Vatnið á Íslandi á sér góða og margverðlaunaða vini
Samtökin Vatnavinir hafa hlotið virt alþjóðleg verðlaun í arkitektúr „Global Award for Sustainable Architecture 2011“ fyrir verkefnið Heilsulandið Ísland. Vatnavinir samanstanda af alþjóðlegum hópi fagfólks sem koma úr ólíkum greinum byggingarlistar, hönnunar, markaðssetningar, ferðamennsku, heimspeki og listum.
Verðlaunin eru mikil viðurkenning á þeirri ferðaþjónustu sem Vatnavinir ásamt sveitafélögum, staðarhöldurum og ferðaþjónum hafa þróað í átt að sjálfbærni á Vestfjörðum, með því að vekja athygli ferðafólks og heimamanna á náttúrulaugum sem þar eru.
Þessi verðlaun staðfesta svo ekki verður um villst þá miklu möguleika sem heilsuferðaþjónusta á Íslandi býr yfir enda eru aðstæður hér einstakar; náttúrufegurð, heitar laugar, hreint loft og kristaltært vatn svo aðeins fátt eitt sé upp talið.