Hoppa yfir valmynd

Ferli innleiðingar

Hér gefur að líta ferli sem hægt er að fylgja við innleiðingu jafnlaunastaðalsins.

Áður en ákvörðun er tekin um að innleiða jafnlaunastaðalinn er hægt að kynna sér staðalinn betur, umfang og forsendur innleiðingar á kynningarnámskeiði sem haldið er reglulega hjá Endurmenntun Háskóla Íslands .

Þegar ákvörðun hefur verið tekin um að innleiða staðalinn þarf að setja upp verkáætlun, gera stöðumat (þ.e. fara yfir það hverjir af þeim þáttum sem gerðar eru kröfur um í staðlinum eru til staðar og hvaða umbætur þurfi að gera m.t.t. krafna staðalsins). Hér er m.a. átt við það hvort jafnlaunastefna sé til og hvort hún hafi verið kynnt fyrir starfsfólki og sé þeim aðgengileg, hvort allar ákvarðanir um laun og kjör séu skjalfestar, rökstuddar og rekjanlegar, hvort verklagsreglur fyrir launaákvarðanir séu til og skráðar og hvort hlutverk, ábyrgð og völd séu skilgreind. Helstu þættir stöðumats eru kynntir í gátlista í verkfærakistunni.

Því næst er að gera verkáætlun og felst stærsti þáttur hennar oftast í að flokka störf. Einnig þarf að gera launagreiningu sem er  byggð á starfaflokkuninni og huga að skjölun verklagsreglna.

Að því búnu er rétt að gera svo kallaða innri úttekt eða forúttekt til að meta hvort vinnustaðurinn uppfylli kröfur staðalsins. Að því loknu getur vinnustaður óskað eftir vottun um að kröfum staðalsins sé fullnægt. Þeir vinnustaðir sem fá vottun frá vottunarstofu fá að prýða sig Jafnlaunamerkinu.

Verk-og tímaáætlun – gátlistar

Hér er að finna skapalón fyrir verkáætlun eftir þeim efnisþáttum sem settir eru fram í staðlinum: Stöðumat – Jafnlaunastefna – Umbætur – Skipulagning – Innleiðing & starfræksla – Gátun – Rýni stjórnenda

Sjá einnig:

Námskeið

Endurmenntun Háskóla Íslands hefur verið falið að halda utan um námskeið til að styðja við og auðvelda innleiðingu jafnlaunastaðals hjá stofnunum og fyrirtækjum.

EMBLA - launagreiningartól

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum