Hoppa yfir valmynd
11. júní 2010 Matvælaráðuneytið

Niðurstaða útboðs á tollkvóta vegna innflutnings á pottaplöntum og afskornum blómum

Tilkynning frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu

Miðvikudaginn 2. júní 2010 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2010.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum, (0602.9091) samtals 1.500 stk. á meðalverðinu 131 kr./stk.  Hæsta boð var 161 kr./stk. en lægsta boð var 100 kr./stk.  Eitt tilboð reyndist vera ógilt.

Þrjú  tilboð bárust um innflutning á öðrum pottaplöntum, (0602.9093) samtals 1.800 stk. á meðalverðinu 122 kr./stk.  Hæsta boð var 161 kr./stk. en lægsta boð var 80 kr./stk.  Eitt tilboð reyndist vera ógilt.

Tvö tilboð bárust vegna innflutnings á tryggðablómum (0603.1400) samtals 6.500 stk. á meðalverðinu 6 kr./stk.  Hæsta boð var 35 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk.

Þrjár umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, samtals 76.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 118.750 stk. Úthlutað var án útboðs.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur sjávarútvegs- og  landbúnaðarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

Blómstrandi pottaplöntur júlí – desember 2010

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

    1.500

Húsasmiðjan/Blómaval

Aðrar pottaplöntur júlí – desember 2010

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

   1.800

Húsasmiðjan/Blómaval

Tryggðablóm júlí – desember 2010

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

1.200

Gróðurvörur ehf

 5.300

Samasem ehf.

Afskorin blóm júlí – desember  2010

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

11.000

Gróðurvörur ehf.

35.000

Grænn Markaður ehf.

30.000

Samasem ehf.

 

Reykjavík, 11. júní  2010

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum