Hoppa yfir valmynd
3. janúar 2011 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum

 

Mánudaginn 13. desember 2010 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2011.

Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum, (0602.9091) og á öðrum pottaplöntum, (0602.9093). Annað þessara tilboða reyndist ekki uppfylla útboðsskilyrði og var því vísað frá.

Eitt gilt tilboð barst um innflutning á blómstrandi pottaplöntum, (0602.9091) samtals 500 stk. á meðalverðinu 109 kr./stk.  Hæsta boð var 109 kr./stk. en lægsta boð var 109 kr./stk. 

Eitt gilt tilboð barst um innflutning á öðrum pottaplöntum, (0602.9093) samtals 500 stk. á meðalverðinu 109 kr./stk.  Hæsta boð var 109 kr./stk. en lægsta boð var 109 kr./stk.  

Ein umsókn barst um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 9.000 stk., sem er sama magn og í boði var.  Úthlutað var án útboðs.

Tvær umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, samtals 85.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 166.250 stk. Úthlutað var án útboðs.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur sjávarútvegs- og  landbúnaðarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

Blómstrandi pottaplöntur janúar – júní 2011

 

Magn (stk) Tilboðsgjafi
   500 Grænn Markaður ehf

 

Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2011

 

Magn (stk) Tilboðsgjafi
   500  Grænn Markaður ehf

 

Tryggðablóm janúar – júní 2011

 

Magn (stk) Tilboðsgjafi
9.000 Samasem ehf

 

Afskorin blóm janúar – júní 2011

 

Magn (stk) Tilboðsgjafi
35.000 Grænn Markaður ehf
50.000 Samasem ehf

 

Reykjavík, 29. desember 2010

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum