Hoppa yfir valmynd
2. september 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Matsferill kemur í stað samræmdra könnunarprófa

Samræmd könnunarpróf verða ekki lögð fyrir á þessu skólaári og fram til 2024. Með lagabreytingu í sumar hefur skyldu um lagningu prófanna verið frestað á meðan unnið er áfram að þróun nýs samræmds námsmats, Matsferils, sem leysa mun samræmdu prófin af hólmi.

Matsferill er nýtt samræmt námsmat sem byggir á tillögum starfshóps frá árinu 2020 um markmið, hlutverk, framkvæmd og fyrirkomulag samræmdra könnunarprófa. Breiður hópur sérfræðinga og hagsmunaaðila vann tillögurnar. Aðalmarkmiðið er að færa skipulag námsmats nær nemendum og kennurum þannig að það þjóni nemendum sem verkfæri, aðgengilegu fyrir kennara og skóla til að nota eftir þörfum.

Samræmd próf voru tengd innritun í framhaldsskóla en svo hefur ekki verið um árabil. Á undanförnum árum hefur aukin áhersla verið lögð á að samræmt námsmat veiti skólum, nemendum og foreldrum upplýsingar um stöðu nemenda og skapi færi á að styðja við nám þeirra áður en grunnskólanámi lýkur.

Samhliða breytingunni verður ytra mat skóla eflt þar sem alþjóðlegar kannanir og ytra mat hvers skóla eru talin heppilegri tæki til að sinna eftirlitsskyldu mennta- og barnamálaráðuneytisins og gefa nákvæmari heildarmynd af stöðu menntakerfisins.

Með þessum breytingum á að fjölga verkfærum skólanna. Matsferill á að gefa nákvæmari mynd af stöðu og framvindu nemanda sem nýtist kennurum, nemendum, forsjáraðilum og skóla á þann veg að hægt verði að sjá hvað þurfi að bæta.

Gert er ráð fyrir að útfærsla verkefnisstjórnar á fyrirkomulaginu til framtíðar liggi fyrir vorið 2023 og að samráð um áframhaldandi þróun Matsferils haldi áfram með hagsmunaaðilum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum