Verkefni
Endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar verða framlengdar og farið yfir framkvæmd þeirra og eftirlit. Tímabundin hækkun endurgreiðsluhlutfalls vegna kostnaðar sem fellur til við rannsóknir og þróun verður gerð varanleg.
Ráðuneyti
Fjármála- og efnahagsráðuneytiðKafli
Iðnaður og nýsköpun
Framvinda
OECD vann úttekt á stuðningi við nýsköpunarfyrirtæki og skilaði skýrslu í nóvember 2023. Helstu niðurstöður skýrslunnar eru að skattastuðningur vegna rannsókna og þróunar hafi hvetjandi og jákvæð áhrif á fyrirtæki til frekari fjárfestinga. Er þá sérstaklega horft til lítilla og meðalstórra fyrirtækja.OECD bendir á að auka þurfi gagnasöfnun og greiningu á stuðningum til að hægt sé að leggja betra mat árangur stuðningsins og bæta þurfi samvinnu stofnana sem koma að málaflokknum. Fjármála- og efnahagsráðuneytið mun ásamt háskóla- iðnaðar og nýsköpurnarráðuneytinu vinna úr tillögum úttektarinnar.