Hoppa yfir valmynd
5. júní 2020 Heilbrigðisráðuneytið

Ákvörðun um gjaldtöku fyrir skimun á landamærum

Farþegar sem koma til landsins og kjósa að fara í sýnatöku vegna Covid-19 fremur en að sitja 14 daga í sóttkví, munu frá 1. júlí næstkomandi greiða 15.000 kr. gjald vegna sýnatökunnar. Sýnataka á landamærum hefst 15. júní og verður gjaldfrjáls fyrstu tvær vikurnar. Börn fædd árið 2005 eða síðar þurfa ekki að fara í sýnatöku. Tillaga heilbrigðisráðherra um gjaldtökuna var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í dag.

Eins og fram kemur í greinargerð sem kynnt var á síðasta ríkisstjórnarfundi, mæla hagfræðileg rök með því að ferðamenn verði látnir greiða fyrir kostnað við sýnatöku. Nú liggur fyrir að alþjóðaheilbrigðisreglugerðin stendur ekki í vegi fyrir slíkri gjaldtöku, enda sé sýnatakan valkvæð og tilkynnt með hæfilegum fyrirvara.

Gjaldið sem innheimt verður frá 1. júlí næstkomandi miðast við beinan kostnað ríkisins annan en stofnkostnað og er miðað við fyrirliggjandi kostnaðargreiningu sem fram kemur í skýrslu verkefnisstjórnar um sýnatöku fyrir COVID-19 á landamærum sem kynnt var í ríkisstjórn 26. maí síðastliðinn.

Líkt og fram kom á fréttamannasfundi ríkisstjórnarinnar 12. maí síðastliðinn var talið rétt að sýnataka á landamærum yrði farþegum að kostnaðarlausu í upphafi meðan verið væri að ýta úrræðinu úr vör og leysa úr mögulegum hnökrum.

Lagaheimild til gjaldtöku vegna sýnatökunnar er í lögum um sjúkratryggingar og mun heilbrigðisráðherra gefa út reglugerð um gjaldtökuna og fleiri atriði sem varða sýnatökuverkefnið á næstu dögum.

Upplýsingar sóttvarnarlæknis um ráðstafanir fyrir ferðamenn sem koma til landsins eftir 15. júní nk. er að finna hér.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum