Hoppa yfir valmynd
25. júní 2008 Matvælaráðuneytið

Niðurstaða útboðs á tollkvóta vegna innflutnings á pottaplöntum og afskornum blómum

Tilkynning frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu

Miðvikudaginn 18. júní sl. rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á pottaplöntum til og með 1 m á hæð (0602.9091 og 0602.9093) og afskornum blómum (0603.1400 og 0603.1909), fyrir tímabilið júlí – desember 2008.

Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum, (0602.9091) samtals 1.900 stk. á meðalverðinu 160 kr./stk.  Hæsta boð var 161 kr./stk. en lægsta boð var 155 kr./stk. Tilboði var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 1.500 stk. á meðalverðinu 161 kr./stk.

Eitt tilboð barst um innflutning á öðrum pottaplöntum, (0602.9093) samtals 1.800 stk. á meðalverðinu 161 kr./stk.  Hæsta boð var 161 kr./stk. en lægsta boð var 161 kr./stk. Tilboði var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 1.800 stk. á meðalverðinu 161 kr./stk.

Fimm tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum,  samtals 13.300 stk. á meðalverðinu 43 kr./stk.  Hæsta boð var 49 kr./stk en lægsta boð var 35 kr./stk. Tilboðum var tekið frá fjórum fyrirtækjum um innflutning á 6.500 stk á meðalverðinu 46 kr./stk.

Fimm tilboð bárust um innflutning á afskornum blómum, samtals 119.000 stk. á meðalverðinu 33 kr./stk.  Hæsta boð var 45 kr./stk en lægsta boð var 25 kr./stk. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 118.750 stk. á meðalverðinu 33 kr./stk.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur sjávarútvegs- og  landbúnaðarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða þeirra:

 

Blómstrandi pottaplöntur júlí – desember 2008

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

    1.500

Húsasmiðjan/Blómaval

Aðrar pottaplöntur júlí – desember 2008

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

   1.800

Húsasmiðjan/Blómaval

Tryggðablóm júlí – desember 2008

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

1.000

Blómálfurinn ehf

1.800

Gróðurvörur ehf.

2.700

Samasem ehf.

 1.000

Tékkland ehf

Afskorin blóm júlí – desember 2008

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

 2.000

Blómálfurinn ehf

11.000

Gróðurvörur ehf.

69.750

Grænn Markaður ehf.

30.000

Samasem ehf.

6.000

Tékkland ehf.

 

Reykjavík, 25. júní 2008

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum