Hoppa yfir valmynd

Uppbyggingarsjóður EES

Allt frá gildistöku EES-samningsins hafa EES EFTA-ríkin þrjú skuldbundið sig til að inna af hendi tiltekin framlög til að draga úr efnahagslegu og félagslegu misræmi milli svæða innan EES og stuðla að eflingu viðskipta- og efnahagstengsla samningsaðila, sbr. 115. gr. EES-samningsins. Hefur þetta falist í fjárhagslegum framlögum til þeirra ríkja ESB sem þurfa á stuðningi að halda. Samið hefur verið um framlög til nokkurra ára í senn. Auk greiðslna í Uppbyggingarsjóð EES samþykkti Noregur í tengslum við stækkun ESB með inngöngu nýrra ríkja í byrjun aldarinnar að greiða í sérstakan sjóð, Norska uppbyggingarsjóðinn (e. Norway Grants). Sá sjóður er lítið eitt minni en Uppbyggingarsjóður EES og renna greiðslur úr sjóðnum til allra viðtökuríkja Uppbyggingarsjóðs EES, að Portúgal og Grikklandi undanskildum.

Í september 2024 var undirritað samkomulag, bókun 38d,  vegna nýs sjóðstímabils, frá 1. maí 2021 til 30. apríl 2028 um framlög til 15 ríkja ESB. Skipting greiðslna í sjóðinn innbyrðis milli EES EFTA-ríkjanna er ekki fastákveðin heldur ákvarðast á hverjum tíma út frá tölum um landsframleiðslu (GDP) þeirra. Áætlað hefur verið að framlag Íslands geti numið tæpum 12 milljörðum kr. á tímabilinu.

Í framhaldi af undirritun samkomulagsins hófust viðræður við hvert og eitt viðtökuríki um fyrirkomulag sjóðstímabilsins. Misjafnt er eftir ríkjum hversu langan tíma þær viðræður taka. Að þeim loknum tekur við vinna við ákvörðun og nánari útfærslu einstakra verkefna, en verkefni eru í flestum tilvikum ákveðin að undangengnum opnum köllum.

Uppbyggingarsjóður EES skapar tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki, stofnanir, frjáls félagasamtök og einstaklinga til að taka þátt í verkefnum með samstarfsaðilum í viðtökuríkjunum. Íslensk stjórnvöld leggja í því sambandi áherslu á verkefni á sviði rannsókna, nýsköpunar, menntunar og menningar, orku- og umhverfismála, samfélagslegra umbóta og mannréttindamála, þar með talið jafnréttismála. Rannís er sérstakur samstarfsaðili íslenskra stjórnvalda (e. Donor Programme Partner) vegna framkvæmdar tiltekinna áætlana sjóðsins í nokkrum viðtökuríkjanna. Einnig gegna Umhverfis- og orkustofnun og Íslandsstofa mikilvægu hlutverki varðandi kynningu hér á landi á verkefnum sjóðsins og möguleikum íslenskra aðila til þátttöku í þeim sem samstarfsaðilar. Íslenskir aðilar tóku þátt í yfir 430 samstarfsverkefnum á síðasta sjóðstímabili.

Sjá nánari upplýsingar á vefsíðu skrifstofu Uppbyggingarsjóðs EES (FMO) og Rannís.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta