Hoppa yfir valmynd
6. júní 2025 Utanríkisráðuneytið

Ísland leggur baráttunni gegn fæðingarfistli lið í Síerra Leóne

Ljósmæðranemar í Síerra Leóne en þjálfaðar ljósmæður gegna lykilhlutverki til að koma í veg fyrir að ný tilfelli fæðingarfistils. - mynd

Alþjóðlegum baráttudegi fyrir útrýmingu fæðingarfistils var minnst nýverið við hátíðlega athöfn í Freetown með þátttöku sendiráðs Íslands, heilbrigðisráðuneytis Síerra Leóne, kvenna sem þjáðst hafa af fæðingarfistli og Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA). Þá var forsætisráðherra landsins heiðursgestur á athöfninni og undirstrikaði í ávarpi sínu ásetning stjórnvalda um að útrýma sjúkdómnum.

Ísland hefur frá árinu 2020 stutt við baráttuna gegn fæðingarfistli í Síerra Leóne í gegnum samstarfsverkefni við þarlend heilbrigðisyfirvöld og UNFPA. Þá hafa íslensk stjórnvöld um árabil stutt við sambærileg verkefni UNFPA gegn fæðingarfistli víða um heim, meðal annars í öðrum samstarfsríkjum Íslands í Afríku; Malaví og Úganda.

Vandamál sem þekkist varla á Vesturlöndum

Fæðingarfistill getur myndast þegar vandamál koma upp við fæðingu, sérstaklega hjá unglingsstúlkum sem ekki fá viðeigandi aðstoð, og þá eru dæmi að barnungar stúlkur fái fæðingarfistil eftir kynferðislegt ofbeldi. Afleiðingarnar eru bæði líkamlegar og félagslegar. Mikill líkamlegur sársauki fylgir fæðingarfistli, til dæmis þegar hann myndast milli ristils og legganga með þeim afleiðingum að stúlkurnar hafa ekki lengur stjórn á þvaglátum og/eða hægðum og getur leitt til félagslegrar útskúfunar. Fæðingarfistill er alvarlegt og viðvarandi vandamál í fátækustu ríkjum heims þar sem algengt er að barnungar stúlkur eignist börn, en þekkist varla á Vesturlöndum. 

„Fæðingarfistill er ekki eingöngu heilsufarsmál heldur einnig birtingarmynd kynjaójafnréttis, því jaðarsettar konur og stúlkur sem búa við fátækt og á afskekktum svæðum eru líklegri til að þjást sökum hans. Íslensk stjórnvöld eru stolt af samstarfinu við heilbrigðisyfirvöld í Síerra Leóne, UNFPA og frjáls félagasamtök um að útrýma fæðingarfistli í landinu,“ segir Ásdís Bjarnadóttir forstöðumaður sendiráðs Íslands í Freetown. „Framkvæmd verkefnisins hefur leitt í ljós mikilvægi þess að beita heildrænni nálgun sem tekur bæði á orsökum og afleiðingum fistilsins, til að ná árangri og stuðla að umbreytandi áhrifum og valdeflingu kvenna.“ 

Verkefni í samræmi við áherslur Íslands í þróunarsamvinnu

Í ávarpi sínu lagði Ásdís áherslu á að kynjajafnrétti og virðing fyrir mannréttindum séu hornsteinar alþjóðlegrar þróunarsamvinnu Íslands og því rími útrýming fæðingarfistils ágætlega við þær áherslur. Þá sé sömuleiðis lögð sérstök áhersla í þróunarsamvinnu Íslands í tvíhliða samstarfslöndum að ná til þeirra fátækustu þar sem þörfin er mest.

Samstafsverkefnið í Síerra Leóne miðar að því að styrkja forvarnir og viðbrögð við fæðingarfistli, meðal annars með vitundarvakningu um orsakir fæðingarfistils og mikilvægi þess að konur leiti heilbrigðisaðstoðar á meðgöngu. Þar að auki er lagt upp með að styrkja getu heilbrigðisstofnana til að efla mæðravernd og fæðingarþjónustu, sem skiptir sköpum til að fyrirbyggja frekari tilfelli fæðingarfistils. Auk þess að veita konum viðunandi læknismeðferð, t.a.m. með ókeypis skurðaðgerðum til að lækna fistilinn, sem og stuðning við félagslega aðlögun eftir aðgerð meðal annars með sérstakri þjálfun sem styrkir afkomugrundvöll kvennanna.

Að lokum má geta þess að á síðasta ári vannst umtalsverður árangur við framkvæmd samstarfsverkefnisins:

Yfir 700 konur voru skimaðar fyrir fæðingarfistli og meira en 200 undirgengust aðgerð gegn kvillanum. Stutt var við þær sem fóru í aðgerð með endurhæfingu og færniþjálfun.  
135 konur sem höfðu undirgengist aðgerð við fæðingarfistli tóku þátt í ítarlegri stafsþjálfun sem miðar að því að auðvelda þeim að sameinast aftur samfélaginu eftir aðgerðina og styrkja afkomugrundvöll þeirra.  
Verkefnið náði til 400,000 manns með upplýsingar um fæðingarfistil og kyn- og frjósemisheilbrigði en þessu var áorkað í gegnum upplýsingaherferðir í útvarpi og á samfélagsmiðlum.
Rúmlega 28,000 einstaklingar fengu fræðslu og þjálfun um kyn- og frjósemisheilbrigði og -réttindi, þ.m.t. fæðingafistil.
Meira en 36,000 konur fengu aðgang að bættri kyn- og frjósemisheilbrigði þjónustu í 15 heilsugæslum sem studdar eru af verkefninu.
642 heilbrigðisstarfsmenn fengu þjálfun í meðhöndlun fæðingarfistils.
Ný skurðstofa til meðhöndlunar fæðingarfistils var opnuð ríkissjúkrahúsinu í borginni Bo.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta