Mikilvægt skref í stafrænni þróun á landsvísu
Heilbrigðisráðuneytið hefur undanfarið unnið ýtarlega úttekt á stafrænum sjúkraskrárkerfum fjögurra heilbrigðisstofnana og notkun þeirra. Tilgangurinn er að meta hve greiðlega upplýsingar um sjúklinga skila sér milli þjónustuveitenda þannig að þær nýtist sem best í þágu sjúklinga sem þurfa að leita sér heilbrigðisþjónustu á ólíkum stöðum og mismunandi þjónustustigum. Niðurstöður úttektarinnar verða kynntar og ræddar á vinnustofu í byrjun júní.
Úttektin og vinnustofan eru hluti af staðlaðri greiningarvinnu sem byggir á matstækjum og ferlum alþjóðlegra samtaka stafrænna mála í heilbrigðisþjónustu HIMSS (Healthcare Information and Management Systems Society). Heilbrigðisráðuneytið ákvað fyrr á þessu ári að ráðast í úttekt af þessu tagi til að fá heildstæða mynd af stöðu stafrænnar umbreytingar í heilbrigðiskerfinu.
Stofnanirnar sem úttektin náði til eru Landspítali, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Heilbrigðisstofnun Austurlands og Orkuhúsið. Þegar verkefninu lýkur verður hægt að sjá á stöðluðum árangurskvarða hver staðan er í þessum málum hér á landi í samanburði við önnur lönd eða landsvæði. Þar sem matið er staðlað gefa niðurstöðurnar glögga mynd af stöðunni og raunsannan samanburð. Fulltrúar framantalinna stofnana taka þátt í vinnustofunni ásamt fulltrúum frá Sjúkrahúsinu á Akureyri, Sjúkratryggingum Íslands, embætti landlæknis og Island.is.
Afurð vinnustofunnar verður í fyrsta lagi heildstæð einkunn Íslands á frammistöðukvarða sem gefur góða mynd af því hvar við erum stödd í stafrænni umbreytingu. Niðurstöðunni fylgja jafnframt skýrar ábendingar um hvað hægt sé að gera til að efla og bæta upplýsingakerfin og notkun þeirra. Enn fremur er hægt að framkvæma endurmat að einhverjum árum liðnum til að sjá hvað hefur áunnist og hvað megi enn bæta.
Greið og örugg miðlum sjúkraskrárupplýsinga milli þjónustuveitenda er ein af forsendum góðrar og öruggrar heilbrigðisþjónustu. Þessar upplýsingar þurfa að vera sem mest staðlaðar og aðgengilegar því heilbrigðisstarfsfólki sem kemur að meðferð sjúklings á öllum þjónustustigum.