þeirra í landsrétt. Hann undirstrikaði að samræmd beiting EES-reglna og virkt eftirlit með því að þeim væri fylgt væru forsenda jafnra samkeppnisskilyrða á innri markaðnum. Þá lýsti hann nánu samstarfi ESA og framkvæmdastjórnar ESB um eftirlit með framkvæmd reglnanna og lagði áherslu á að langflest mál leystust í samskiptum við ríkin án þess að til úrlausnar EFTA-dómstólsins kæmi.

Á fundinum var jafnframt fjallað um löggjafartillögu framkvæmdastjórnarinnar um iðnaðarhraðal ESB (e. Industrial Accelerator Act) og endurskoðun reglna um opinber innkaup. Í þeim umræðum lögðu fulltrúar EFTA-ríkjanna innan EES áherslu á að fyrirhugaðar kröfur um evrópskan uppruna (e. Buy European) næðu til allra 30 ríkja EES. Einnig var rætt um framtíðarfjármögnun samstarfsáætlana ESB og áframhaldandi þátttöku EFTA-ríkjanna innan EES í þeim, endurskoðun viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (e. EU Emissions Trading System, EU ETS) og samtengingu raforkuneta til að efla orkuöryggi. Þá var fjallað um flutninga herliðs og hergagna yfir landamæri (e. military mobility) og samstarf um geimstarfsemi, meðal annars uppbyggingu aðstöðu til geimskota. Næsti fundur nefndarinnar verður haldinn í Noregi í maí 2027.

Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:

Löggjafartillaga og orðsending ESB um loftslagsþol og aðlögun að loftslagsbreytingum

Hinn 27. október sl. birti framkvæmdastjórn ESB stefnumótandi orðsendingu um loftslagsþol og aðlögun að loftslagsbreytingum og lagði jafnframt fram tillögu að reglugerð um loftslagsþol (e. European Climate Resilience Law). Með loftslagsþoli er átt við getu samfélaga til að búa sig undir áhrif loftslagsbreytinga, draga úr tjóni af völdum þeirra og viðhalda nauðsynlegri þjónustu þegar áföll verða. Markmið reglugerðartillögunnar er meðal annars að upplýsingar um hættu af völdum loftslagsbreytinga nýtist við skipulag byggðar, hönnun og uppbyggingu innviða og undirbúning ákvarðana um opinberar fjárfestingar. Þannig megi betur verja fólk, byggðir og mikilvæga þjónustu gegn flóðum, hitabylgjum, þurrkum og öðrum afleiðingum loftslagsbreytinga.

Í reglugerðartillögunni er lagt til að hvert aðildarríki ESB meti á fimm ára fresti áhættu af völdum loftslagsbreytinga, meðal annars fyrir heilsu fólks, byggðir, samgöngur, orkuveitur og vatnsveitur. Við matið yrði meðal annars miðað við þá hækkun meðalhita jarðar sem er nánar tilgreind í tillögunni. Áhrif hlýnunar yrðu metin með hliðsjón af staðbundnum aðstæðum í hverju aðildarríki. Jafnframt yrði skýrt hvaða stjórnvöld í hverju aðildarríki bæru ábyrgð á vörnum gegn helstu loftslagshættum og viðbrögðum við afleiðingum þeirra. Hvert aðildarríki myndi einnig tilnefna stjórnvald sem hefði yfirumsjón með gerð landsáætlunar um loftslagsþol og því að henni yrði hrint í framkvæmd. Gert er ráð fyrir að hvert aðildarríki ljúki fyrsta áhættumati eigi síðar en 30. júní 2029 og samþykki landsáætlun eigi síðar en 31. desember 2030.

Til að auðvelda mat á loftslagshættum og undirbúning aðgerða kynnti framkvæmdastjórnin jafnframt kortasjá (e. European Climate Viewer) sem sýnir hvernig hlýnun gæti haft áhrif á tíðni hitabylgna og hættu á vatnsskorti á tilteknum svæðum í Evrópu. Einnig kynnti framkvæmdastjórnin safn dæma um aðlögunaraðgerðir sem þegar hafa verið framkvæmdar, með upplýsingum um hvernig þær voru fjármagnaðar, hvaða árangri þær hafa skilað og hvernig nýta megi reynsluna af aðgerðunum annars staðar. Þá boðar framkvæmdastjórnin áætlun um viðbrögð við hitabylgjum, samstarf um að bæta tryggingavernd vegna loftslagstjóns og aðgerðir til að bæta vatnsnýtingu og varnir gegn flóðum og þurrkum.

Reglugerðartillagan er merkt EES-tæk og fer nú til meðferðar hjá Evrópuþinginu og ráðherraráði ESB.

Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:

Löggjafartillögur um breytingu á hlutverki Landamæra- og strandgæslustofnunar Evrópu og aukinn stuðning við endursendingar

Hinn 27. október sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram löggjafartillögu um að efla starfsemi Landamæra- og strandgæslustofnunar Evrópu (e. European Border and Coast Guard Agency, Frontex). Markmiðið með tillögunni er að styrkja vörslu ytri landamæra ESB og Schengen-svæðisins, auka stuðning við endursendingar fólks sem ekki hefur heimild til dvalar í viðkomandi ESB- eða Schengen-ríki og bæta viðbrögð við neyðarástandi á landamærunum. Sama dag lagði framkvæmdastjórnin fram aðra löggjafartillögu um stafvæðingu endursendingarkerfisins, kröfur um samræmda skráningu mála og upplýsingaskipti milli stjórnvalda þeirra ESB- og Schengen-ríkja sem reglurnar taka til.

ESB hefur undanfarin ár lagt aukna áherslu á að bæta framkvæmd endursendinga fólks, meðal annars með verndarsamkomulagi ESB (e. Pact on Migration and Asylum) og endursendingarreglugerðinni (e. Return Regulation). Tillagan um aukið hlutverk Frontex á þessu sviði er liður í þeirri vinnu sambandsins. Samkvæmt tillögunni um að efla starfsemi Frontex yrði komið á fót samhæfingarmiðstöð innan stofnunarinnar til að aðstoða stjórnvöld þátttökuríkjanna við undirbúning og framkvæmd endursendinga fólks. Aðstoðin tæki meðal annars til staðfestingar á auðkennum einstaklinga, ráðgjafar um sjálfviljuga heimför fólks, skipulagningar endursendingarferða og stuðnings við enduraðlögun fólks eftir heimkomu. Þá gæti Frontex aðstoðað ríki utan ESB við endursendingar fólks til annarra þriðju ríkja. Aðstoð við framkvæmd slíkra endursendinga yrði háð samningi ESB við viðkomandi ríki sem óskaði aðstoðar og aðgerðirnar yrðu að samræmast grundvallarréttindum og alþjóðlegum skuldbindingum.

Samkvæmt upplýsingum Frontex eru um 3.800 liðsmenn að störfum í verkefnum stofnunarinnar hverju sinni. Tillagan gerir ráð fyrir að heildarfjöldi liðsmanna sem Frontex geti nýtt til verkefna sinna, að meðtöldu varaliði, aukist í áföngum í allt að 30.000 árið 2041. Fjölgunin yrði bæði með ráðningu fleiri starfsmanna hjá Frontex og stofnun varaliðs sem þátttökuríkin legðu mannafla til vegna landamæravörslu og endursendinga. Einnig yrði komið á fót viðbragðssveit innan Frontex sem gæti með skömmum fyrirvara aðstoðað við landamæravörslu þegar brýn og ófyrirséð þörf skapast. Þá er lagt til að vöktunarmiðstöð innan stofnunarinnar fylgist með opinberlega aðgengilegu efni á netinu, meðal annars á samfélagsmiðlum. Tillagan um vöktunarmiðstöðina er hluti af viðbrögðum framkvæmdastjórnarinnar við atburðunum í Ceuta í sumar og fylgir eftir aðgerðaáætlun hennar. Vöktunin beindist einkum að efni um skipulagningu óheimillar farar yfir landamæri, smygl á fólki og hvatningu til ofbeldis við landamæri. Markmiðið væri að greina hættumerki fyrr og gera stjórnvöldum kleift að undirbúa viðbrögð áður en neyðarástand skapast.

Tillagan um stafvæðingu endursendingarkerfisins gerir ráð fyrir að þátttökuríkin starfræki rafræn málaskrárkerfi, tengd sameiginlegum kerfum ESB fyrir samskipti við ríki sem taka við fólki við endursendingu og fyrir stuðning við enduraðlögun þess. Stjórnvöld sem annast endursendingarmál í þátttökuríkjunum og Frontex gætu þannig miðlað nauðsynlegum upplýsingum um auðkenni og ríkisfang einstaklinga, ákvarðanir sem þegar hafa verið teknar um endursendingu fólks og stöðu undirbúnings fyrir framkvæmd þeirra. Markmið tillögunnar er að draga úr endurtekinni skráningu sömu upplýsinga og flýta undirbúningi og framkvæmd endursendinga.

Báðar tillögurnar teljast til þróunar á Schengen-regluverkinu og fara til umfjöllunar hjá Evrópuþinginu og ráðherraráði ESB. Í áhrifamati framkvæmdastjórnarinnar er gert ráð fyrir að aukin sameiginleg geta ríkjanna og samhæfing styrki landamæravörslu og framkvæmd endursendinga fólks, en jafnframt aukist verkefni stjórnvalda vegna áætlanagerðar, upplýsingamiðlunar og þjálfunar. Í viðauka IV við Frontex-tillöguna er lagt til að framlag Íslands til varaliðsins verði einn fulltrúi árið 2030, fjórir árið 2032 og átta árið 2034.

Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:

Samkomulag við Ungverjaland um ráðstöfun styrkja úr Uppbyggingarsjóði EES

Ísland, Liechtenstein og Noregur undirrituðu í Búdapest 26. október sl. samkomulag um ráðstöfun styrkja úr Uppbyggingarsjóði EES í Ungverjalandi fyrir fjármögnunartímabilið 2021–2028. Sjóðurinn er fjármagnaður af ríkjunum þremur og er ætlað að stuðla að jafnari lífskjörum innan EES. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, undirritaði samkomulagið fyrir Íslands hönd. Samhliða var undirritað samkomulag um framlög úr Norway Grants, hliðstæðu styrkjakerfi sem Noregur fjármagnar. Samanlagt framlag úr styrkjakerfunum tveimur til Ungverjalands nemur 254,1 milljón evra.

Í samstarfinu við Ungverjaland verður fjárframlögum úr styrkjakerfunum tveimur varið til sex málaflokka: grænna umskipta, byggðaþróunar, lýðheilsu, stofnanasamstarfs um eflingu lýðræðis, réttarríkis og stjórnsýslu, samfélagsþátttöku og valdeflingar Róma-fólks og loks menningarstarfs, þar á meðal varðveislu menningararfs og listsköpunar. Samkomulaginu er einnig ætlað að efla samstarf stofnana og samtaka í Ungverjalandi við aðila í styrkveitendaríkjunum þremur.

Ungverjaland er eitt alls 15 aðildarríkja ESB sem njóta framlaga úr Uppbyggingarsjóði EES til efnahagslegrar og félagslegrar uppbyggingar. Við hvert ríki er samið sérstaklega um hvaða málaflokkar njóti framlaga og hvernig samstarfinu verði háttað. Með undirrituninni í Búdapest liggur nú fyrir rammi um fjárframlög og áherslur samstarfsins við öll 15 styrkþegaríkin vegna tímabilsins 2021–2028.

Fyrir Ísland gætu tækifæri meðal annars falist í miðlun sérþekkingar á sviði endurnýjanlegrar orku og umhverfisverndar, samstarfi um varðveislu menningararfs og listsköpun og verkefnum á sviði jafnréttis og mannréttinda.

Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:

Framvinda löggjafartillagna framkvæmdastjórnar ESB

Hér er yfirlit yfir framvindu valinna löggjafartillagna framkvæmdastjórnar ESB í meðförum Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB sem kunna að hafa þýðingu fyrir Ísland og áður hefur verið fjallað um í Vaktinni.

28. lögsagnarumdæmið – ráðið samþykkir samningsafstöðu um valfrjálst félagaform. Ráðherraráð ESB samþykkti 23. október sl. samningsafstöðu sína til tillögu um sameiginlegt, valfrjálst regluverk á sviði félagaréttar, svonefnt 28. lögsagnarumdæmi (e. EU Inc.). Fyrirtæki gætu valið að starfa samkvæmt þessu regluverki og skráð sig rafrænt á tveimur dögum fyrir að hámarki 100 evrur. Ráðið styður meginmarkmið tillögunnar en leggur meðal annars til einfaldari reglur um stafræna hlutaskrá og skýrari ákvæði um samspil við landslög. Jafnframt vill ráðið styrkja eftirlit við skráningu fyrirtækja, meðal annars vegna peningaþvættis, og afmarka nánar fyrirhugað kerfi kaupréttar starfsfólks að hlutabréfum. Viðræður við Evrópuþingið geta hafist þegar þingið hefur mótað samningsafstöðu sína. Nánar um afstöðu ráðsins. Fyrri umfjöllun í Vaktinni, 27. mars 2026.

Endurgjaldslaus úthlutun losunarheimilda – Evrópuþingið samþykkir afstöðu um breytt hita- og eldsneytisviðmið. Evrópuþingið samþykkti 22. október sl. breytingartillögur við tillögu framkvæmdastjórnarinnar um viðmið fyrir endurgjaldslausa úthlutun losunarheimilda á árunum 2026–2030 innan viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (e. EU Emissions Trading System, ETS). Þingið vill auka þann fjölda heimilda sem úthlutað er samkvæmt hita- og eldsneytisviðmiðum til að draga úr hættu á að framleiðsla flytjist úr landi vegna kostnaðar við losun. Jafnframt leggur það til að unnt verði að setja sértækari viðmið fyrir einstakar iðngreinar þegar almenn eldsneytisviðmið endurspegla ekki nægilega vel losun og framleiðsluaðstæður þeirra. Málinu var vísað til viðkomandi þingnefndar til samningaviðræðna við ráðið. Nánar um afstöðu Evrópuþingsins. Fyrri umfjöllun í Vaktinni, 31. júlí 2026.

Verðbréfun – pólitískt samkomulag um einfaldari reglur og breyttar eiginfjárkröfur. Framkvæmdastjórn ESB birti 22. október sl. tilkynningu um pólitískt samkomulag Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB frá deginum áður um endurskoðun verðbréfunarreglna. Breytingunum er ætlað að auðvelda fjármálastofnunum að verðbréfa lán og aðrar kröfur og skapa þannig svigrúm til frekari lánveitinga til heimila og fyrirtækja. Samkomulagið felur meðal annars í sér einfaldari kröfur um áreiðanleikakönnun og upplýsingagjöf og breytingar á eiginfjárkröfum þannig að þær taki betur mið af áhættu viðkomandi verðbréfunar. Markmiðið er að efla markaðinn samhliða því að viðhalda vernd fjárfesta og fjármálastöðugleika. Eftir stendur að ljúka tæknilegri útfærslu samkomulagsins og formlegri samþykkt beggja stofnana. Nánar um samkomulagið. Fyrri umfjöllun í Vaktinni, 27. júní 2025.

Markaðsstöðugleikavarasjóður ETS – pólitískt samkomulag þings og ráðs um hærri mörk fyrir ógildingu losunarheimilda. Ráðherraráð ESB birti 28. október sl. samningstexta vegna pólitísks samkomulags við Evrópuþingið frá 20. október um markaðsstöðugleikavarasjóð viðskiptakerfisins (e. Market Stability Reserve, MSR). Samkvæmt samkomulaginu yrði áfram unnt að ógilda losunarheimildir í sjóðnum, en mörkin sem miðað er við yrðu hækkuð úr 400 milljónum í 700 milljónir heimilda. Þannig gæti sjóðurinn varðveitt fleiri heimildir til að bregðast við breytingum á markaði. Framkvæmdastjórnin hafði lagt til að ógildingu heimilda yrði hætt um óákveðinn tíma. Samkomulagið gerir þess í stað ráð fyrir áframhaldandi ógildingu umfram hærri mörk og að stigvaxandi lækkun þeirra verði tekin til umfjöllunar við víðtækari endurskoðun ETS. Formleg samþykkt þings og ráðs er eftir. Nánar um samkomulagið og samningstextann. Fyrri umfjöllun um ETS og markaðsstöðugleikasjóðinn í Vaktinni, 31. júlí 2026.

Af vettvangi dómstólanna

Hér er yfirlit yfir nýlegar úrlausnir dómstóla Evrópusambandsins. Að þessu sinni er ekki tilefni til sérstakrar umfjöllunar um úrlausnir EFTA-dómstólsins.

Ferðatími starfsfólks og vinnutími – dómur Evrópudómstólsins í máli C-420/24. Í málinu reyndi á hvort ferðir starfsmanns að fyrirmælum vinnuveitanda á aðra vinnustaði en venjulega starfsstöð hans og til baka teldust til vinnutíma, þótt þær færu fram utan hefðbundins vinnutíma. Dómstóllinn taldi að ferðatími við þær aðstæður sem lýst var í málinu félli undir hugtakið vinnutíma samkvæmt tilskipun 2003/88/EB um skipulag vinnutíma. Starfsmaðurinn væri þá að sinna skyldum sínum og til ráðstöfunar fyrir vinnuveitandann. Niðurstaðan varðar meðal annars útreikning hámarksvinnutíma og lágmarkshvíldar, en felur ekki sjálfkrafa í sér niðurstöðu um laun fyrir ferðatímann. Á Íslandi hefur tilskipunin verið innleidd með breytingum á lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, þar sem skilgreiningu vinnutíma er að finna í 1. tölul. 52. gr. Dómur Evrópudómstólsins.

Leyfi fyrir skammtímaleigu húsnæðis – dómur Evrópudómstólsins í máli C-813/24. Í málinu fjallaði dómstóllinn um reglur á höfuðborgarsvæðinu í Brussel sem skylduðu rekstraraðila til að tilkynna og skrá gististarfsemi áður en hún hæfist. Við skráningu þurfti meðal annars að leggja fram staðfestingu sveitarfélags á því að notkun húsnæðisins til gistingar fyrir ferðamenn samræmdist gildandi skipulagsreglum. Dómstóllinn taldi að þjónustutilskipun 2006/123/EB gæti tekið til slíkra skipulagskrafna þegar þær væru hluti leyfiskerfis fyrir þjónustuna. Leyfisskylda gæti meðal annars verið réttlætanleg vegna verndar ferðamanna, borgarumhverfis og framboðs íbúðarhúsnæðis, en yrði að vera nauðsynleg og hófleg. Skilyrðin þyrftu jafnframt að vera skýr, hlutlæg og aðgengileg, afgreiðslufrestir ákveðnir fyrir fram og synjanir rökstuddar og kæranlegar. Á Íslandi hefur tilskipunin verið innleidd með lögum nr. 76/2011 um þjónustuviðskipti á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins, sem meðal annars mæla fyrir um kröfur til leyfisveitinga og málsmeðferðar. Dómur Evrópudómstólsins.

Kalkríkt þörungaduft í lífrænum matvælum – dómur Evrópudómstólsins í máli C-295/25. Í málinu reyndi á notkun dufts úr seti þörungsins Lithothamnium calcareum til að auka kalkinnihald lífrænna drykkja úr jurtaríkinu. Dómstóllinn taldi að duftið, sem hafði verið vottað lífrænt og unnið með hreinsun, þurrkun og mölun, teldist lífrænt innihaldsefni úr landbúnaði samkvæmt reglugerð (ESB) 2018/848 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara. Það félli því ekki undir þau ákvæði reglugerðarinnar sem takmarka íblöndun steinefna í lífræn matvæli, þótt tilgangurinn með notkun þess væri að auka kalkinnihald vörunnar. Niðurstaðan tekur til þessa tiltekna innihaldsefnis og framleiðsluaðferðar. Reglugerðin hefur verið tekin upp í íslenskan rétt með reglugerð nr. 205/2023 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænt ræktaðra vara. Dómur Evrópudómstólsins.

Opið samráð framkvæmdastjórnar ESB

Hér er yfirlit yfir opið samráð sem kann að hafa þýðingu fyrir Ísland. Yfirlitið tekur bæði til samráðs í vefgátt framkvæmdastjórnar ESB (e. Have Your Say) og annars opins samráðs sem framkvæmdastjórnin stendur fyrir.

Internal market information system (IMI) – revision of EU rules

Samráðið varðar endurskoðun reglna um upplýsingakerfi innri markaðarins, meðal annars hvernig auðvelda megi stafrænt samstarf og upplýsingaskipti stjórnvalda yfir landamæri.

Frestur til 16. nóvember.

Balanced Approach Regulation – airport noise

Samráðið varðar mat á reglum um hávaðavarnir og rekstrartakmarkanir á flugvöllum.

Frestur til 19. nóvember.

Clean energy – new EU hydrogen strategy

Samráðið varðar endurnýjaða vetnisstefnu ESB, meðal annars leiðir til að auka framleiðslu og notkun endurnýjanlegs vetnis og vetnis með litla kolefnislosun, bæta fjárfestingarskilyrði og draga úr hindrunum við uppbyggingu markaðarins.

Frestur til 23. nóvember.

Jurisdiction rules and recognition and enforcement of judgments – Brussels Ia Regulation (review)

Samráðið varðar endurskoðun reglna um lögsögu dómstóla og viðurkenningu og fullnustu dóma í einkamálum yfir landamæri, meðal annars mögulegar einfaldanir og skýrari reglur um meðferð slíkra mála.

Frestur til 24. nóvember.

Road transport – smart enforcement and simplification

Samráðið varðar einföldun reglna og skilvirkara eftirlit með flutningum á vegum, meðal annars stafræna meðferð skjala og leyfa, upplýsingaskipti stjórnvalda og markvissara eftirlit.

Frestur til 24. nóvember.

Atlantic Maritime and Macro-regional Strategy

Samráðið varðar undirbúning stefnu um samstarf á Atlantshafssvæðinu, meðal annars á sviði hafmála, öryggis, sjálfbærni og samkeppnishæfni.

Frestur til 26. nóvember.

Technical Measures Regulation – implementation

Samráðið varðar framkvæmd reglna um tæknilegar ráðstafanir við fiskveiðar, meðal annars veiðarfæri, möskvastærðir og lokun veiðisvæða, sem og áhrif þeirra á sjálfbærni veiða.

Frestur til 27. nóvember.

International Procurement Instrument – review

Samráðið varðar fyrstu endurskoðun International Procurement Instrument, meðal annars gildissvið og framkvæmd reglnanna og aðgang fyrirtækja að opinberum innkaupamörkuðum.

Frestur til 1. desember.

Digital Services Act – advertising repositories

Samráðið varðar fyrirhugaðar leiðbeiningar um opinber auglýsingasöfn stærstu netvettvanga og leitarvéla, meðal annars aðgengi að auglýsingum og upplýsingum um hverjir greiði fyrir þær og hvaða notendahópum þær beinist að.

Frestur til 2. desember.

Child online safety – EU Kids Act

Samráðið varðar tillögu að reglugerð um öryggi barna á netinu, meðal annars aldurstakmarkanir á samfélagsmiðlum og kröfur til stafrænnar þjónustu og gervigreindarkerfa sem börn nota.

Frestur til 3. desember.

Territorial supply constraints in the Single Market

Samráðið varðar mögulegar aðgerðir gegn takmörkunum framleiðenda á því hvar smásalar og heildsalar geta keypt vörur á innri markaðnum.

Frestur til 4. desember.

European Innovation Act

Samráðið varðar tillögu að regluverki um nýsköpun, meðal annars leiðir til að draga úr hindrunum fyrir vöxt nýsköpunarfyrirtækja á innri markaðnum og bæta aðgang þeirra að fjármagni og mörkuðum.

Frestur til 7. desember.

Affordable Housing Act

Samráðið varðar tillögu að reglugerð um viðráðanlegt húsnæði, meðal annars viðmið til að greina svæði þar sem húsnæðisvandi er mikill og skilyrði fyrir aðgerðum stjórnvalda til að vernda húsnæði til langtímabúsetu, svo sem takmörkunum á skammtímaleigu.

Frestur til 10. desember.

Fair labour mobility package – European Social Security Pass (ESSPASS)

Samráðið varðar tillögu að reglugerð um ESSPASS, stafræna lausn sem á að auðvelda útgáfu og sannprófun almannatryggingaskjala og réttinda yfir landamæri.

Frestur til 10. desember.

Data centres in Europe – minimum performance standards

Samráðið varðar lágmarksviðmið um orkunýtni og umhverfisframmistöðu gagnavera.

Frestur til 14. desember.

EU public procurement rules – revision

Samráðið varðar tillögu að nýju regluverki ESB um opinber innkaup og sérleyfi, meðal annars einföldun og stafræna málsmeðferð, aukna áherslu á öryggi og viðnámsþol og umhverfis-, félags- og nýsköpunarsjónarmið við opinber innkaup.

Frestur til 24. desember.

Standardisation Regulation – revision

Samráðið varðar tillögu að nýju regluverki um evrópska staðla, meðal annars hraðari staðlagerð, aðgang að stöðlum og þátttöku lítilla og meðalstórra fyrirtækja í staðlastarfi.

Frestur til 31. desember.

 

***

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ritstjóri: Sigurður Örn Guðleifsson, sendiráðunautur.

Ábyrgðarmaður: Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra.

Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar á netfangið [email protected].

 

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

 

Var efnið hjálplegt?