Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs um þróunarsamvinnu
Framtíðarvelmegun þróunarlanda byggist á öflugu atvinnulífi sem skapar störf og verðmæti sem geta staðið undir þörfum samfélagsins til langs tíma. Stuðningur við sjálfbæra uppbyggingu einkageirans í þróunarríkjum er því mikilvægur og nauðsynlegur hlekkur við að ná þróunarmarkmiðum jafnt sem heimsmarkmiðum.
Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífsins veitir styrki til íslenskra fyrirtækja vegna verkefna í þróunarríkjum gegn jöfnu eða hærra mótframlagi umsækjenda. Hlutverk sjóðsins er að hvetja einkaaðila til uppbyggingar í þróunarríkjum og draga þannig úr fátækt, stuðla að atvinnusköpun og sjálfbærum vexti í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
- Styrkir úr Heimsmarkmiðasjóði eru veittir á grundvelli reglna nr. 1035/2020 um styrkveitingar utanríkisráðuneytisins til félagasamtaka og fyrirtækja í þróunarsamvinnu.
- Verkefnin skulu vera í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og í samræmi við stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024-2028.
- Verkefnin sem styrkt eru skulu fara fram í löndum sem eru á lista Þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD-DAC) um viðtakendur opinberrar þróunaraðstoðar.
- Verkefni geta fengið styrk fyrir að hámarki 30 m.kr. á þriggja ára tímabili. Styrkþegi skal leggja til mótframlag sem nemur að lágmarki sömu fjárhæð og styrkurinn.
- Mannréttindi, jafnrétti kynjanna og umhverfis- og loftslagsmál eru bæði sértæk og þverlæg áhersluatriði og skulu lögð til grundvallar í öllum verkefnum sem íslensk stjórnvöld styðja.
- Í samræmi við stefnumið um samstarf við atvinnulífið um uppbyggingu í þróunarríkjum er sérstaklega kallað eftir umsóknum um verkefni sem er ætlað að hafa jákvæð umhverfis- og loftslagsáhrif.
- Auk þess er lögð áhersla á stuðning við verkefni sem fela í sér tækifæri til frekari fjárfestinga annarra aðila.
Nánari upplýsingar
Að jafnaði er auglýst eftir umsóknum tvisvar á ári.
Umsókn skal samanstanda af eftirfarandi gögnum:
- Útfyllt umsóknareyðublað
- Verkefnislýsing samkvæmt sniðmáti ráðuneytisins.
- Greinargóð verk - og kostnaðaráætlun þar sem verkþættir og mótframlag fyrirtækis kemur skýrt fram.
- Staðfestur ársreikningur síðasta starfsárs í samræmi við lög um ársreikninga
- Eigendaskrá fyrirtækis.
- Skuldleysisvottorð frá Ríkisskattstjóra.
- Undirrituð yfirlýsing um ríkisstyrki vegna reglna um minniháttaraðstoð (e. de minimis).
- Undirrituð viljayfirlýsing frá samstarfsaðila sem og önnur gögn til stuðnings umsókn.
Allar frekari upplýsingar má finna í verklagsreglum Heimsmarkmiðasjóðs.
Fyrirspurnir og umsóknir skal senda á netfangið [email protected]
Skráðu þig á póstlistann á áskriftarsíðu stjórnarráðsins