Hoppa yfir valmynd
17. október 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Átak sem styttir bið eftir meðferð við kæfisvefni

Landspítali í Fossvogi - myndMynd: Heilbrigðisráðuneyti

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Sjúkratryggingum Íslands fjármagn til kaupa á 1.000 svefnöndunarvélum til meðhöndlunar á kæfisvefni. Ákvörðunin tengist aukinni getu Landspítala til að veita meðferð við kæfisvefni með ráðningu aðstoðarfólks við eininguna sem kemur að þessari þjónustu. Rúmlega 1.000 einstaklingar bíða nú meðferðar og er biðtíminn um 12 mánuðir. Með átakinu stefnir Landspítali að því að bið eftir meðferð styttist verulega og verði í framtíðinni aðeins nokkrar vikur.

Ómeðhöndlaður kæfisvefn getur haft margvíslegar alvarlegar afleiðingar. Kæfisvefn getur t.d. aukið slysahættu viðkomandi vegna þreytu og einbeitingarskorts og jafnframt fylgja kæfisvefni auknar líkur á háþrýstingi og hjartaáföllum. Heilsufarslegur ávinningur þess að stytta bið sjúklinga eftir meðferð við kæfisvefni er því verulegur.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum