Hoppa yfir valmynd
11. júní 2010 Matvælaráðuneytið

Niðurstaða útboðs vegna á nautgripa-, svína- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum

Tilkynning frá sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytinu

 

Miðvikudaginn 26. maí 2010 rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nautgripa-, svína- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum fyrir tímabilið júlí 2010 – júní 2011.

Samtals bárust  umsóknir frá 6 aðilum um tollkvótann. Einungis kom til útboðs á tollkvótum í alifuglakjöti, þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var.

Til úthlutunar vegna innflutnings á nautgripakjöti voru 95.000 kg. Úthlutað var til fjögurra fyrirtækja, samtals 70.000 kg.

Til úthlutunar vegna innflutnings á svínakjöti voru 64.000 kg. Úthlutað var til fjögurra fyrirtækja, samtals 57.000 kg.

Fjórar umsóknir bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, á vörulið 0207.1xxx 0207.2xxx og 0207.3xxx, samtals 74.000 kg Til úthlutunar var 59.000 kg. og var því óskað eftir tilboðum. Eitt tilboð barst á

á meðalverðinu 1 kr./kg.  Hæsta boð var 1 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg.

Til úthlutunar vegna innflutnings á öðru kjöti voru 12.000 kg. Úthlutað var til eins fyrirtækis, samtals 7.000 kg.

Til úthlutunar vegna innflutnings á unnum kjötvörum voru 86.000 kg. Úthlutað var til þriggja fyrirtækja, samtals 73.500 kg.

Til úthlutunar vegna innflutnings á smjöri voru 53.000 kg. Engin um sókn barst og kom ekki til úthlutunar.

Til úthlutunar vegna innflutnings á ostum voru 119.000 kg. Úthlutað var til tveggja fyrirtækja, samtals 70.000 kg.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

 

Kjöt af nautgripakyni fyrir tímabilið júlí 2010 – júní 2011

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

  50.000

Dreifing ehf.

  10.000

Innnes ehf

    5.000 

Kjarnafæði ehf

    5.000

Perlukaup ehf

 

Svínakjöt fyrir tímabilið júlí 2010 – júní 2011

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

  40.000

Dreifing ehf.

    5.000

Innnes ehf

  10.000

Kjarnafæði ehf

    2.000

Perlukaup ehf

 

Kjöt af alifuglum fyrir tímabilið júlí 2010 – júní 2011

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

  30.000

Dreifing ehf.

 

 

Annað kjöt fyrir tímabilið júlí 2010 – júní 2011

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

   7.000

Dreifing ehf.

 

 

Unnar kjötvörur fyrir tímabilið júlí 2010 – júní 2011

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

  50.000

Dreifing ehf.

  13.000

Innnes ehf

  10.500

Miklatorg ehf

 

 

Ostur fyrir tímabilið júlí 2009 – júní 2011

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

  50.000

Dreifing ehf.

  20.000

Innnes ehf

 

 

 

Reykjavík, 11. júní 2010

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum