Hoppa yfir valmynd
25. ágúst 2020 Heilbrigðisráðuneytið

Ný auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar

Ný auglýsing heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar tekur gildi 28. ágúst næstkomandi og gildir til og með 10. september. Litlar breytingar verða á þeim takmörkunum sem nú gilda og er það í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra sem fram koma í meðfylgjandi minnisblaði. Þær breytingar sem þó verða gerðar eru raktar hér að neðan. Efnið var kynnt á fundi ríkisstjórnar í dag.

Auglýsingin tekur ekki til skólastarfs eins og núgildandi auglýsing, heldur er fjallað sérstaklega um takmarkanir á skólahaldi í auglýsingu sem tók gildi 21. ágúst sl. og gildir til 29. september næstkomandi. Sú auglýsing er einnig í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis og var unnin í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Markmiðið með þeirri auglýsingu er að raska sem minnst skólastarfi vegna COVID-19 þrátt fyrir að gætt sé að sóttvarnasjónarmiðum.

Helstu breytingar:

  • 2 metra reglan: Ákvæði um almenna nálægðartakmörkun er breytt. Þar sem nú er kveðið á um að rekstraraðilar skuli tryggja að hægt sé að tryggja að minnsta kosti 2 metra milli einstaklinga sem ekki deila heimili verður ákvæðið þannig að tryggja beri að hægt sé að tryggja að minnsta kosti 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum. 
  • Íþróttir: Samkvæmt nýju auglýsingunni verða íþróttir almennt leyfðar. Þær íþróttagreinar sem ekki heyra undir ÍSÍ (Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands) skulu setja sér leiðbeiningar eða fylgja sömu leiðbeiningum og sambærilegar íþróttagreinar innan ÍSÍ.
  • Sviðslistir, tónlist og kvikmyndataka: Snertingar verða heimilar á æfingum í sviðslistum og tónlist á sama hátt og í íþróttum. Sama gildir um kvikmyndatöku.
  • Líkamsræktarstöðvar: Takmarkanir vegna sérstakrar smithættu verða þær sömu á líkamsræktarstöðvum og á sund- og baðstöðvum. Gestir mega þar aldrei vera fleiri en nemur helmingi eða minna af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. 

Eins og áður segir tekur ný auglýsing um takmarkanir á samkomum gildi 28. ágúst og gildir til og með 10. september.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum