Hoppa yfir valmynd
17. desember 2009 Matvælaráðuneytið

Niðurstaða útboðs á tollkvóta vegna innflutnings á pottaplöntum og afskornum blómum

Tilkynning frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu

Mánudaginn 14. desember sl. rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2010.

Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum, (0602.9091) samtals 2.000 stk. á meðalverðinu 161 kr./stk.  Hæsta boð var 161 kr./stk. en lægsta boð var 160 kr./stk. 

 

Tvö tilboð bárust um innflutning á öðrum pottaplöntum, (0602.9093) samtals 2.500 stk. á meðalverðinu 161 kr./stk.  Hæsta boð var 161 kr./stk. en lægsta boð var 160 kr./stk.  

 

Tvö tilboð bárust vegna innflutnings á tryggðablómum (0603.1400) samtals 9.000 stk. á meðalverðinu 6 kr./stk.  Hæsta boð var 45 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. 

 

Þrjár umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, samtals 97.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 166.250 stk. Úthlutað var án útboðs.

 

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur sjávarútvegs- og  landbúnaðarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

 

Blómstrandi pottaplöntur janúar – júní 2010

 

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

    2.000

Húsasmiðjan/Blómaval

 

Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2010

 

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

   2.500

Húsasmiðjan/Blómaval

 

Tryggðablóm janúar – júní 2010

 

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

1.200

Gróðurvörur ehf

 7.800

Samasem ehf.

 

Afskorin blóm janúar – júní 2010

 

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

12.000

Gróðurvörur ehf.

35.000

Grænn Markaður ehf.

50.000

Samasem ehf.

 

Reykjavík, 17. desember 2009

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum