Hoppa yfir valmynd
26. febrúar 2021 Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Matvælaráðuneytið

Ríkisstjórnin styrkir kaup á minnisvarða um Hans Jónatan og gerð afsteypu af styttu Nínu Sæmundsson

Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun var ákveðið að veita styrki annars vegar til kaupa á minnisvarða um Hans Jónatan og hins vegar til gerðar afsteypu af styttunni „Afrekshugur“ eftir Nínu Sæmundsson.

Sveitarstjórn Múlaþings fær 3 milljóna króna styrk til kaupa á verkinu „Frelsi“ eftir Sigurð Guðmundsson myndlistarmann. Verkið sem sett verður upp á Djúpavogi er minnisvarði um Hans Jónatan, bónda og verslunarmann. Hans Jónatan fæddist sem þræll í nýlendu Dana í Vestur-Indíum árið 1784. Hann strauk til Íslands frá Kaupmannahöfn 1802 og lifði hér sem frjáls maður á Djúpavogi.

Þá verður áhugamannafélaginu Afrekshug heim veittur 4 milljóna króna styrkur til gerðar afsteypu af styttunni „Afrekshugur“ eftir Nínu Sæmundsson. Ætlunin er að finna höggmyndinni stað á Hvolsvelli en Nína fæddist í Nikulásarhúsum í Fljótshlíð árið 1892. Frumgerð verksins „Afrekshugur“ stendur yfir anddyri Waldorf Astoria hótelsins í New York. Með verkinu bar Nína sigur úr býtum í hugmyndasamkeppni árið 1931.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum