Hoppa yfir valmynd
1. júlí 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Ákvörðun tekin um að hefja undirbúning á að rannsóknir á leghálssýnum verði fluttar til Landspítala

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins  - mynd

Rétt í þessu birtist fréttatilkynning á heimasíðu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þar sem eftirfarandi kemur fram:

Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins greinir frá eftirfarandi í samráði við heilbrigðisráðuneytið:

Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins, hefur tekið ákvörðun um að hefja undirbúning á að rannsóknir á leghálssýnum verði fluttar til Landspítalans. 
Ákvörðunin byggist á því að Landspítali telur sig nú geta sinnt rannsóknunum en einnig til að koma til móts við athugasemdir fagaðila og almennings.

Áður en af flutningi verður er mikilvægt að öllum undirbúningi sé lokið og öllum nauðsynlegum forsendum fullnægt, hvort sem er HPV mælingar eða skoðun frumusýna, Embætti Landlæknis hefur metið forsendur flutnings og bent á hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að Landspítali geti tekið að sér rannsóknir leghálssýna. Undirbúningur flutnings mun taka mið af forsendum og skilyrðum EL. Flutningur rannsókna leghálssýna verður unninn í samráði við helstu aðila sem koma að skimun leghálssýna, ss. Landspítali, sérfræðingar í kvensjúkdómum. Lögð er áhersla á að skimunarskrá verði tilbúin til notkunar enda er skimunarskrá mikilvæg og lykilatriði við allar skimanir.

Undirbúningur að flutningi hefst nú þegar en krefst tíma því nauðsynlegt er að tryggja gæði og öryggi rannsóknanna í hvívetna. Stefnt er að því að yfirfærsla geti orðið um áramótin n.k., að því gefnu að unnt reynist að uppfylla allar kröfur fyrir þann tíma.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum