Hoppa yfir valmynd
4. júlí 2007 Utanríkisráðuneytið

Samstarf Íslands og Indlands á sviði jarðskjálftarannsókna

Frá undirritun samstarfssamningsins
Frá undirritun samstarfssamningsins

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu

Nr. 78/2007

Undirritaður var í dag fyrsti áfangi samstarfssamnings milli utanríkisráðuneytisins og Veðurstofu Íslands um samstarf Íslands og Indlands á sviði jarðskjálftarannsókna. Fyrsti áfangi verkefnisins mun taka um hálft ár. Á þeim tíma munu tveir indverskir vísindamenn heimsækja Ísland til að kynna sér tækni á Íslandi á sviði jarðskjálftamælinga og eftirlits og tveir íslenskir vísindamenn heimsækja Indland til að leggja grunninn að samstarfinu.

Íslenskir jarðskjálftasérfræðingar hafa á undanförnum árum haft forystu um að þróa tækni fyrir jarðskjálftaspár sem vakið hefur athygli víða um lönd. Aðferðin byggir í grundvallaratriðum á svokölluðum smáskjálftamælingum, þ.e.a.s. vöktun nær samfelldra smáskjálfta í jarðskorpunni til að fylgjast með breytingum, og fjölbreytilegum rannsóknum á sviði jarðvísinda með það að markmiði að spá fyrir um jarðskjálfta. Umtalsverð jarðskjálftavirkni er á Indlandi, t.d. í Himalajafjöllunum, og telja íslensk og indversk stjórnvöld að samstarf um jarðskjálftaspár geti nýst báðum ríkjum í vísindalegu og hagnýtu tilliti. Veðurstofa Íslands mun annast samstarfið fyrir hönd íslenskra stjórnvalda. Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri tengjast verkefninu, auk utanríkisráðuneytisins sem undirbúið hefur viljayfirlýsinguna og mun standa straum af kostnaði.

Samningurinn var undirritaður af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra og Magnúsi Jónssyni Veðurstofustjóra. Viðstaddir voru Dr. Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur og Páll Halldórsson sviðsstjóri eðlisfræðissviðs Veðurstofunnar.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum