Hoppa yfir valmynd
11. febrúar 2009 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður tollkvóta á landbúnaðarafurðum

Tilkynning

frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu um úthlutun á ESB tollkvóta á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið janúar – desember 2009

Föstudaginn 6. febrúar sl. rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópubandalaginu fyrir tímabilið janúar – desember 2009.

Samtals bárust sextán tilboð í tollkvótann, þar af voru þrjú fyrirtæki sem ekki uppfylltu útboðsreglur varðandi ábyrgðaryfirlýsingu banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags.

 

Níu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á nautgripakjöti á vörulið 0202 samtals 132.000 kg. á meðalverðinu 16 kr./kg.  Hæsta boð var 95 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá níu fyrirtækjum um innflutning á 100.000 kg. á meðalverðinu 20 kr./kg.

 

Fimm tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á svínakjöti á vörulið 0203.2100 og 0203.2200, samtals 162.000 kg. á meðalverðinu 8 kr./kg.  Hæsta boð var 79 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 100.000 kg. á meðalverðinu 12 kr./kg.

 

Sex tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á svínakjöti á vörulið 0203.29xx, samtals 198.000 kg. á meðalverðinu 30 kr./kg.  Hæsta boð var 250 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fjórum fyrirtækjum um innflutning á 100.000 kg. á meðalverðinu 47 kr./kg.

 

Sjö tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, á vörulið 0207.1200 og 0207.3300, samtals 155.000 kg á meðalverðinu 3 kr./kg.  Hæsta boð var 100 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sex fyrirtækjum um innflutning á 100.000 kg á meðalverðinu 4 kr./kg.

 

Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, á vörulið 0207, samtals 298.000 kg á meðalverðinu 157 kr./kg.  Hæsta boð var 405 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sex  fyrirtækjum um innflutning á 100.000 kg á meðalverðinu 333 kr./kg.

 

Ellefu umsóknir bárust í tollkvóta vegna innflutnings á kjöti og ætum hlutum af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;...(**) á vörulið ex 0210, samtals 34.200 kg. Ekki kom til útboðs á þessum vörulið þar sem umsóknir náðu ekki því magne sem í boði var þ.e. 50.000 kg. Úthlutað verður umbeðnum tollkvóta til viðkomandi aðila, skv. umsóknum.

 

Átta tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 112.000 kg. á meðalverðinu 107 kr./kg.  Hæsta boð var 320 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 80.000 kg. á meðalverðinu 148 kr./kg.

 

Sex tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið ex 0406 samtals 21.000 kg. á meðalverðinu 6 kr./kg.  Hæsta boð var 16 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sex fyrirtækjum um innflutning á 20.000 kg. á meðalverðinu 6 kr./kg.

 

Níu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á pylsum og þess háttar vörum úr kjöti.... á vörulið 1601, samtals 74.900 kg. á meðalverðinu 11 kr./kg. Hæsta boð var 120 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá níu fyrirtækjum um innflutning á 50.000 kg. á meðalverðinu 16 kr./kg.

 

Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti.... á vörulið 1602, samtals 225.100 kg. á meðalverðinu 38 kr./kg.  Hæsta boð var 501 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá  átta fyrirtækjum um innflutning á 50.000 kg. á meðalverðinu 156 kr./kg.

 

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra: 

 

Kjöt af nautgripum, fryst, 0202

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

   1.000

Debit ehf

 13.545

Dreifing ehf

 10.000

Innnes ehf

   5.000

Jóhann Ólafsson & CO

 20.000

Kaupás hf

 45.455

Mata ehf

   1.000

Perlukaup ehf

   2.000

Sælkeradreifing ehf

   2.000

Sælkerinn ehf

 

Svínakjöt, fryst, 0203. 2100 og 0203.2200  

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

20.000

Dreifing ehf

12.286

Innnes ehf

20.000

Kaupás hf

45.714

Mata ehf

  2.000

Perlukaup ehf

 

Svínakjöt, fryst, 0203.29xx 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

    4.908

Dreifing ehf

  40.000

Kaupás hf

  49.092

Mata ehf

    6.000

Samkaup hf

 

Kjöt af alifuglum, fryst, 0207.1200 og 0207.2200

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

 23.091

Dreifing ehf

   3.091

Innnes ehf

   1.000

Jóhann Ólafsson & CO

 10.000

Kaupás hf

 61.818

Mata ehf

   1.000

Sælkeradreifing ehf

 

Kjöt af alifuglum, fryst, 0207

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

  40.000

Innnes ehf

    6.972

Kaupás hf

         28

Mata ehf

    1.000

Perlukaup ehf

  50.000

Samkaup ehf

    2.000

Sælkeradreifing ehf

 

Kjöt og ætir hlutar af dýrum.. ex 0210 

Magn (kg)

Úthlutað án útboðs

   2.000

Debet ehf

    5.000

Dreifing ehf

       200

G.E.Sæmundsson ehf

    3.000

IGS Flugþjónusta

    4.000

Jóhann Ólafsson & CO

    5.000

Karl K. Karlsson ehf

    5.000

Kaupás hf

    2.000

Perlukaup ehf

    4.000

Sælkeradreifing ehf

    1.000

Sælkerinn ehf  

    3.000

Viðbót ehf

 

Ostur og ystingur 0406

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

  5.000

Dreifing ehf

  7.142

G.E.Sæmundsson ehf

22.000

Innnes ehf

  3.929

Karl K. Karlsson ehf

  8.929

Kaupás hf

  8.000

Mjólkursamsalan hf

25.000

Sólstjarnan ehf

 

Ostur og ystingur ex 0406

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

   3.000

Dreifing ehf

   3.000

G.E.Sæmundsson ehf

   4.400

Innnes ehf

   5.000

Karl K. Karlsson ehf

   3.000

Kaupás hf

   1.600

Perlukaup ehf

 

Pylsur og þess háttar vörur 1601

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

   1.000

Debet ehf

   3.558

Dreifing ehf

   1.672

Innnes ehf

      500

Jóhann Ólafsson & CO

 10.000

Kaupás hf

 27.870 

Mata ehf 

   1.000

Perlukaup ehf

   4.000

Sælkeradreifing ehf

      400

Sælkerinn ehf

 

Annað kjöt, hlutar úr dýrum.. 1602 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

   4.000

Ásbjörn Ólafsson ehf

      800

Debit ehf

   5.000

Innnes ehf

   6.000

Jóhann Ólafsson & CO

 20.000

Kaupás hf

 10.000

Sólstjarnan ehf

   4.000

Sælkeradreifing ehf

     200

Sælkerinn ehf

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum