Verkefni
Lögð verður áhersla á frjáls og opin alþjóðaviðskipti og greiðan aðgang íslensks atvinnulífs að erlendum mörkuðum. Haldið verður áfram að afnema viðskiptahindranir og horft til þess að fjölga fríverslunarsamningum, bæði tvíhliða og í samvinnu við önnur EFTA-ríki.
Ráðuneyti
UtanríkisráðuneytiðKafli
Utanríkis- og alþjóðamál og þróunarsamvinna
Framvinda
Fríverslunarsamningaviðræður eru í gangi með Taílandi, Indlandi, Singapúr, og Víetnam á vettvangi EFTA. Viðræðum EFTA með Moldovu er lokið og var fríverslunarsamningurinn undirritaður á ráðherrafundi EFTA í júní 2023. Samkomulag náðist milli EFTA og Síle í janúar 2024 um uppfærslu fríverslunarsamnings og viðræður við Úkraínu um uppfærslu fríverslunarsamnings munu hefjast í apríl 2024. Efnahagssamráð við Bandaríkin fer fram í Portland í apríl 2024 og samráð milli EFTA og viðskiptaráðuneytis Bandaríkjanna fór fram í Washington í desember 2023. Stefnt er að halda í vor fund sameiginlegrar nefndar Kína og Íslands á grundvelli fríverslunarsamnings ríkjanna. Fastafulltrúi Íslands gagnvart WTO leiðir viðræður um ríkisstyrki í sjávarútvegi og stefnt á að ná niðurstöðu fyrir ráðherrafund WTO í febrúar 2024. Áfram er unnið að gerð loftferðasamninga og tvísköttunarsamninga.Staða verkefnis
HafiðViðvarandi verkefni