Hoppa yfir valmynd
27. október 2021 Heilbrigðisráðuneytið

COVID-19: Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu virkjuð – heilbrigðisstarfsfólk óskast á skrá

Landspítali - myndMynd: Heilbrigðisráðuneytið

Vegna fjölgunar COVID-19 smita hefur verið ákveðið að virkja bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Þetta er nauðsynlegt viðbragð til að mæta mönnunarvanda sem skapast getur vegna veikinda eða tímabundinnar sóttkvíar heilbrigðisstarfsfólks ef smit kemur upp á heilbrigðisstofnunum, líkt og gerst hefur á Landspítala þar sem deild 12G er nú í sóttkví. Biðlað er til heilbrigðisstarfsfólks sem hefur tök á að veita tímabundið liðsinni ef á reynir um að skrá sig í bakvarðasveitina. 

Eins og fram kom í tilkynningu frá Landspíta í gær verður hjarta-, lungna og augnskurðdeild 12G lokuð næstu daga vegna hópsmits. Þá hefur verið ákveðið að gera smitsjúkdómadeild A7 að farsóttareiningu sem mun alfarið sinna umönnun COVID-19 sjúklinga. Á Landspítala vantar nú einkum hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða.

Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu var sett á fót í upphafi COVID-19 faraldursins þegar ljóst var að mikilvægar heilbrigðisstofnanir gætu lent í mönnunarvanda vegna veikindafjarvista starfsfólks eða fjarvista vegna sóttkvíar. Þetta fyrirkomulag hefur reynst afar vel og skipt sköpum þegar heilbrigðisstofnanir hafa þurft að manna stöður með litlum sem engum fyrirvara. Í ljósi þess að smitum af völdum COVID hefur farið fjölgandi undanfarið og ljóst að mikilvæg heilbrigðisþjónusta getur raskast ef smit koma upp telja heilbrigðisyfirvöld nauðsynlegt að óska eftir heilbrigðisstarfsfólki á skrá í bakvarðarsveitinni sem er reiðubúið að hlaupa í skarðið ef á reynir.

Nánari upplýsingar um bakvarðasveitina koma fram með skráningarforminu sem vísað er á hér að neðan. Fólki gefst kostur á að skrá sig í tímavinnu og jafnvel í fullt starf eða hlutastarf í allt að tvo mánuði ef hentar. Laun taka mið af kjarasamningi/stofnanasamningi viðkomandi stéttarfélags á viðkomandi stofnun.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum