Hoppa yfir valmynd
28. október 2009 Forsætisráðuneytið

Fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og AGS lokið

Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) samþykkti fyrstu endurskoðun á efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda á fundi sínum í Washington í dag. Með því veitir stjórnin heimild til þess að afgreiða næsta hluta af lánasamningi AGS til Íslands að fjárhæð USD 167,5 m (21 ma. kr.) Auk þess er vænta viðbótarlána frá Norðurlandaþjóðunum að fjárhæð USD 625 m (78 ma. kr.) í kjölfar þessarar samþykktar sjóðsins.

Fyrsta endurskoðun efnahagsáætlunarinnar átti að fara fram í febrúar eða mars á þessu ári. Næsta endurskoðun er nú á áætlun í desember 2009. Vegna þeirra tafa sem orðið hafa á endurskoðun áætlunarinnar hefur samstarf AGS og Íslendinga verið framlengt til maí 2011 frá nóvember 2010 eins og gert var ráð fyrir í upprunalegu samkomulagi.

Við hverja endurskoðun senda íslensk stjórnvöld sjóðnum uppfærða viljayfirlýsingu (e. letter of intent). Í yfirlýsingu íslenskra stjórnvalda til stjórnar sjóðsins er þess getið að meginmarkmið efnahagsáætlunarinnar séu að tryggja stöðugleika krónunnar, endurreisa fjármálakerfið og tryggja sjálfbærni í opinberum fjármálum á næstu misserum. Unnið hafi verið ötullega að þessum markmiðum en óska þurfi undanþágu í nokkrum liðum þar sem ekki hafi verið unnt að ná tilsettum markmiðum fyrir þann tíma sem tilgreindur var í upprunalegri áætlun. Stjórn sjóðsins féllst á að veita undanþágu frá ákvæðum um hreinan fjármagnsjöfnuð ríkissjóðs, hreinan gjaldeyrisforða Seðlabankans og endurfjármögnun viðskiptabankanna auk þess sem tillit er tekið til aðstæðna varðandi áframhaldandi framkvæmd gjaldeyrishafta.

Viljayfirlýsing stjórnvalda vegna endurskoðunar samstarfssamnings við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn

 

Reykjavík, 28. október 2009



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum