Vefkökum sem eru notaðar á þessum vef er skipt í flokka. Þú getur leyft eða hafnað ákveðnum eða öllum flokkum. Ef flokki, sem hafði áður verið leyfður, er síðar hafnað, er öllum vafrakökum í þeim flokki eytt út úr vafranum þínum. Undir flipanum vefkökuyfirlýsing geturðu séð lista yfir kökur í hverjum flokki ásamt ítarlegum upplýsingum.Til viðbótar geturðu séð lista yfir kökur í hverjum flokki og ítarlegar upplýsingar í vafrakökuyfirlýsingunni.
Sumar kökur eru nauðsynlegar fyrir grunnvirkni vefsins. Vefurinn mun ekki virka rétt án þessara vafrakaka. Þær eru því sjálfkrafa virkar og ekki hægt að hafna þeim.
Tölfræðikökur
Tölfræðikökur hjálpa okkur að bæta vefinn með því að safna og greina upplýsingum um notkun hans.
Markaðskökur
Markaðskökur eru notaðar til að rekja gesti slóð gesta á milli vefsíða sem gerir auglýsendum kleift að birta viðeigandi og grípandi auglýsingar.
Vefkökum sem eru notaðar á þessum vef er skipt í flokka. Þú getur leyft eða hafnað ákveðnum eða öllum flokkum. Ef flokki, sem hafði áður verið leyfður, er síðar hafnað, er öllum vafrakökum í þeim flokki eytt út úr vafranum þínum. Undir flipanum vefkökuyfirlýsing geturðu séð lista yfir kökur í hverjum flokki ásamt ítarlegum upplýsingum.
Sumar kökur eru nauðsynlegar fyrir grunnvirkni vefsins. Vefurinn mun ekki virka rétt án þessara vafrakaka. Þær eru því sjálfkrafa virkar og ekki hægt að hafna þeim.
Nauðsynlegar kökur
Nafn
Lén
Slóð
Rennur út
Merki
ASP.NET_SessionId
stjornarradid.is
/
Vafra lokað
Notað af Microsoft ASP.Net til að muna stillingar notanda milli síðna
sessionPersist
stjornarradid.is
/
Vafra lokað
Notað til að muna afstöðu þína til síðunnar á meðan vafri er opinn
cookiehub
.stjornarradid.is
/
365 dagar
Used by CookieHub to store information about whether visitors have given or declined the use of cookie categories used on the site.
__cf_bm
.twitter.com
/
1 klukkutími
Þriðji aðili
The __cf_bm cookie supports Cloudflare Bot Management by managing incoming traffic that matches criteria associated with bots. The cookie does not collect any personal data, and any information collected is subject to one-way encryption.
Tölfræðikökur
Tölfræðikökur hjálpa okkur að bæta vefinn með því að safna og greina upplýsingum um notkun hans.
Tölfræðikökur
Nafn
Lén
Slóð
Rennur út
Merki
nmstat
.stjornarradid.is
/
400 dagar
Tölfræði kaka sem fylgist með notkun gesta á síðunni. Upplýsingarnar eru notaðar til að bæta upplifun gesta. Siteimprove býr til handahófskennd auðkenni fyrir hvern gest sem kemur í veg fyrir að persónuupplýsingar séu vistaðar.
Markaðskökur
Markaðskökur eru notaðar til að rekja gesti slóð gesta á milli vefsíða sem gerir auglýsendum kleift að birta viðeigandi og grípandi auglýsingar.
Markaðskökur
Nafn
Lén
Slóð
Rennur út
Merki
YSC
.youtube.com
/
Vafra lokað
Þriðji aðili
Vefkaka frá youtube sem telur áhorf
VISITOR_INFO1_LIVE
.youtube.com
/
180 dagar
Þriðji aðili
Vefkaka frá youtube sem vaktar nethraða gesta til að ákveða hvernig myndbönd spilast
Samningur um 92 ný hjúkrunarrými fyrir aldraða í Reykjavík undirritaður:
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra, hefur ásamt Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, undirritað samning við fyrirtækið Öldung h.f. um að leggja til og reka hjúkrunaheimili fyrir aldraða í Sóltúni í Reykjavík.
Hér er um að ræða þjónustu, sem felst í að leggja til og reka í a.m.k. 25 ár hjúkrunarheimili á grundvelli 18. gr. laga nr. 82/1989, um málefni aldraðra, ætlað 92 öldruðum einstaklingum með öllu því sem til þarf. Samningurinn er gerður undir merkjum einkaframkvæmdar og er til 27 ára frá undirritun, en hjúkrunarrýmum fyrir aldraða fjölgar um 92 í Reykjavík þegar heimilið verður að fullu tekið í notkun. Fyrstu íbúarnir flytjast inn í nóvember á næsta ári, en nokkrum mánuðum síðar verður heimilið í fullum rekstri. Samningurinn hljóðar upp á 11,8 milljarða króna miðað við 25 ára þjónustutíma. Sjá fréttatilkynningu um málið
Stóraukin aðstoð við börn með geðræn vandamál:
Þjónustusamningur sem felur í sér stóraukið samstarf heilbrigðis- og félagsmálayfirvalda í málefnum barna og unglinga með geðræn vandamál eða vímuefnavanda var undirritaður í vikunni. Samningurinn er milli Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans, Samtaka áhugamanna um áfengisvandamálið og Barnaverndarstofu. Fé til geðheilbrigðisþjónustu barna og unglinga verður aukið um 53 m.kr. en barna- og unglingageðdeild leggur til rekstur tveggja bráðarúma og reglulega þjónustu sérfræðings á Stuðlum. Sjá fréttatilkynningu um málið
Samningur um reynslusveitarfélagsverkefni á Höfn framlengdur:
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra undirritaði í vikunni samning um framlengingu á þjónustusamningi við reynslusveitarfélagið Hornafjörð. Með samningnum tekur reynslusveitarfélagið að sér verkefni heilsugæslu, öldrunar- og bráðaþjónustu í Austur-Skaftafellssýslu. Meginmarkmið samningsins er að auka sjálfstjórn sveitarfélagsins, laga stjórnsýsluna betur að staðbundnum aðstæðum og nýta betur fjármagn hins opinbera. Með samrekstri heimaþjónustu og heimahjúkrunar aldraðra er stefnt að betri og samfelldari þjónustu við aldraða. Þá er það nýtt í samningnum að varið er 2,5 m.kr. til að efla þjónustu við aldraða utan stofnana til að gefa öldruðum kost á að dvelja í heimahúsi eins lengi og kostur er. Nýr samningur gildir frá 1. janúar 2000 til 31. desember 2001 eða í tvö ár. Fjárveitingar til verkefnisins hækka um tæpar 27 m.kr. á ári eða um 54 m.kr. á samningstímanum. Heildarfjárveiting er 188,6 m.kr. á ári.
Stefnumótun í málefnum aldraðra til næstu fimmtán ára:
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur skipað stýrihóp til að móta stefnu í málefnum aldraðra til næstu fimmtán ára. Hópnum er ætlað að skoða helstu málefni sem varða aldraða á breiðum grundvelli, s.s. atvinnumál, efnahagslega stöðu, félagslega stöðu og þörf fyrir þjónustu, heilbrigðismál aldraðra og húsnæðismál. Verkefni hópsins er að leggja mat á stöðuna eins og hún er í hverjum málaflokki fyrir sig, meta hvaða áhrif fyrirsjáanlegar breytingar á aldrussamsetningu þjóðarinnar munu hafa á þessa málaflokka á næstu árum og að meta hvort nauðsynlegt sé að mæta þessum áhrifum með því að breyta áherslum innan einstakra málaflokka.
Formaður hópsins er Jón Helgason, fv. ráðherra en aðrir sem í hópnum sitja eru; Hrafn Pálsson, deildarstjóri í heilbrigðisráðuneytinu, Ingi Valur Jóhannesson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu, Helga Jónsdóttir, hagfræðingur í fjármálaráðuneytinu og Guðmundur H. Garðarsson, viðskiptafræðingur tilnefndur af forsætisráðuneytinu. Ritari hópsins er Margrét Erlendsdóttir, verkefnisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu.
Launaþróun í heilbrigðisþjónustu – laun hjúkrunarfræðinga hafa hækkað mest:
Meðal heildarlaun hjúkrunarfræðinga á ríkisspítölum hækkuðu um 57% að meðaltali frá janúar 1997 til janúar í ár eða um tæpar 100.000 kr. Þetta kemur fram í skriflegu svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Ögmundar Jónassonar um launaþróun í heilbrigðisþjónustu. Laun sérfræðinga hækkuðu um 48% á sama tíma, eða yfir 150.000 kr. Heildarlaun sjúkraliða hækkuðu um 29%, en gæslumanna um 13% á þessum þremur árum. Meðal heildarlaun sérfræðinga, það er lækna sem ekki reka stofu, voru í janúar 466.000 kr. Meðallaun hjúkrunarfræðinga 266.000, sjúkraliða 168.000 og gæslumanna 134.000 á mánuði. Sjá svar fjármálaráðherra