Hoppa yfir valmynd
13. september 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Ingibjörg Isaksen leiðir vinnu í málefnum aldraðra

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, ásamt Ingibjörgu Ólöfu Isaksen, formanni hópsins. - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, skipaði fyrr í mánuðinum starfshóp sem ætlað er að fjalla um málefni aldraðra á breiðum grundvelli og var fyrsti fundur hópsins haldinn í dag.

Formaður hópsins er Ingibjörg Ólöf Isaksen, bæjarfulltrúi á Akureyri og framkvæmdastjóri Læknastofa Akureyrar. Aðrir meðlimir eru Arnar Þór Sævarsson, tilnefndur af félagsmálaráðuneytinu, Guðlaug Einarsdóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneytinu, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, tilnefnd af Landssambandi eldri borgara, Haukur Halldórsson, tilnefndur af Landssambandi eldri borgara, Þorbjörn Guðmundsson, tilnefndur af Landssambandi eldri borgara, Bergþóra Benediktsdóttir, tilnefnd af forsætisráðuneytinu  og Steingrímur Ari Arason, tilnefndur af fjármálaráðuneytinu.

Áður hafði Ásmundur Einar skipað starfshóp um kjör aldraðra og skilaði hann skýrslu í desember 2018 þar sem fram komu tillögur um hvernig bæta megi kjör þeirra aldraðra sem búa við lökustu kjörin í þjóðfélaginu. Frumvarp þess efnis verður lagt fram í vetur. Nýja hópnum er ætlað að skoða málefni aldraðra í víðara samhengi.

„Mikilvægt er að bregðast við yfirvofandi fjölgun í elstu aldurshópum og breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar og eru áskoranirnar af ýmsum toga. Gera þarf öldruðum kleift að auka ráðstöfunartekjur sínar með aukinni atvinnuþátttöku þegar það á við en á sama tíma þarf að tryggja fullnægjandi mönnun og þjónustu innan öldrunargeirans fyrir þá sem á þurfa að halda,“ segir Ásmundur Einar.

Verkefni hópsins eru meðal annars að fjalla um hvernig fyrirkomulagi öldrunarþjónustu verði best háttað. Eins að fjalla um lífskjör aldraðra, lífsskilyrði, hvernig nýta megi nútímatækni betur í þágu aldraðra, hvort breyta eigi því fyrirkomulagi sem nú er í gildi varðandi greiðsluþátttöku íbúa á hjúkrunarheimilum og hvernig stytta megi biðtíma eftir hjúkrunarrýmum og bæta þjónustu.

Starfshópnum er heimilt að skila áfangaskýrslu eftir því sem vinnunni vindur fram. Gert er ráð fyrir að hann skili lokatillögum í síðasta lagi vorið 2021.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum