Hoppa yfir valmynd
16. mars 2011 Atvinnuvegaráðuneytið

Smáþörungar gætu orðið eldsneyti framtíðarinnar

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Vistvæn Orka hefur síðustu 3 árin unnið að verkefni sem snýst um að þróa hagkvæma kerfislausn fyrir lífefnavinnslu smáþörunga. Verkefninu miðar vel áfram og stefnir fyrirtækið, sem hefur aðsetur á frumkvöðlasetrinu á Keldnaholti, að því að koma upp tilraunaframleiðslu á lífmassa úr smáþörungum á þessu ári. Mikill og vaxandi áhugi er víða erlendis að nýta smáþörunga sem hráefni í lífeldsneyti. Horfa menn þá aðallega til framleiðslu á lífdísel fyrir vélknúin farartæki eins og bifreiðar og skip. Einnig eru flugvélaframleiðendur í auknum mæli farnir að líta á kosti þess að nýta smáþörunga sem hráefni í flugvélaeldsneyti. 

Vistvæn Orka ehf er íslenskt hátækni frumkvöðlafyrirtæki með áherslu á þróun og markaðssetningu á orkusparandi kerfis- og ljóslausnum sem byggja á LED ljósdíóðutækni fyrir ylrækt, líftækniiðnað og endurnýjanlega orkugeirann.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta