Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2022 Heilbrigðisráðuneytið

COVID-19: Bólusetning 5 til 11 ára skólabarna

Sóttvarnasvið embættis landlæknis hefur tekið saman myndrænar upplýsingar um bólusetningar barna fyrir börn og forráðamenn þeirra í samstarfi við umboðsmann barna og ráðgjafarhóp umboðsmanns barna. - mynd

Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að foreldrum barna 5-11 ára verði boðið að láta bólusetja börn sín gegn Covid-19. Bólusetning barna í þessum aldurshópi hefst á höfuðborgarsvæðinu í dag. Bólusett verður í Laugardalshöll dagana 10. til 13. janúar. Upplýsingar um bólusetningar barna eru á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og á vefsíðum heilbrigðisstofnana um allt land.

Bólusetning er alltaf val. Þau sem fara með forsjá barns og deila með því lögheimili þurfa að taka afstöðu til bólusetningar barns á skráningarsíðunni skraning.covid.is. Þar er  hægt að;

  • skrá barn sitt í bólusetningu
  • skrá aðra aðila sem heimilt er að fylgja barninu í bólusetningu
  • hafna/bíða með bólusetningu

Upplýsingar og fræðsla um bólusetningu barna

Bólusetning barna 

Nánari upplýsingar um bólusetningar barna á mörgum tungumálum eru á vefsvæðinu covid.is/barn.

Einnig eru upplýsingar fyrir 5 til 11 ára börn og forráðamenn þeirra á vef landlæknis.

Sóttvarnasvið embættis landlæknis hefur tekið saman myndrænar upplýsingar um bólusetningar barna fyrir börn og forráðamenn þeirra í samstarfi við umboðsmann barna og ráðgjafarhóp umboðsmanns barna.

Upplýsingar um bólusetningar barna í heilbrigðisumdæmum um allt land:

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum