Verkefni
Friðsamlegar lausnir, sjálfbær þróun, jafnrétti kynjanna, lýðræði og mannréttindi eru hornsteinar íslenskrar utanríkisstefnu.
Ráðuneyti
UtanríkisráðuneytiðKafli
Utanríkis- og alþjóðamál og þróunarsamvinna
Framvinda
Alþingi samþykkti einróma 15. desember þingsályktun um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024-2028. Stefnan byggir á því sem vel hefur tekist á undanförnum árum, niðurstöðum úttekta og nýafstaðinni jafningjarýni Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) þar sem meðal annars var lögð áhersla á mikilvægi þess að Ísland hafi áfram skýra og einbeitta nálgun í sinni þróunarsamvinnu.Utanríkisráðherra mun leggja fram árlega skýrslu um utanríkismál til Alþingis í apríl. Í henni gerir hann sérstaklega grein fyrir helstu áherslum og stefnu ríkisstjórnarinnar og tekur til allra þátta utanríkisstefnunnar á sviðum viðskipta, pólitískra samskipta, þróunarsamvinnu og varnarmála auk fjölþjóðlegs samstarfs á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Staða verkefnis
Komið vel á vegViðvarandi verkefni