Hoppa yfir valmynd
27. maí 2010 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 27. maí 2010

 

 

 

 

Mál nr. 41/2010                    Eiginnafn:     Ýma

 

Hinn 27. maí kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 41/2010:

 

Eiginnafnið Ýma (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ýmu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ýma (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

 

 

 

Mál nr. 40/2010                    Eiginnafn:     Jónheiðar

 

 

Hinn 27. maí kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 40/2010:

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. tvö hér að ofan. Í athugasemdum um frumvarp til laga um mannanöfn frá 1995 segir að íslenskt málkerfi sé samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Þarna segir að skilyrðinu sé einkum ætlað að koma í veg fyrir að rótgrónum nöfnum sé breytt til horfs sem stríðir gegn hefð þeirra. Enn fremur komi skilyrðið í veg fyrir nýmyndanir sem brjóta í bág við íslenskar orðmyndunarreglur, t.d. þríliðuð nöfn eins og Guðmundrún, Guðmundpáll og Ragnhildmundur.

Nafnið Heiðar er samsett úr tveimur liðum, rót og viðskeytinu -ar. Jónheiðar telst því þríliðað nafn og af þeim sökum er ekki hægt að fallast á það.  Rétt er að taka fram að kvenmannsnafnið Jónheiður er tvíliðað. Það er myndað úr Jón og Heiður, en nafnið Heiður er aðeins einn liður, ólíkt karlmannsnafninu Heiðar.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Jónheiðar (kk.) er hafnað.

 

 

 

 

Mál nr. 39/2010                    Eiginnafn:     Jörri

 

 

Hinn 27. maí kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 39/2010:

 

Eiginnafnið Jörri (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Jörra, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Jörri (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum