Hoppa yfir valmynd

Andlát erlendis

Við andlát ástvina erlendis þarf að hafa ýmis atriði í huga sem almennt koma ekki til skoðunar þegar aðili fellur frá á Íslandi, t.d. um það hvernig haga skuli samskiptum við erlenda útfararþjónustu og hvernig staðið sé að heimflutningi hins látna til Íslands.  

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins veitir ýmsa aðstoð þegar andlát á sér stað erlendis og hér á eftir er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um þjónustuna sem stendur til boða.

Borgaraþjónustan bendir sérstaklega á að útfararstofur erlendis búa iðulega yfir nákvæmustu og nýjustu upplýsingum um hvernig best er að bera sig að. Útfararstofur geta því veitt ítarlegar upplýsingar og leiðbeiningar í þessum efnum.

Andlát erlendis 

Andlát þarf að skrá í því ríki þar sem það á sér stað. Upplýsingar um hvar á að skrá andlát er unnt að nálgast hjá fararstjórum, lögregluyfirvöldum á staðnum, í sendiráði Íslands gagnvart við­kom­andi ríki eða hjá ræðismanni Íslands ef slíkur er staðsettur í ríkinu.

Æskilegt er að eftirfarandi upplýsingar fylgi tilkynningu:

  • Fullt nafn hins látna og lögheimili.
  • Fæðingardagur og fæðingarstaður.
  • Upplýsingar um vegabréfsnúmer, útgáfustað og útgáfudag þess.
  • Upplýsingar um nánasta aðstandanda hins látna.

Hafi hinn látni þjáðst af smitsjúkdómi á borð við lifrarbólgu eða alnæmi þarf að tilkynna slíkt yfirvöldum á staðnum svo unnt sé að grípa til varúðarráðstafana.

Andlát erlendis – aðstandendur á Íslandi

Aðstandendum kunnugt um andlát

Í þeim tilvikum sem aðstandendur á Íslandi fá upplýsingar um andlát frá þriðja aðila, t.d. frá ferða­skrifstofu eða lögreglu, getur viðkomandi haft samband við borgaraþjónustu utan­ríkis­ráðu­neytisins sem aðstoðar og leiðbeinir á þann hátt sem þörf er á.

Aðstandendum ekki kunnugt um andlát

Þegar íslenskt sendiráð eða ræðismaður Íslands móttekur tilkynningu um andlát íslensks ríkis­borg­ara erlendis er það tilkynnt ríkislögreglustjóra. Hlutverk embættis ríkislögreglustjóra er, eftir atvikum í samstarfi við prest, að tilkynna aðstandendum á Íslandi um andlátið. 

Ef aðstandendur eru ekki staðsettir á Íslandi er óskað eftir aðstoð sendiráðs eða ræðismanns Íslands þar sem vitað er að aðstandandi dveljist. Hlutverk sendiráðs eða ræðismanns er að hlutast til um að aðstandendum verði tilkynnt um andlátið.

Borgaraþjónustan leitast við að upplýsa aðstandendur um andlát svo skjótt sem auðið er.

Hvað getur borgaraþjónustan gert?

  • Leiðbeint og aðstoðað nánustu aðstandendur hins látna og leitast við að tryggja að hagsmuna þeirra sé gætt að öllu leyti.
  • Leiðbeint og veitt upplýsingar í tengslum við flutning hins látna til Íslands.
  • Leiðbeint og aðstoðað aðstandendur við val á útfararstofum þegar jarðsetja á hinn látna erlendis. Sendiráð eða ræðismaður getur sinnt milligöngu í samskiptum við útfararstofu er­lendis þegar jarðsett er og aðstandendur eru ekki viðstaddir.
  • Leiðbeint og aðstoðað aðstandendur þegar bálför fer fram erlendis og flytja þarf duftker til Íslands að henni lokinni. 
  • Við sérstakar aðstæður getur borgaraþjónusta haft milligöngu um millifærslu fjármuna frá vinum eða ættingjum á Íslandi til aðstandenda eða annarra erlendis.
  • Þegar aðstandendur telja að dauðsfall hafi átt sér stað með grunsamlegum hætti er hægt að leiðbeina og upplýsa hvernig vekja skal á því athygli við yfirvöld í viðkomandi ríki. Í þeim til­vik­um er hægt að veita grundvallarupplýsingar um uppbyggingu löggæslu og réttarkerfis í við­kom­andi ríki. Hefji yfirvöld rannsókn þá er hægt að hafa milligöngu um samskipti í tengslum við hana. Í einhverjum tilvikum er þó ekki hægt að fá uppgefnar upplýsingar frá erlendum stjórnvöldum. Í þeim tilvikum er eftir atvikum talið ráðlegt að að­standendur leiti sér lagalegrar aðstoðar í viðkomandi ríki. Borgaraþjónustan getur veitt upp­lýsingar um lögmenn á staðnum sem og um túlkaþjónustu ef þess er þörf.
  • Aðstandendur sem leita aðstoðar borgaraþjónustunnar þegar dauðsfall erlendis hefur borið að höndum, geta reitt sig á að starfsmenn hennar sinni störfum sínum af nærgætni og virðingu.

Hvað getur borgaraþjónustan ekki gert?

  • Ekki tekið þátt í að greiða kostnað við bálför, heimflutning hins látna eða jarðar­för erlendis. Af þeim sökum er mælt með því að einstaklingar ferðist aldrei án ferðatryggingar sem taki til tjóns á erlendri grund, þ.m.t. dauðsfalls. Í einhverjum tilvikum geta tryggingar tekið til ýmiss kostnaðar sem tengist andláti erlendis. Er því einnig mælt með því að hugað sé að þeim atriðum áður en haldið er af landi brott.
  • Ekki rannsakað dauðsföll sem hafa orðið með grunsamlegum hætti. Slíkar rannsóknir eru alfarið í höndum lögregluyfirvalda á staðnum. Borgaraþjónustan getur hins vegar haft milligöngu í samskiptum við yfirvöld og við þá upplýsingaöflun sem heimiluð er.
  • Ekki veitt lögfræðilega ráðgjöf en getur bent á lögmenn sem geta tekið það að sér.
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum