Hoppa yfir valmynd
5. maí 2025 Utanríkisráðuneytið

Tvíhliða samráð Íslands og Bretlands

Fulltrúar Íslands og Bretlands. - mynd

Staða alþjóðamála og aukið samstarf á sviði varnarmála voru meðal umræðuefna í reglulegu tvíhliða pólitísku samráði Íslands og Bretlands sem fram fór í London í síðustu viku. Árlegu samráði ríkjanna var hleypt af stokkunum árið 2019, en Bretland er eitt af nánustu samstarfsríkjum Íslands bæði á hinu pólitíska sviði og í varnarmálum. 

Samráðið var í tvennu lagi að þessu sinni. Í fyrri hlutanum fóru fram aðskilin samráð um alþjóðapólitísk málefni annars vegar og á sviði varnarmála hins vegar. Seinni hluti samráðsins var svo sameiginlegur fundur um öryggis-og varnarmál. Rætt var um tækifæri til aukins tvíhliða samstarfs ríkjanna, s.s. vísindasamstarf, og aukið samstarf á sviði varnarmála, einkum á norðurslóðum. Málefni Úkraínu voru sömuleiðis til umræðu sem og áskoranir á vettvangi alþjóðastofnana og samstarf á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf, en Ísland tók sæti í ráðinu um síðustu áramót. Málefni Mið-Austurlanda, Norðurslóða og Kína voru einnig til umræðu. 

Anna Hjartardóttir, varaskrifstofustjóri skrifstofu alþjóðapólitískra málefna og  Jónas Allansson, skrifstofustjóri varnamálaskrifstofu, leiddu sendinefnd Íslands. Ruth Wiseman, yfirmaður Norður- og Mið-Evrópumála í breska utanríkisráðuneytinu, fór fyrir heimafólki í London. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta