Hoppa yfir valmynd
25. maí 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Ný reglugerð um starfsleyfi þriðjaríkisborgara til að starfa sem heilbrigðisstarfsmenn

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur sett heildarreglugerð sem kveður á um meðferð umsókna þriðjaríkisborgara, þ.e. ríkisborgara utan Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss sem vilja starfa hér á landi sem heilbrigðisstarfsmenn. Markmið reglugerðarinnar er að einfalda og skýra kröfur til slíkra umsókna og stuðla að aukinni skilvirkni við meðferð þeirra.

Fjallað er um skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis til að starfa sem heilbrigðisstarfsmaður hér á landi í 5. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn. Íslenska ríkið er með samninga um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsfólks í ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss. Þetta einfaldar ferlið við mat á umsóknum um starfsleyfi hér á landi í samanburði við meðferð umsókna ríkisborgara frá öðrum ríkjum. 

Helstu breytingar

Þær breytingar sem gerðar hafa verið eru til þess fallnar að skýra og einfalda meðferð þessara umsókna og gera ferlið skilvirkara, líkt og hér er rakið: 

  • Í upphafi umsóknarferlis verður nóg að leggja fram ráðningarsamning, sem má hafa fyrirvara um veitingu starfsleyfis. Atvinnu- og dvalarleyfis verður ekki krafist fyrr en undir lok umsóknarferlis, áður en leyfi er gefið út.
  • Heilbrigðisstofnanir geta sótt um tímabundin starfs- og sérfræðileyfi fyrir hönd sérfræðinga sem brýn þörf er á að fá til starfa á stofnunni.
  • Forgangsröðun umsókna: Heimilt verður að forgangsraða umsóknum um starfsleyfi í stéttum þar sem mikill skortur er á starfsfólki hér á landi. Embætti landlæknis verður jafnframt heimilt að forgangsraða umsóknum þeirra sem þegar komnir til landsins, umfram þá sem enn eru erlendis.
  • Hæfnispróf eða aðlögunartími: Embætti landlæknis verður heimilt að leggja fyrir umsækjanda að standast hæfnispróf eða ljúka aðlögunartíma. Sambærilegar heimildir eru þegar í gildi varðandi ríkisborgara EES og Sviss. Breytingin stuðlar því að auknu jafnræði milli erlendra umsækjenda.
  • Krafa um íslenskukunnáttu verður ekki skilyrði fyrir starfsleyfi, heldur vinnuveitanda falin ábyrgð á að gera kröfur um nauðsynlega tungumálakunnáttu í samræmi við eðli starfs. Þetta er í samræmi við gildandi reglur um umsækjendur frá ríkjum EES og Sviss og eykur því jafnræði milli erlendra umsækjenda.
  • Menntun frá EES ríki: Kröfur um gögn umsækjenda frá þriðjaríki sem hlotið hafa menntun sína í einhverju ríkja EES eða Sviss verða þær sömu hvað menntun varðar og ef um EES ríkisborgara væri að ræða. 
  • Viðurkenning starfsleyfis frá öðru EES ríki: Heimilt verður að viðurkenna starfsleyfi sem læknir, hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir, lyfjafræðingur eða tannlæknir, sem þriðjaríkisborgari hefur óskert í öðru EES ríki, hafi viðkomandi starfað í því ríki í fullu starfi a.m.k. síðastliðin þrjú ár. Þriðjaríkisborgara er engu að síður skylt að hafa fengið ráðningarsamning hér á landi, ásamt atvinnu- og dvalarleyfi, líkt og kveðið er á um í almenna umsóknarferlinu.

Drög að þeirri reglugerð sem nú hefur öðlast gildi voru birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda í apríl síðastliðnum. Alls bárust 20 umsóknir og tók reglugerðin nokkrum breytingum með hliðsjón af þeim.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum