Um 7000 kröfur bætast við tjónaskrá fyrir Úkraínu
Stjórn tjónaskrár fyrir Úkraínu, sem komið var á fót á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík árið 2023, fundaði í vikunni í Reykjavík. Þar voru skráðar tæplega sjö þúsund nýjar kröfur í tjónaskrána, sem ætluð er til að tryggja réttindi þeirra sem orðið hafa fyrir tjóni vegna ólöglegrar allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu. Heildarfjöldi krafna í tjónaskránni eru nú um 35 þúsund talsins. Tjónaskráin leggur grunn að starfi skaðabótanefndar sem unnið er að stofnsetja.
Um var að ræða sjöunda stjórnarfund tjónaskrárinnar sem nú boðaði til fundar í Reykjavík í boði Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Stjórnin átti fund með utanríkisráðherra í dag.
„Ísland getur verið stolt af sínu hlutverki í þessari mikilvægu vegferð. Við erum að sjá markmið okkar frá leiðtogafundinum í Reykjavík raungerast. Rússar munu þurfa að svara fyrir sín grimmilegu og stórfelldu brot í Úkraínu, og þessi vinna er liður í því,“ segir Þorgerður Katrín. „Við erum rétt að byrja og það er mikilvægt að alþjóðasamfélagið missi ekki sjónar á markmiðinu, sem er að sjálfsögðu að koma á varanlegum friði í Úkraínu og Rússar bæti það tjón sem þeir hafa valdið.“
Róbert Spanó er formaður stjórnarinnar en auk hans eiga þar sæti sérfræðingar frá Ítalíu, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Póllandi, Finnlandi og Úkraínu. Markiyan Kliuchkovskyi frá Úkraínu gegnir stöðu framkvæmdastjóra.
Í tengslum við framangreinda fundi var efnt til opinnar málstofu í dag á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og UNICEF á Íslandi undir yfirskriftinni „Réttlæti og ábyrgð: Vernd barna í Úkraínu“ þar sem utanríkisráðherra hélt opnunarræðu. Þá fluttu Róbert Spanó og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttur, sérstakur erindreki framkvæmdastjóra Evrópuráðsins gagnvart úkraínskum börnum, sömuleiðis ávörp ásamt því að taka þátt í pallborðsumræðum með Yuliu Kyrpa, framkvæmdastjóra hjá AEQUO og stjórnarmanni hjá tjónaskrá Evrópuráðsins fyrir Úkraínu, og Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi.