Hoppa yfir valmynd
2. september 2020 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Kristján Þór opnar fyrir umsóknir í Matvælasjóð

Gunnar Þorgeirsson, formaður BÍ og stjórnarmaður Matvælasjóðs, Gréta María Grétarsdóttir, formaður stjórnar, Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS og stjórnarmaður Matvælasjóðs. Á myndina vantar Karl Frímannsson, stjórnarmann í Matvælasjóði.  - myndGolli

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, opnaði í dag formlega fyrir umsóknir í nýjan Matvælasjóð. Frumvarp ráðherra um stofnun sjóðsins var samþykkt á Alþingi í apríl sl. og var alls 500 milljónum króna varið til stofnunar sjóðsins og verður þeim úthlutað á þessu ári. Hlutverk sjóðsins að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:

„Það er stundum sagt að við þurfum að framleiða okkur út úr núverandi ástandi – að það sé lykilatriði í þeirri viðspyrnu sem nú tekur við að við sköpum meiri verðmæti. Það er hárrétt enda erum við Íslendingar matvælaþjóð. Byggjum afkomu okkar öfluga samfélags að stórum hluta á því að nýta auðlindir okkar með sjálfbærum hætti, bæði til sjós og lands. Þessi áhersla og uppruni okkar er einmitt kjarnahlutverk Matvælasjóðs – að styrkja verðmætasköpun við framleiðslu, vinnslu og markaðssetningu matvæla um allt land. Að leggja sérstaka áherslu á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og almennar aðgerðir til að bæta samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu. Því er stofnun Matvælasjóðs ekki bara skref í rétt átt – heldur ein forsenda þeirrar sóknar sem fram undan er í íslenskri matvælaframleiðslu“

Áhersla er lögð á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu. Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna.

Gréta María Grétarsdóttir, formaður stjórnar sjóðsins, kynnti sjóðinn og deildir hans við opnunina í morgun en Matvælasjóður hefur fjórar deildir:

Kelda styrkir rannsóknaverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu.

Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð.

Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi. Styrkur úr Báru fleytir hugmynd yfir í verkefni.

Fjársjóður styrkir sókn á markað. Fjársjóður er samansafn verðmætra hluta og styrkir fyrirtæki til að koma sínum verðmætum á framfæri.

 

Gréta María Grétarsdóttir, formaður stjórnar Matvælasjóðs:

„Miklir möguleikar eru til staðar tengdir matvælaframleiðslu á Íslandi og það eru mörg tækifæri sem fylgja því að búa í nálægð við auðlindir. Fyrir vikið gerum við auðvitað ráð fyrir að fá margar umsóknir. Við vitum að íslenskt hráefni er eftirsóknarvert og í því felast mörg tækifæri til að auka vægi íslenskrar framleiðslu í fæðu okkar samhliða því að stuðla að sjálfbærni og minni umhverfisáhrifum. Við stöndum frammi fyrir stórum áskorunum, en  með því að nýta betur það sem til fellur í framleiðsluferlinu getum við stuðlað að minni sóun og aukið verðmætin samhliða. Verkefnin sem rúmast innan sjóðsins verða mjög fjölbreytt og munu styrkja samkeppnishæfni okkar.“

 

Umsóknarfrestur er til og með 21. september 2020

 

Fundinum var streymt og hægt er að horfa á kynninguna hér. 

Glærukynningu má nálgasthér

 

Allar nánari upplýsingar um Matvælasjóð má finna á vefsíðunni www.matvaelasjodur.is

 

 

  • Kristján Þór opnar fyrir umsóknir í Matvælasjóð - mynd úr myndasafni númer 1
  • Kristján Þór opnar fyrir umsóknir í Matvælasjóð - mynd úr myndasafni númer 2

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
14. Líf í vatni
11. Sjálfbærar borgir og samfélög
2. Ekkert hungur
9. Nýsköpun og uppbygging
15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum