Hoppa yfir valmynd
27. mars 2019 Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

Áframhaldandi uppbygging um allt land til verndar náttúrunni

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamálaráðherra kynntu úthlutun úr Landsáætlun og Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í dag.  - mynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, tilkynntu í dag um úthlutun til uppbyggingar innviða og annarra verkefna á 130 fjölsóttum stöðum í náttúru Íslands og á öðrum ferðamannastöðum vítt og breitt um landið. Markmiðið er halda áfram þeirri miklu uppbyggingu innviða sem hafin er til verndar náttúru landsins og menningarsögulegum minjum, sem og uppbyggingar ferðamannastaða.

Saman tilkynntu ráðherrarnir um úthlutun á rúmum 3,5 milljörðum króna á næstu þremur árum. Á sama tíma er áætlað að verja 1,3 milljörðum króna sérstaklega til landvörslu.

Þetta er í annað sinn sem kynnt er sameiginlega um úthlutun úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða og Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Frá því í fyrra hafa innviðir verið byggðir upp á fjölmörgum stöðum um allt land. Má þar nefna umfangsmikla uppbyggingu við Dynjanda, lagningu stíga í Þingvallahrauni, viðgerðir við Rútshelli undir Eyjafjöllum og markvissa uppbyggingu við Stuðlagil í Jökuldal sem óvænt hefur orðið vinsæll ferðamannastaður.

Gert er ráð fyrir ríflega þriggja milljarða framlagi til þriggja ára verkefnaáætlunar Landsáætlunar um uppbyggingu innviða sem gildir fyrir árin 2019-2021. Þar með bætist rúmur milljarður króna við þá áætlun sem kynnt var í fyrra. Í áætluninni nú er ekki einungis horft til stakra staði í náttúrunni heldur lögð áhersla á heildræna nálgun í gegnum svæðisheildir og skilgreindar leiðir sem liggja á milli staða. Hvítserkur við Vatnsnes er dæmi um stað þar sem bæta á öryggi gesta og aðgengi niður í fjöruna. Bætt aðgengi við þrjá manngerða hella við Ægissíðu á bökkum Ytri-Rangár er dæmi um svæðisheild. Þá er áætlað að ráðast í fyrsta áfanga hjólaleiðar við Jökulsárgljúfur sem liggur frá Ásbyrgi í átt að Dettifossi.

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða veitir að þessu sinni styrki til 40 verkefna og nemur heildarstyrkupphæðin alls 505 milljónum króna. Hæsti styrkurinn fer til innviðauppbyggingar við Goðafoss sem er nú kominn á lokastig eftir markvisst uppbyggingarstarf á undanförnum árum. Önnur verkefni sem fá hærri en 30 milljóna króna styrki eru Breiðin á Akranesi, Laufskálavarða í Álftaveri, Reykjadalur og Hveradalir í Ölfusi.

Auk þeirra ráðstafana sem gerðar eru með úthlutun Landsáætlunar og Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er áætlað að verja um 1,3 milljörðum króna sérstaklega til landvörslu á næstu þremur árum. Þetta er gert til að tryggja ráðningu heilsársstarfsmanna sem og mönnun á háannatíma á fjölsóttum stöðum og friðlýstum svæðum.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra:
„Náttúra landsins er gulleggið okkar og við verðum að gæta hennar af alúð. Í dag kynnum við áframhaldandi stórsókn við uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum og náttúruperlum um land allt. Aldrei hefur meiri fjármunum verið varið til slíkrar uppbyggingar en í tíð núverandi ríkisstjórnar og samhliða hefur fengist betri yfirsýn svo hægt er að forgangsraða verkefnum eftir því hvar þörfin er brýnust. Slík vinnubrögð eru góð fyrir alla – ferðaþjónustuna, ríkissjóð og náttúruna sjálfa sem hagnast mest af öllum. Vatnaskil hafa orðið í umhverfisvernd hér á landi.“

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra:
„Ferðaþjónustan er ein af grunnstoðum íslensks atvinnulífs og hún á allt sitt undir því að við varðveitum töfra íslenskrar náttúru. Fyrir ári síðan kynnti ríkisstjórnin markvissa sókn í uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum í náttúru Íslands og sannarlega höfum við náð að lyfta grettistaki. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða og Landsáætlun um innviðauppbyggingu gegna hér lykilhlutverki og saman ætlum við að tryggja að íslensk náttúra og ferðaþjónusta geti blómstrað hlið við hlið.“


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum