Hoppa yfir valmynd

Starfsréttindi í heilbrigðisþjónustu

Markmið laga um heilbrigðisstarfsmenn  er að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og öryggi sjúklinga með því að skilgreina kröfur um menntun, kunnáttu og færni heilbrigðisstarfsmanna og starfshætti þeirra. Um réttindi og skyldur heilbrigðisstarfsmanna og annarra starfsmanna í heilbrigðisþjónustu gilda lög um réttindi sjúklinga, lög um landlækni og lýðheilsu, lög um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.

Ráðherra getur ákveðið með reglugerð að fella undir lögin heilbrigðisstéttir sem ekki eru taldar upp í lögunum. Fagfélag viðkomandi starfsstéttar skal sækja um löggildingu til ráðherra og er honum skylt að leita umsagnar landlæknis um umsóknina. Við ákvörðun um það hvort fella eigi starfsstétt undir lögin skal einkum líta til þess hvort löggilding sé nauðsynleg með tilliti til öryggis og hagsmuna sjúklings, þarfar sjúklings fyrir þjónustu starfsstéttar, innihalds og markmiðs menntunar og hvort hún byggist á traustum fræðilegum grunni.

Landlæknir veitir umsækjendum leyfi til að nota starfsheiti löggiltrar heilbrigðisstéttar og til að starfa sem heilbrigðisstarfsmenn hér á landi að uppfylltum skilyrðum laga og reglugerða settra samkvæmt þeim og samkvæmt þeim alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að.

Sjá einnig:

Umsóknareyðublöð og fleira

Umsóknareyðublöð, leiðbeiningar og upplýsingar um gögn sem fylgja skulu umsóknum um starfsleyfi eru á vef Embættis landlæknis.

Síðast uppfært: 17.2.2023
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum