Hoppa yfir valmynd
2. janúar 2009 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 2. janúar 2009

FUNDARGERÐ

Ár 2009, föstudaginn 2. janúar, var haldinn fundur í mannanafnanefnd að Bergstaðastræti 50, Reykjavík. Mættar voru Ágústa Þorbergsdóttir og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir en Veturliði S. Óskarsson var í símasambandi á fundinum. Neðangreind mál voru tekin fyrir:

 

 

1.         Mál nr. 01/2009          Eiginnafn:        Orka  (kvk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Orka (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Orku, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Orka (kvk.) er samþykkt en nafnið skal ekki fært á mannanafnaskrá fyrr en skráning þess hefur verið framkvæmd hjá Þjóðskrá.

 

 

 

2.         Mál nr. 02/2009          Millinafn:         Skagan

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Öll skilyrði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru neðangreind:

·          Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.

·          Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karl eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.

·          Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

·          Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Ef umbeðið millinafn er ættarnafn samkvæmt skrá yfir ættarnöfn þurfa öll skilyrði 7. gr. laga nr. 45/1996 að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja ættarnafn sem millinafn. Þannig fengið millinafn kallast sérstakt millinafn og færist ekki á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru neðangreind:

·          Ættarnafn er einungis heimilt sem millinafn í þeim tilvikum sem um getur í þessari grein.

·          Hver maður, sem ber ættarnafn í þjóðskrá, má breyta því í millinafn, sbr. 15. gr.

·          Hver maður, sem ekki ber ættarnafn en á rétt til þess, má bera það sem millinafn.

·          Maður má bera ættarnafn sem millinafn hafi eitthvert alsystkini hans, foreldri, afi eða amma borið það sem eiginnafn, millinafn eða ættarnafn.

·          Maður á og rétt á að taka sér ættarnafn maka síns sem millinafn. Honum er einnig heimilt að taka sér nafnið sem millinafn beri maki hans það sem millinafn skv. 2. eða 3. mgr.

 

Nafnið Skagan er ekki til á mannanafnaskrá, hvorki sem eiginnafn né sem millinafn. Hins vegar er nafnið Skagan ættarnafn samkvæmt skrá yfir ættarnöfn sem upp voru tekin á árinu 1919 og birt í stjórnartíðindum það ár.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá ber enginn núlifandi karl eða kona nafnið Skagan í Þjóðskrá en hins vegar eru á lífi einstaklingar sem rétt eiga til ættarnafnsins Skagan þótt þeir hafi ekki tekið það upp.

 

Ættarnafn er einungis heimilt sem millinafn í þeim tilvikum sem um getur í 7. gr. laga nr. 45/1996. Þar sem úrskurðarbeiðandi fellur ekki undir þar tilgreind skilyrði uppfyllir millinafnið Skagan ekki öll ákvæði laga nr. 45/1996 og því er ekki mögulegt að fallast á það.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Skagan er hafnað, bæði sem almennt og sem sérstakt millinafn.

 

 


3.         Mál nr. 03/2009          Eiginnafn:        Thalía  (kvk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

·          Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).

·          Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

·          Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef það brýtur í bág við önnur ákvæði 5. gr. laganna, þ.e. 2. málslið 1. mgr., 2. mgr. og 3. mgr. 5. gr.

 

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast almennum ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.   Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.   Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.   Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.   Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.   Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

 

Eiginnafnið Thalía (kvk.) brýtur í bág við íslenskt málkerfi og getur ekki talist ritað í samræmi við ritreglur íslensks máls. Eðlilegur íslenskur ritháttur nafnsins væri Talía eða Þalía eftir því hvernig nafnið er borið fram. Samstafan ‘th’ er ekki notuð í íslenskri réttritun, hvorki til að tákna ‘t’ né ‘þ’, þótt hún komi fyrir í nokkrum mannanöfnum sem hafa unnið sér hefð. Samkvæmt gögnum Þjóðskrár er engin kona skráð með eiginnafnið Thalía sem uppfyllir skilyrði ofangreindra vinnulagsreglna. Því telst ekki vera hefð fyrir þessum rithætti. Eiginnafnið Thalía uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 og því er ekki mögulegt að fallast á það.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið og ritháttinn Thalía (kvk.) er hafnað.

 

 

 

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið. 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum