Hoppa yfir valmynd
2. júní 2025 Utanríkisráðuneytið

Stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu áréttaður á leiðtogafundi B9-ríkjanna og Norðurlandanna

Fulltrúar B9 ríkjanna og Norðurlandanna ásamt Mark Rutte framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins og Volodómír Selenskí Úkraínuforseta.. - myndNATO

Leiðtogafundi níu Atlantshafsbandalagsríkja á austurvæng bandalagsins lauk í Vilnius, höfuðborg Litáen, í dag. Um er að ræða samráðshóp hinna svokölluðu B9-ríkja, þ.e. Búlgaríu, Tékkland, Eistland, Ungverjaland, Lettland, Litáen, Pólland, Rúmeníu og Slóvakíu. Að þessu sinni var Norðurlöndunum einnig boðið að taka þátt í leiðtogafundinum og tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra þátt í fundinum fyrir Íslands hönd, í fjarveru Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra.

Tilgangur fundarins var að ræða stöðu öryggis- og varnarmála og ekki síður til að stilla saman strengi hvað varðar málefni Úkraínu í aðdraganda leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins sem fram fer í Haag síðar í mánuðinum. 

Volodómír Selenskí forseti Úkraínu og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, tóku sömuleiðis þátt í fundinum, þar sem samhljómur ríkti um áframhaldandi stuðning við Úkraínu og mikilvægi þess að komandi leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins sendi skýr skilaboð í þá veru. 

„Það er gríðarlega mikilvægt að frá leiðtogafundinum í Haag berist skýr skilaboð um áframhaldandi og óbilandi stuðning Atlantshafsbandalagsins við varnarbaráttu Úkraínu gegn blóðugu og ólöglegu landvinningastríði Rússlands, öryggi bandalagsríkjanna allra til heilla,“ segir Þorgerður Katrín. „Þá er það ekki Rússa að ákveða hvort Úkraína gerist aðildarríki að Atlantshafsbandalaginu, þar sem landið á vissulega heima, það er þeirra sjálfra að ákveða með framtíð sína án utanaðkomandi áhrifa. Ekkert um Úkraínu, án Úkraínu.“

Í yfirlýsingu forseta fundarins er yfirgangur Rússa fordæmdur og stuðningur við Úkraínu áréttaður sem og áform um að hækka verulega framlög til varnar- og öryggismála og hergagnaframleiðslu beggja megin Atlantshafsála.

Á meðan dvöl hennar í Vilnius stóð átti Þorgerður Katrín sömuleiðis fund með Kęstutis Budrys, utanríkisráðherra Litáen, ásamt Mariu Stenergard utanríkisráðherra Svíþjóðar. Þar ræddu ráðherrarnir meðal annars öryggis- og varnarmál við Eystrasalt og í Evrópu, árásarstríð Rússa í Úkraínu, viðbrögð við rússneskum fjölþáttaárásum og skuggaflota Rússlands í Eystrasalti.  

Ríkjahópurinn „Búkarest níu,“ var stofnaður 4. nóvember 2015 í Búkarest, í kjölfar innlimunar Rússlands á Krímskaga Úkraínu og miðar að því að auka varnarsamstarf ríkjanna. 

 
  • Af fundinum. - mynd
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. - mynd
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ásamt Gitanas Nausėda forseta Litáen. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta