Hoppa yfir valmynd
18. desember 2008 Atvinnuvegaráðuneytið

Nr. 34/2008 - Níundi fundur samstarfsnefndar Íslands og Rússlands um sjávarútvegsmál

Fréttatilkynning frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

Nr. 34/2008

Níundi fundur samstarfsnefndar Íslands og Rússlands um sjávarútvegsmál

 

 

Samstarfsnefnd Íslands og Rússlands um tiltekna þætti sjávarútvegsmála hélt níunda fund sinn í Reykjavík 16.-17. desember sl. Á fundinum skiptust fulltrúar landanna á upplýsingum um framkvæmd samnings frá 15. maí 1999 milli ríkisstjórnar Íslands, Noregs og Rússlands (Smugusamningur) um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegs.

 

Á grundvelli samningsins verður íslenskum skipum heimilt að veiða á næsta ári, í rússneskri lögsögu í Barentshafi,  2937 tonn af þorski auk meðafla. Samkvæmt samningnum stendur Íslendingum jafnframt til boða að kaupa 1763 tonn af þorski, ef um semst.

 

Fjallað var um og farið yfir fjölþætt samstarf ríkjanna á sviði sjávarútvegs svo sem við veiðieftirlit, hafrannsóknir og stjórn veiða úr sameiginlegum stofnum í Norður-Atlantshafi m.a. á karfa, kolmunna, makríl og norsk-íslenskri síld. Var samhljómur um mikilvægi þess að á næstu misserum yrði unnið markvisst að samkomulagi um stjórnun karfaveiða á Reykjaneshrygg. Þá lýstu fulltrúar landanna ánægju sinni yfir að samkomulag væri um stjórn veiða á norsk-íslenskri síld fyrir árið 2009 sem og fyrir kolmunna og lögðu áherslu á mikilvægi ábyrgrar stjórnunar veiða úr sameiginlegum stofnum.

Jafnframt var fjallað um viðskipti með kvóta sem íslenskar útgerðir hafa rétt á að kaupa samkvæmt samningnum. Enn fremur ræddu ríkin um frekara samstarf á sviði sjávarútvegsmála á fjölþjóðlegum vettvangi þar sem áherslur og hagsmunir ríkjanna tveggja fara oft saman.

Að loknum fundinum lýstu báðir aðilar yfir ánægju með viðræðurnar og mikilvægi þeirra í tvíhliða samskiptum ríkjanna.

 

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu

18. desember 2008.

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta