Hoppa yfir valmynd
27. nóvember 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Hámarksgeymslutími kynfruma lengdur

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að breyta reglugerð um tæknifrjóvgun þannig að hámarksgeymslutími kynfruma verði lengdur úr tíu árum í tuttugu. Breytingin er einkum til hagsbóta fyrir ungt fólk sem af einhverjum ástæðum vilja geyma kynfrumur sínar lengur en nú er heimilt, til dæmis vegna illkynja sjúkóma, kynleiðréttingarferlis eða af öðrum ástæðum.

Ákvörðun heilbrigðisráðherra um að lengja hámarksgeymslutíma kynfruma styður við framkvæmd laga um kynrænt sjálfræði sem samþykkt voru á Alþingi í júlí síðastliðnum og snúa að því að tryggja réttindi trans- og intersex fólks. Í samræmi við bráðabirgðaákvæði laganna vinna tveir starfshópar skipaðir af forsætisráðherra að því að skoða hvaða lagabreytingar þarf að gera í þessu skyni og eru þar m.a. til skoðunar lög nr. 55/1996 sem snúa meðal annars að tæknifrjóvgun.

Reglugerðarbreytingin verður send Stjórnartíðindum innan skamms og tekur gildi við birtingu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum