Hoppa yfir valmynd
24. ágúst 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Ráðist í endurskoðun á mats- og greiðslukerfi hjúkrunarheimila

Heilbrigðisráðherra hefur skipað vinnuhóp til að endurskoða greiðslukerfi til rekstrar hjúkrunarheimila. Skipun hópsins er í samræmi við viljayfirlýsingu ráðherra í tengslum við samninga Sjúkratrygginga Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu um rekstur hjúkrunarheimila sem gerðir voru síðastliðið vor.

Samið var til þriggja ára og voru aðilar sammála  um að nýta samningstímann til að vinna  að bættu rekstrarumhverfi og auknum gæðum hjúkrunarheimila til framtíðar. Einn liður í því er endurskoðun á núverandi greiðslukerfi sem byggist aðallega á mælingum á hjúkrunarþyngd íbúa heimilanna og að kanna hvort tengja eigi greiðslur við gæðavísa.

Í vinnuhópnum eiga sæti:

  • Heiðbjört Ófeigsdóttir, tilnefnd af Sjúkratryggingum Íslands, formaður
  • Elsa B. Friðfinnsdóttir, skipuð án tilnefningar
  • Linda Garðarsdóttir, skipuð án tilnefningar
  • Sigurjón Norberg Kjærnested, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu
  • Varamaður: María Fjóla Harðardóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu
  • Lovísa Agnes Jónsdóttir, tilnefnd af embætti landlæknis
  • Valgerður Freyja Ágústsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Gert er ráð fyrir að vinnuhópurinn skili ráðherra niðurstöðum sínum eigi síðar en 15. maí 2023.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum