Hoppa yfir valmynd

Prófnefnd um réttindi til að verða héraðsdómslögmaður

Dómsmálaráðuneytið

Í lögum nr. 77/1998 um lögmenn segir í 7. gr.:

Umsækjandi um réttindi til að vera héraðsdómslögmaður verður að standast prófraun sem þriggja manna prófnefnd annast. Dómsmálaráðherra skipar nefndina til fjögurra ára í senn. Skal skipa einn nefndarmann eftir tilnefningu Lögmannafélags Íslands, annan samkvæmt tilnefningu lagadeildar Háskóla Íslands, en þann þriðja án tilnefningar og skal hann ekki vera starfandi lögmaður. Jafnmargir varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Ráðherra skipar nefndinni formann, svo og varaformann úr röðum varamanna.

Aðalmenn

  • Þorsteinn Davíðsson héraðsdómari, og jafnframt formaður, tilnefndur af dómsmálaráðherra,
  • Berglind Svavarsdóttir lögmaður, tilnefnd af Lögmannafélagi Íslands,
  • Kristinn Halldórsson landsréttardómari, tilnefndur af Dómarafélagi Íslands.


Varamenn

  • Kristín Benediktsdóttir dósent, og jafnframt varaformaður, tilnefnd af dómsmálaráðherra,
  • Reimar Pétursson lögmaður, tilnefndur af Lögmannafélagi Íslands,
  • Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari, tilnefnd af Dómarafélagi Íslands.

Skipunartími nefndarinnar er frá og með 26. mars 2023 til og með 25. mars 2027 eða til fjögurra ára.

Fastanefndir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum