Hoppa yfir valmynd

Málefni hafsins

Höf þekja meginhluta þess svæðis sem telst til norðurslóða og talsverður hluti íbúanna byggir afkomu sína á nýtingu auðlinda sjávar. Vegna stöðu Íslands sem eyríkis og mikilvægis sjávarútvegs í íslensku samfélagi leggur Ísland ríka áherslu á málefni hafsins í starfi sínu innan Norðurskautsráðsins.

Vinnuhópar Norðurskautsráðsins hafa um árabil unnið mikilvægt starf við að meta ástand hafsins, með tilliti til verndar og nýtingar, og verður því fram haldið.

Vakning hefur orðið á síðustu árum varðandi magn plastúrgangs í höfum heimsins. Norðurskautsráðið hefur unnið frumathugun á umfangi úrgangs í norðurhöfum og í formennskutíð Íslands var unnið að mótun áætlunar um aðgerðir til að stemma stigu við þeim vanda. Íslensk stjórnvöld efndu til alþjóðlegrar vísindaráðstefnu vorið 2021, þar sem varpað var ljósi á eðli og útbreiðslu plastmengunar í sjó, áhrif hennar á lífríkið og mögulegar lausnir.

Ísland hefur náð miklum árangri í sjálfbærri nýtingu á auðlindum hafsins og hefur um árabil miðlað þekkingu á því sviði. Í samstarfi við fleiri aðildaríki  var unnið verkefni sem miðaði að því að kortleggja sóknarfæri sem felast í bláa lífhagkerfinu á norðurslóðum. Leitast var við að greina tækifæri til sjálfbærs vaxtar með því að bæta nýtingu á sjávarfangi og ná auknum verðmætum úr aflanum.

Siglingar og haftengd ferðaþjónusta eru vaxandi atvinnugreinar á norðurslóðum og bjóða upp á margvíslega möguleika. Jafnframt kalla aukin umsvif í norðurhöfum á ráðstafanir til að efla mengunarvarnir og getu til leitar og björgunar. Æfingar á grundvelli samninga Norðurskautsríkjanna um leit og björgun og um varnir gegn olíumengun eru haldnar með reglulegu millibili. Landhelgisgæslan tekur þátt í þeim æfingum og er jafnframt aðili að samráðsvettvangi strandgæslustofnana á norðurslóðum þar sem Ísland gegnir formennsku á sama tímabili og í Norðurskautsráðinu.

Síðast uppfært: 5.6.2023 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum