Hoppa yfir valmynd

Nefnd til að meta hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana

Heilbrigðisráðuneytið

Samkvæmt 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, skipar heilbrigðisráðherra nefnd til að meta hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana.

Hlutverk nefndarinnar er að meta hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana. Heilbrigðisráðherra skipar alla fulltrúa nefndarinnar án tilnefningar sem skulu hafa þekkingu á rekstri, starfsmannamálum, stjórnsýslu og heilbrigðisþjónustu. Engan má skipa til starfa nema nefndin hafi talið hann hæfan.

Auglýsing um staðfestingu starfsreglna nefndarinnar nr. 295/2009.

Aðalmenn

  • Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og formaður stjórnar Reykjalundar, formaður
  • Bjarni S. Jónasson, fyrrv. forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri
  • Gyða Baldursdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Lyflækningasviðs Landspítala

Varamenn

  • Magnús Karl Magnússon, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands
  • Guðjón Hauksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands
  • Anna Björg Jónsdóttir, yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala

Nefndin er skipuð af heilbrigðisráðherra frá 1. apríl 2021 til 31. mars 2025.

Fastanefndir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum